Franskir dagar - 01.07.2011, Page 22
Franskir dagar - Les jours franqais
Myndir og texti: Albert Eiríksson
láturmildur
gúmmulaðisaumaklúbbur
Um alllangt skeið hafa gengið sögur I bænum um ein-
staklega veglegt kaffimeðlæti I saumaklúbbi nokkrum.
Þegardömurnarkoma saman, ertalið að réttirnir séu
yfirleitt ekki færri en klúbbmeðlimir. Blað Franskra
daga gerði innrás ogfékk þærtil að Ijóstra upp „broti
af því besta" sem galdrað hefur verið fram í gegnum
árin. Og gaman er að segja frá því, að tröllasögurnar
um kaffimeðlætið reyndust engar ýkjur - eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum.
Að grunninum til er klúbburinn, sem þær kalla Pallí-
etturnar, frá árinu 1983 og hefur komið saman allar
götursíðan. Til marksum það hve kökuáhugi kviknaði
snemma hjá þeim stöllum er þegar ein sagði frá því
þegar hún tíu ára gömul var að baka í fjarveru móður
sinnar og hringdi einu sinni sem oftar til Gerðu á sím-
stöðinni til að spyrja hvort matarsóti og natron væri
sama fyrirbærið. „Þetta varfyrirfarsímavæðinguna og
áður en hægt varað hringja í 118 ogfá þar upplýsingar
um allt milli himins ogjarðar." í dag eru aðeins tvær
konur í klúbbnum sem eru upphaflegu meðlimir hans,
fólkflytur í burtu eða snýrséraðöðrum málefnum og
einn kær klúbbfélagi hefur kvatt þennan heim, langt
fyrir aldur fram.
Sumarlega klæddar „Palliettur", frá vinstri:Jóna Björg Júnsdúttir, Steinunn Björg Elisdúttir, Eyglú Aðalsteinsdóttir, Dagný Elisdóttir, Elsa
Sigrún Elisdúttir, Berglind Agnarsdóttir og Guöný Elisdóttir.
Saumaklúbbsfundir eru haldnir reglulega yfir vetrarmánuðina, þó aðeins
ef allar geta komið. Fljótlega eftir að klúbburinn hóf göngu sína, fóru þær
að leggja fyrir I ferðasjóð, en hafa aldrei látið verða af því að að drífa sig
í ferð. Þær gantast með að hugsanlega verði ekkert úr ferðalagi fyrr en í
rútuferð með eldri borgurum, þegar þær verða komnar á þann aldur. Miðað
við söfnunartímann má ætla, að það verði að minnsta kosti nokkrir hringir
i kringum landið!
En hvers konar rétti bjóða þær aðallega upp á? „Við erum sko enginn heilsu-
klúbbur, Albert minn, hér eru hvorki hundasúru- né arfaréttir I þínum stíl á
Þær sauma, prjóna, heklaogmargtfleira og leggja miklaáhersluáaðstandaundirnafnisemsaumaklúbbur.
22
boðstólum, við borðuðum nefnilega yfir okkur af hundasúrum í æsku," segja
þær sposkar og geta ekki haldið niðri í sér hlátrinum. „Við erum sko ekki
neitt á leiðinni í neitt bio fæði. Flér er aftur á móti kjörinn vettvangur til
að prófa nýja rétti og við skeytum hvorki um skömm né heiður þegar kemur
að kaloríum eða transfitusýrum. Eina skilyrðið er að gúmmulaðið sé gott!"
Það lá því beint við að spyrja hvernig stæði á því að þær héldu sér svo fínum
í vextinum? „Við erum í rauninni svínfeitar, við erum bara svo miklir snill-
ingar I að klæða það af okkur!" Og nú ætlar allt um koll að keyra, hlátrasköllin
fara I kollhnísa út eftir götunni.
Umræðuefnin voru afar fjðlbreytt allt frá Rafha ofnskúffum til giftinga til fjár.