Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 31
Franskir dagar - Les jours franqais
V
Mynd: Jóhanna K. Hauksdóttir
Til eru heimildir um mann er hugðist setjast að í Skrúði og leitaði allákaft
eftir því. Þetta var Björn Magnússon er nefndi sig Skrúð, hann var frá Brim-
nesi i Fáskrúðsfirði. Björn var um skeið í þjónustu Dana við verslunarstörf
á Austurlandi og fékkst m.a. við að leiðbeina skipum milli hafna. Veturinn
1786-87 var hann í Kaupmannahöfn og leitaði þá fast eftir þessari stað-
festu með ýmsum rökum er koma fram í bréfaskriftum hans til kóngsfeðga,
Kristjáns VII og Friðriks prins, og rentukammersins. í þessum bréfum rök-
styður hann beiðni sína með ýmsu móti. í fyrsta lagi telur hann sig ekki
hafa möguleika á að stofna til hjúskapar nema hann hafi jarðnæði, þar eð
breyttir verslunarhættir Dana muni hafa í för með sér að hann missi atvinnu
þá er hann hafði áður. í öðru lagi lýsir hann möguleikum þeim sem í Skrúði
séu til búskapar, tryggur útigangur fyrir fé, stutt til miða og nytjar affugli.
Og í þriðja lagi reynir hann að telja viðtökumönnum bréfa sinna trú um að
full þörfséá að hafa hafnsögumenn til leiðbeiningar við Austfirði í þoku og
dimmviðrum, bendir á reynslu sína í þeim efnum og staðhæfir að hvergi sé
slíkur maður betur staðsettur en einmitt í Skrúði.
NæsttekurStefán amtmaður Þórarinsson á Möðruvöllum við þessu erindi til
frekari athugunar. Amtmaður var, eins og reyndar hinir dönsku embættismenn
er um málið fjölluðu, hlynntur því í fyrstu að málið næði fram að ganga, en
þeir er hagsmuna áttu að gæta í eynni, svo sem ábúandi Vattarness, Guð-
mundur Pálsson umboðsmaður Skriðuklaustursjarða og séra Jón Stefánsson
í Vallanesi, snerust harðlega gegn erindinu. Jón Sveinsson sýslumaður veitti
þeim lið, taldi hann umsókn Björnsfurðulega því að Björn væri nákunnugur
eynni og vissi vel um þau vandhæfi öll sem þar væru á búsetu. Björn mundi
í raun og veru vera að sækjast eftir nytjum eyjarinnar í eggjum og fiðri, en
þó líklega ekki nein alvara með þessari fyrirætlun.
Þessu sérstæða máli lauk með því að embættismenn í rentukammerinu
féllust á afstöðu amtmanns og sinntu ekki frekar erindi Björns.