Franskir dagar - 01.07.2009, Síða 22
Franskir dagar - Les jours fran^ais
Texti: Gísli Jónatansson
Verslunarhúsið Tangi á Fáskrúðsfirði
Kaupmanna- og samvinnuverslun
Það var árið 1888 sem Carl Daníel Tul-
inius (1835-1905) kaupmaður á Eskifirði
opnaði útibú frá verslun sinni á Eskifirði á
Búðum í Fáskrúðsfirði. Enn standa tvö hús
á Fáskrúðsfirði sem tengd eru Tulinius. Það
eru húsin Sjólyst (Búöavegur 41a) og Tangi.
Sjólyst var byggð 1884 og hefur borið fleiri
nöfn s.s. Búðaströnd, Búðakaupstaður, Fram-
kaupstaður, Skriöa, Rúst og Gerði. Verslun
Tuliniusar var i fyrstu staðsett í nágrenni við
Sjólyst og hét þá Framkaupstaður, en áriö
1895 byggði hann nýtt verslunarhús utar í
kauptúninu, Útkaupstað eða Tanga, en það
hús hefur nú veriö endurbyggt.
Tveir synir Carls Daníels, þeir Carl Andreas
(1864-1901) og Þórarinn Erlendur (Thor
E. Tulinius) (1860-1932), koma mikið við
sögu Tuliniusarverslunar á Fáskrúðsfirði.
Carl Andreas var yfirmaður Tuliniusarversl-
unar á Fáskrúösfirði og franskur konsúll.
Carl Andreas lést aðeins 37 ára gamall og
reistu vinir hans honum minnisvarða fyrir
ofan Tanga að honum látnum. Þórarinn
Erlendur, sem auk verslunarreksturs rak
umfangsmikla kaupskipaútgerð og hefur
verið nefndur fyrsti íslenski skipakóngurinn,
keypti síðar verslanir föður síns, stofnaði
félag sem hann nefndi “Hinar sameinuðu
íslensku verslanir.” Áriö 1926 urðu Hinar
sameinuðu íslensku verslanir gjaldþrota og
lauk þar með verslunarsögu Tuliniusa á Fá-
skrúösfirði og víðar um land.
Saga Tanga hefst út í Kaupmannahöfn
áriö 1894. Tvitugur maður frá Eskifirði er að
læra byggingariðn hjá fyrirtækinu Hovsted
Ft Balslev í Pílustræti 65. Þetta var Pétur
Vilhelm Jensen (1874-1961), en hann sigldi
til náms í Kaupmannahöfn 22. október 1890,
tæplega sextán ára gamall. Vilhelm var m.a.
faðir Amþórs Jensens kaupmanns á Eskifirði
og Jens Peders Jensens, skipstjóra á Eski-
MinnisvarOi um Carl A. Tulinius á Fáskrúösfiröi
22 ...............
firði, sem fórst með Hólmaborg árið 1956.
Vilhelm var því m.a. afi Vals Arnþórssonar,
fyrrv. kaupfélagsstjóra KEA og Jens Péturs
Jensens, fyrrv. skrifstofustjóra Kaupfélags
Fáskrúðsfirðinga.
Meistari Vilhelms hjá Hovsted Et Balslev,
N. Boysen, segir honum að Thor E. Tulinius
sé að falast eftir tveimur húsgrindum og
biður Vilhelm að fara á fund Þórarins til
að yfirfara heldur ófullkomnar teikningar af
húsunum. Þórarinn segir honum að önnur
húsgrindin sé fyrir Ottó bróðir hans á Homa-
firði, en hin fyrir Carl Andreas bróður hans á
Fáskrúðsfirði. Það verður úr að Vilhelm tekur
að sér að gera nákvæmar teikningar af hús-
unum. Hann fer aftur á fund Þórarins með
teikningamar, en Þórarinn vill ekki greiða
honum uppsett verð fyrir teikningamar og
fer hann því með þær til baka.
í febrúar árið 1895 kemur bréf til Vilhelms
frá Hótel Kongen af Danmark. “Bið yður vin-
samlegast að tala við mig á hótelinu þann
10. febrúarþ.m. kl. 6-7 að kveldi.” Virðing-
arfyllst, Carl A. Tulinius.
Carl tók vel á móti Vilhelm. “Thor bróður
minn hefur sagt mér frá teikningu, er þú
hefur gert eftir rissi frá Einari snikkara á
Eskifirði.” Vilhelm segir Carli að Þórarinn
hafi ekki viljað greiða honum 250 krónur
fyrir teikningarnar eins og hann hafi óskað
eftir. Hann hafi því fariö meö þær til baka og
meistari hans hafi greitt honum 300 krónur
fyrir verkið og hann sé með teikningarnar.
Carl samþykkti að greiða sama verð og réð
Vilhelm til að reisa verslunarhúsið á Búðum
í Fáskrúðsfirði.
Norska skipið Rjukan lagði svo af stað
frá Kaupmannahöfn til Islands 5. april 1895
með efnið i Tanga og stórviði í bryggju og
var sökkhlaðið. Skipstjórinn hét Haugeland,
gamall maður og mjög sjóhræddur. Meðal
farþega voru Vilhelm og Carl Andreas. Þór-
arinn mætti á biyggjuna og var dálítið bros-
leitur þegar hann kvaddi Vilhelm.
Skipið hreppti mjög vont veður á leiö
sinni til íslands. M.a. fékk það á sig brotsjó
svo aö allar olíutunnur á afturdekki tók út.
Þá var ekki um annað að ræða en að snúa
við til Hjaltlands, því að kola- og vatnslaust
var orðið um borð. Siglt var til baka i hálfan
annan sólarhring til Leirvíkur og þar fengu