Iðnaðarmál - 01.02.1971, Qupperneq 7
minni efnum en áður tíðkaðist og
þau viðkvæmari. Einnig er vindþétt-
leiki þeirra minni, einkum á sam-
skeytum. Stiga- og lyftuháfar, langir
gangar, stórir opnanlegir gluggar,
loftræstistokkar o. s. frv. auka á hætt-
una. Hver hætta er á ferðum, má
marka af því, að sums staðar, þar
sem enn er unnið að heildarendur-
skoðun vindstaðla, hafa bráðabirgða-
ákvæði verið gefin út um aukið stað-
bundið álag.
Það er tilgangur þessarar greinar
að gera tilraun í þá átt að leita grund-
vallar að íslenzkum staðli um vind-
álag. Sökum þess, að vindmælingar
hérlendis ná skammt aftur í tímann
og eru frá fáum athugunarstöðvum,
er þess ekki að vænta, að þessi til-
raun verði nákvæm. Víða er í stöðl-
um erlendis miðað við hvassviðri,
sem búast má við, að komi aðeins
einu sinni á hverjum 50 árum, og er
því augljóst, að vindmælingar, sem
ná aðeins 10—20 ár aftur í tímann
og frá fáum stöðum, nægja ekki til
slíkrar spár. Reynslan hjá nágranna-
þjóðum vorum er einnig sú, að vind-
staðlar eru í slöðugri endurskoðun.
2. Tjón aí völdum hvassviðra
Ekki eru til neinar skýrslur um,
hversu mikið fjármunatjón verður
árlega á Islandi af völdum hvass-
viðra, en víst er, að það er verulegt.
Lausleg könnun, sem höfundar hafa