Franskir dagar - 01.07.2011, Page 13
Franskir dagar - Les jours franqais
S öngskemmtun
í kirkjunni
TÓNLEIKAR í FÁSKRÚÐSFJARÐARKIRKJU FÖSTUDAGINN 22. JÚLÍ KL. 19.
Fram koma Þórunn Guðmundsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Bragi Bergþórsson og Bergþór Pálsson. Söngvararnir sameinast í áhuga sínum á íslenskri menn-
ingu og tónlistararfi. Því má búast við tvísöngslögum og þekktum ættjarðarlögum, en einnig verður brugðið á leik með frönskum barnalögum í þeirra
eigin útsetningum. Þá er Fáskrúðsfirðingurinn í hópnum og tónskáldið, Þórunn, líkleg til að koma á óvart með frumsaminni tónlist fyrir þessa tónleika.
Þórunn Guðmundsdóttir lauk einleikaraprófi á flautu og burtfararprófi
í söngfrá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún stundaði framhaldsnám í söng
í Bandaríkjunum. Þórunn hefur getið sér gott orð sem leikskáld og hefur leik-
félagið Hugleikur sett upp leikrit og söngleiki eftir hana. Þá hefur hún samið
þrjár óperur. Til gamans má geta þess að Þórunn á ættir sínar að rekja til
Tungu, langafi hennar og iangamma voru Páll og Elínborg.
Eyjólfur Eyjólfsson lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
í flautuleik og söng árið 2002. Næst lá leiðin til Lundúna þar sem hann
lauk M.Mus gráðu í óperusöng og frönskum Ijóðasöng frá Guildhall School
of Music. Hann býr nú og starfar í Hollandi.
Bragi Bergþórsson erfæddur árið 1981 i Reykjavík. Hann hófungurtón-
listarnám á fiðlu og píanó en söng í fyrsta skipti á sviði í barnakór í óperunni
Otello i íslensku óperunni árið 1992. Eftir nám við Guildhall School of Music
í Lundúnum starfar hann nú við óperuhús i Þýskalandi.
Bergþór Pálsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og fram-
haldsnám í Bandaríkjunum. Bergþór er löngu vel kunnur, hefur tekið þátt í
yfir 50 óperuuppfærslum, sungið á ótal tónleikum og haldið kynningar um
ýmis mál, m.a. borðsiði og raddgerðir í óperu.
13