Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 13

Iðnaðarmál - 01.02.1971, Blaðsíða 13
fjallabyljir eru tíðir, getur þó munað mun meiru. Á Hjarðarnesi í Hval- firði kemur þannig þráfaldlega fyrir í suðaustlægri vindátt, að mestu hvið- ur eru 50—100% hvassari en meðal- vindhraði á sama tíma. Mesti vindhraði samkvœmt 10 mín. meðaltali Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum voru mæld 17 vindstig í janúar 1949. Samkvæmt því hefur vindhraði þá verið 109—118 hnútar. (Um tíma var notuð framlenging Beaufort-vind- stigans upp í 17 vindstig, en því var aftur hætt, og er nú aðeins talað um 0—12 vindstig). Þar mældust einnig 108 hnútar í október 1963 og 100 hnútar í janúar 1957. Til þess að kanna mesta vindhraða á nokkrum stöðum á landinu var gerð skrá yfir vindhraða þá daga, sem veð- urhæð náði 11 vindstigum (56 hnút- ar eða meira) á 8 stöðvum árin 1960 —1969. Dreifing vindhraða sést í töflu á 44. síðu. Hér skera sig tvær athuganir úr á Höfn með vindhraða 95 og 96 hnúta. Ekki er útilokað, að um skemmri tíma en 10 mín. hafi verið að ræða. Til þess að fá yfirlit umtíðnihvass- viðra í ýmsum héruðum voru gerð tvö kort, sem fylgja hér með, og sýnir annað þann fjölda daga á hverju ári, sem veðurhæð nær 8 vind- stigum, en hitt þá daga, sem hún nær 10 vindstigum. Teknar voru með allar veðurstöðvar, hvort sem þœr haja vindmœli eða ekki. IÐNAÐARMÁL 43

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.