Franskir dagar - 01.07.2009, Blaðsíða 23

Franskir dagar - 01.07.2009, Blaðsíða 23
menn kol og vatn. Skrúðinn sáu menn fyrst 25. apríl. Hafís var rúmar tvær sjómílur frá landi og var siglt norður með ísnum í besta veðri, en hvergi sást glufa. Hinn 29. april kom sunnan gola og þá komst skipiö undir Skrúð í gegnum rennu. Rjukan lagðist svo að bryggju á Eskifirði 30. apríl og stoppaði þar í tvo daga. Þá var haldið til Fáskrúös- Qarðar og komið þangað á krossmessudag- inn 3. maí. Jón Stefánsson Scheving hét verslunar- stjóri Carls á Fáskrúðsfirði, en kona hans Stefanía. Hjá þeim var uppeldissonur þeirra Bjöm Gíslason, bróðir Þorsteins Gíslasonar ritstjóra. Vilhelm var nú komið fyrir hjá Hall- dóri Stefánssyni, en það var köld og lítil vist- arvera, ólíkt því sem hann hafði haft síðustu árin. Þetta sumar kynntist hann Guömundi Ásbjamarsyni sem síöar varð frikirkjuprestur á Eskifirði. Hann var við verslun Carls vegna kunnáttu sinnar í frönsku og öðmm tungu- málum. Á meðan timbri og vömm var skipaö upp úr Rjukan fór Vilhelm í að rífa gömul hús á Búðatanga. Þá var grafinn og hlaðinn gmnnur undir húsið, reknir niður staurar og byggð biyggja. “Þaö var mikið að gera á Fáskrúðsfirði og varla verið meira fjör í annan tíma. Carl Andreas var hinn besti húsbóndi og gott að vinna fyrir hann,” segir Vilhelm. Það hefði ekki verið til mikils að fara eftir teikningu, því að nú var öllu breytt, húsið minnkað mikiö og lækkaðir veggir, en gmnnflötur þó nokkuð látinn halda sér. Þetta varð allt aö ganga fljótt og vom bráðabirgðaskúrar reistir fyrir vömmar. Margir hjálparsmiðir vom fengnir til þess að verkið gengi sem fljótast. Frá Eskifirði komu Einar Einarsson, Guðmundur Jónsson og Ásmundur Bjamason. Húsið sjálft, sem var bæði ívemhús og verslunarhús var reist 29. ágúst 1895 og komið undir þak, alklætt og fokhelt í byrjun október. Þá var haldið reisugildi í stærsta húsi sem þá hafði verið Franskir dagar - Les jours fran^ais reist á Búðum. “Reisugildið var hið veglegasta og líklega það rausnarlegasta, sem haldið hafði verið á Fáskrúðsfirði eöa í nærliggjandi sveitum”, segir Vilhelm í æviminningum sínum. Þama vom settar á stokka brennivínstunna, bjórt- unnur og ein tunna af Ratafía. Þetta var fyrir utan það sem dmkkið var úr flöskum svo sem kampavín, líkjör og sænska bankóið sem dömurnar dmkku. Þama var saman komið um þijú hundmð manns, dansað alla nóttina og fram á dag. Guðmundur Ásbjarnarson, vinur Vilhelms, var skenkjari á meðan hann gat og svo vom ótal hjálparkokkar. Þessar upplýsingar um upphafið að Tanga em byggöar á æviminningum sem Vilhlem Jensen ritaði sjálfur og nefndi “Séð, lifað og starfað.” Steindór Steindórsson frá Hlöðum og Ari Harðarson lásu yfir og endurrituðu þessi minningabrot, en handritið var ekki ætlað til útgáfu. Eins og að framan greinir fóm Hinar sam- einuöu íslensku verslanir í þrot árið 1926. Jón Davíðsson (1875-1954) bjó með fjöl- skyldu sinni í Tanga og hafði lengi starfað við Tangaverslun. Kona hans var Jóhanna Kristjánsdóttir (1882-1973). Jón tekur að sér verslunarreksturinn í nokkur ár eða fram undir stofnun Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga 6. ágúst 1933, en þá kaupir kaupfélagið hús- eignir Tangaverslunar. Jón Davíösson var m.a. faðir Þorvaldar Jónssonar (1908-1995) skipaafgreiðslumanns á Fáskrúðsfirði. Þor- valdur var fæddur í Tanga 18. ágúst 1908 og var kunnur Fáskrúðsfirðingur á sinni tíð. Björn Ingi Stefánsson (1908-2000) var fyrsti kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðs- firðinga 1933-1946. Hann bjó ásamt konu sinni Þómnni Sveinsdóttur (1913-1999) og bömum i Tanga til 1946 og er það síðasta fólkið sem bjó í húsinu. Frá 1946 var Tangi eingöngu notaður fyrir verslun og skrif- stofur kaupfélagsins. Eftir að Björn flutti úr Tanga höföu kaupfélagsstjóramir Einar Guðni Sigurðsson, Guðlaugur Eyjólfsson, Helgi Vigfússon og Guðjón Friðgeirsson skrifstofur sínar í Tanga. Kaupfélagið rak verslun í Tanga fram í nóvember 1980, en þá var hún flutt í nýtt húsnæði að Skólavegi 59. Eftir aö verslun var lögð niður í Tanga var rekiö netaverkstæði í húsinu í nokkur ár á vegum kaupfélagsins. Magnús Skúlason fyrrv. forstööumaður Húsafriðunarnefndar rikisins segir m.a. í bréfi til kaupfélagsins þann 23. maí 2003. “Að mati undirritaös hefúr húsið mikið varð- veislugildi fyrir Fáskrúðsfjörð vegna aldurs, gerðar og menningarsögu. Þá hefúr húsið einnig varðveislugildi vegna staðsetningar við Hafnargötu og tengsl við önnur hús þar.” Hinn 19. nóvember 2007 hófst endurbygg- ing Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga á Tanga í samstarfi við Húsaffiöunameíhd i því augna- miöi að koma húsinu i eins uppmnalegt horf og hægt væri. Það er fyrirtækið Svarthamrar ehf. í Neskaupstað, undir stjórn Guðbjarts Hjálmarssonar, sem verið hefur aðal fram- kvæmdaaðili við endurbygginguna. Þegar þessar línur em ritaðar er Ingólfur Arnarson málarameistari í Neskaupstað og hans fólk að bera málningu á síðustu fletina og aö end- ingu bera þau fernisolíu á trégólf hússins. Það er alveg ljóst að Tangi er eitt sögu- frægasta hús á Fáskrúðsfirði og hefur i gegnum tíðina gegnt miklu þjónustuhlut- verki við ibúana. Með endurbyggingu Tanga er verið að bjarga merku nítjándu aldar húsi og um leiö menningarverðmætum fyrir Fá- skrúðsfjörö. Þar að auki má segja að rætur atvinnulífs á Fáskrúðsfirði liggi frá Tanga alveg fram á þennan dag. Það verður svo að vera þróunarverkefni næstu ára hvernig húsið verður útbúiö og hvernig það verður nýtt í framtíðinni. Það má með sanni segja að Tangi sé mjög góð viðbót við skemmtilega flóm gamalla húsa við Hafnargötuna á Búðum. Bjöm Stefánsson Carl A. Tulinius Pétur Vilhelm Jensen

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.