Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 3

Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 3
Franskir dagar - Les jours frangais nnmv. aettarhringur. is % * nM1 ■fSr \tf jyi ,4% v, W -/ - . -5;. '«sa ' ■«£ ’*V //. Mr í > i —<^1: - % \ v , § -í f A^tri EiríÁsstHo 16. ágúst 1966 Hverra manna ertu? Það er ekki ofsögum sagt að ættfræðiáhugi hafi fylgt Islendingum frá landnámi. Ættarhringur er persónuleg gjöf - tilvalin tækifærisgjöf. Hjónahringir, stórir og litlir ættarhringir og tækifæriskort. 10% afsláttur af hjónahringjum og stórum ættarhringjum til 1. ágúst 2011. Sjá nánar á www.aettarhringur.is Nánari upplýsingar: aettarhringur@gmail.com - Sími 864 2728 L / 1- • C. r- % % '^rieáistíÁ^ 1 -*|p .\S t,f $ ^ ÍJ QjihjQj) % sV % vaí v ii - * / \> % ÆTTARHRINGUR áJtteOri, Kæru íbúar og góðir gestir á Frönskum dögum 2011 í mínu fyrra starfi hér í Fjarðabyggð fékk ég oft góða gesti og skapaðist sú venja hjá mér að eftir að gestirnir höfðu lokið sínu erindi var farið í stutta ferð um sveitarfélagið til að sýna viðkomandi bæjarkjarnana hér í Fjarðabyggð. Lagði maður sig fram við að segja frá sögu staðanna, at- vinnu- og mannlífi þeirra. Gestum mínum þótti ávallt merkilegt að koma til Fáskrúðsfjarðar, ekki síst fyrir þær sakir að á skiltin við göturnar var ritað á frönsku tungumáli og staðreyndir um tengsl Fáskrúðsfjarðar og Frakklands og þá sér í lagi franska bæjarins Gravelines þóttu merkileg. Stundum var komið við á Franska safninu þar sem upplifunin undirstrikaði þessa merkilegu sögu. Mittfyrsta verkefni sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar var að fara á hátíð íslandssjómanna í Gravelines á síðastliðnu hausti. Ég verð að segja að þá áttaði ég migfyrst af alvöru á þessum miklu tengslum, þessari merkilegu sögu og þeim miklu tilfinningum sem Frakkar bera til Fáskrúðsfjarðar, sögunnar og þessara samskipta. Franskir dagar á Fáskrúðs- firði eru því gríðarlega mikilvæg hátíð til þess að minnast veru franskra sjómanna við íslandsstrendur og á Fáskrúðsfirði og styrkja tengslin enn frekar á vettvangi vinarbæjarsambanda. Eins og öllum íbúum er kunnugt um eru fyrirhugaðar framkvæmdir Minja- verndar við endurbyggingu Franska spítalans og var spítalinn fluttur frá Hafnarnesi inn í þorpið síðastliðið haust. Ljóst er að þessi metnaðarfulla endurbygging mun verða gríðarleg lyftistöng fyrir samfélagið á Fáskrúðs- firði og Fjarðabyggð alla til fram- tíðar þar sem endurbyggingin mun skapa umgjörð fyrir aukna atvinnu- starfsemi tengda ferðaþjónustu með nýju hóteli og veitingaað- stöðu, að ógleymdu nýju safni sem hin endurnýjuðu húsakynni munu hýsa. Þá mun endurbyggður spítali, læknishúsið og kapellan mynda eina sýnilega heild og gera þannig sögu og minningu þeirra frönsku sjó- manna sem fórust við íslandsstrendur góð skil inn í framtíðina. Ég vil fá að nota tækifærið hér til að þakka forráðamönnum Minjaverndar fyrir þann mikla áhuga sem þeir hafa sýnt þessu verkefni og staðfestu með áætlunum sínum um þessa endurbyggingu alla. Um leið og ég óska öllum hátíðargestum góðrar skemmtunar á Frönskum dögum vil ég minnast á mikilvægi þessarar hátíðar fyrir okkur íbúana sjálfa þar sem við komum saman, gleðjumst og tökum á móti góðum gestum. Það er gríðarlega mikilvægt að við höldum áfram að efla hátíðina enn frekar, menningar- og mannlífi á Fáskrúðsfirði og í Fjarðabyggð til heilla. Mínar bestu kveðjur og með von um góða skemmtun á Frönskum dögum. 3

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.