Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 23

Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 23
Franskir dagar - Les jours franqais Tartalettur með lúxusfyllingu 12-15 tartalettur 200 g rækjur 100 g smurostur, t.d. rækjuostur 1 bolli soðin hrísgrjón 2 msk. majónes 3 msk. ananaskurl 2 eggjarauður 3 msk. saxaður spergill 1/2 tsk. Aromat 2 eggjahvítur 1/2 tsk. Season-AII 50 g rifinn ostur 1 tsk. karrý Hrærið saman smurosti, majónesi, eggjarauðum og kryddi. Bætið rækjum, hrísgrjónum, ananas- kurli og sperglum út í. Blandið vel saman og skiptið niður á tartaletturnar. Stífþeytið eggjahvít- urnar, bætið ostinum út í og smyrjið yfirfyllinguna. Bakið við 180° í u.þ.b. 10 mínútur. Skessuskot Botnar: 4 eggjahvítur 150 gsykur 50 g púðursykur 1 tsk. lyftiduft 2 bollar rice crispies Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Blandið lyftidufti og rice crispies saman við en passið að hræra ekki mikið eftir að allt hráefnið er komið í skálina. Setjið í tvö form og bakið við 160°c í 45 mín. Krem: 4 eggjarauður 60 gflórsykur 50 g smjör 150 g súkkulaði Vz dl Amarulla líkjör Þeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til blandan er Ijósgulleit og loftkennd. Bræðið saman smjörlíki og súkkul- aði og blandið saman við eggjarauðurnar. Að lokum er Amarulla bætt útí og hrært vel. Á milli: 300 ml þeyttur rjómi Jarðarber, vínber, bláber, Nóa kropp Samsetning: Setjið annan botninn á disk og smyrjið ca % af kreminu ofan á botninn. Setjið þeyttan rjóma ásamt niðurbrytj- uðum berjum þar ofaná og lokið með hinum botninum. Látið afganginn af kreminu drjúpa yfir kökuna ogskreytið með Nóa kroppi og ávöxtum. Pallíettuísterta með hindbeijum úr Hallormstaðarskógi Botn 4 eggjahvítur 200 gsykur 200 g kóksmjöl 250 g rjómasúkkulaði Þeytið eggjahvítur og sykur, bætið hinu við og bakið í spring- formi I 30 mín. við 150°C. Vanilluís 4 eggjarauður 4 msk. sykur 2 tsk. vanilludropar 1/2 I rjómi 150 g hindber Þeytið eggjarauður og sykur bætið dropum í. Þeytið rjóm- ann og blandið honum og berjunum við eggjahræruna og setjið þetta ofan á kókos- botninn þegar hann er orðinn kaldur. Setjið svo í frysti. Þegar kakan er orðin frosin er kremi smurt á hana. Krem 2 Snikkers 50 g rjómasúkkulaði 1 msk. smjör 2 msk. rjómi Bræðið saman og látið kólna. Smyrjið kreminu yfir. Setjið aftur í frost og kakan er svo borin fram hálf frosin, það má svo skreyta hana með þeyttum rjóma og berjum að vild. 23

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.