Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 33

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 33
Ný tegund hleðslusteina T. F. Newell við Tækniskólann í Southampton, hefur fundið upp nýja tegund af hleðslusteinum. Eins og sýnt er á meðfylgjandi myndum, eru steinar þessir sérlega haganlega gerð- ir, og raða má þeim saman á ýmsa vegu. Stærðin er 333 mmX265 mm, en senn mun verða hafin framleiðsla á steinum af stærðinni 33 mmX500 mmX300 mm. Ymis efni má nota í þessa steina, t. d. steinsteypu eða tréríkar blöndur. Úr „Tlie Architect", júní 1971. Skilveggir úr gipsi Gips hefur ekki verið notað hér- lendis til bygginga, svo að teljandi sé, þrátt fyrir það að gips er ódýrt efni. Gips hefur verið notað til þess að gera ódýrar afsteypur af ýmiss konar listmunum. Víða erlendis hefur gips verið notað í mjög stórum stíl í pússningu. Þrýstiþol gipspússningar er um 68.9 N/mm2, en beygjutogþolið er lágt. Gipsið er sem sé fremur stökkt efni. Hin síðari ár hefur verið unnið að tilraunum með blöndun glertrefja í gips á vegum Byggingarrannsókna- stofnunar í Bretlandi. Tilraunir þess- ar hafa gefið mjög jákvæðar niður- stöður. Beygjutogþol gipss má t. d. fjór- falda með 6% íblöndun glertrefja. Unnið hefur verið að hönnun skil- veggja fyrir skólabyggingar úr gips- glertrefjablöndu, og eru þegar komn- ir á markað í Bretlandi slíkir milli- Framleiðsla þessara skilveggja er tiltölulega einföld. Gips-glertrefja- blöndunni er hellt í mót, yfirborð mótsins sléttað og vatnið þurrkað burt, en slíkt má gera á ýmsa vegu, t. d. með hitun eða undirþrýstingi (sjá mynd). Úr „Composites“, marz 1970. Hornsteinn Grunnhornsteinn Grunnsteinn Veggsteinn IÐNAÐARMAL 63

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.