Franskir dagar - 01.07.2014, Side 5

Franskir dagar - 01.07.2014, Side 5
mnnMmonR ~ LöJOiKmnngffi Gamli bœrinn á Nautabúi í Skagajirði sem Anna ólst upp t. A Hafranesi vorið 1965. F.v. Ragnar Þorsteinsson Þemunesi, Anna Björk, Jón Helgi Asmundsson Koljreyjustað og Vtðir sonur Onnu. skyldan flutti í Þernunes. Faðir hans, Kristinn Jónsson, var frá Ausu í Borgarfirði syðra og móðir hans Sigríður Gísladóttir úr Suðursveit. Ur varð að Kristinn og fjölskylda fluttu frá Þernunesi í Hafranes 1940 og Þorsteinn Björnsson og Lovísa Einarsdóttir, sem bjuggu á Hafranesi, fluttu inn í Þernunes. „I Eyjum þekkti ég vel Gunnar bróður Sigga og hans konu. Þau sögðu mér að Sigurður væri að leita sér að ráðskonu um sumarið og ég sló til. Þar með voru örlögin ráðin. Á Hafranesi var ég í 9 ár og eftir það á Búðum í 23 ár.“ inn og Sigríður, voru hætt búskap en bjuggu þar áfram í skjóli sona sinna. Tíu barna Kristins og Sigríðar komust til fullorðinsára." Aðallega var sauðfé á Hafranesi þegar Anna kom þangað, nokkur hundruð kindur. Kýr voru aðal- lega fyrir heimilið en á sumrin var seld mjólk suður að Búðum. Þar voru auk þess þrír hestar, hænur og endur. Sigurður hafði áður stundað útræði en var hættur því og byrjaður í vegagerð með eigin vörubíl á sumrin og var það árin sem þau voru á Hafranesi. Hvernig var fyrsti dagurinn á Haffanesi? segir Anna og bætir við að mesta fjölmenni hafi verið á öllum bæjum fyrir norðan fyallið, tvíbýli á Eyri og Kolmúla og fjórbýli á Vattarnesi. „Þetta var skemmtilegt samfélag, mér var vel tekið og eins og gengur var margt öðruvísi en ég var vön.“ Kosningadagar voru stórir dagar í sveitinni. Um mánuði eftir að Anna kom austur voru kosningar til alþingis. Kosið var á Hafranesi, Kristinn var formaður kjörstjórnar og Sigurður tók seinna við af honum. Allir af bæjunum komu, bæði börn og fullorðnir, á kjörstað. „Ég hafði kaffi og með því handa öllum. Kona ein kom til mín eftir á og spurði á hvaða kvennaskóla ég hefði farið. Hún var svo ánægð með kaffimeðlætið að ég hlaut að hafa farið á kvennaskóla en svo var nú ekki.“ Anna og Sigurður eignuðust Jón Víði í ágúst 1960. Þau giftu sig 17. desember sama ár og þá var sonurinn skírður. „Við ætluðum að gifta okkur 1. desember en veðrið leyfði það ekki. Stuttu eftir giftinguna fór að snjóa þannig að Staðarskarðið lokaðist og opnaðist ekki fyrr en næsta vor. Það var ekkert í kringum brúðkaupið en bún- aðarfélagsfundur var á Hafranesi um kvöldið. Þeir funduðu uppi og komu niður á eftir í kaffi, karlarnir undruðust glæsilegt kaffimeðlæti og spurðu hvert tilefnið væri og fengu þá að vita af giftingunni." Kennslukonudraumurinn rætist Fyrsta veturinn fyrir austan var farkennsla, þá kenndi Bjarni Jónsson frá Grófargili á Völlum, síðan kenndu Guðlaug Þorsteinsdóttir á Þernu- nesi og Magnús Stefánsson á Berunesi sitt hvorn veturinn og eftir það vantaði kennara. Siggi var þá í hreppsnefnd og úr varð að ákveðið var að ráða Onnu til að kenna á Hafranesi haustið 1962. Anna kenndi í þrjá vetur og eftir það var kennt í Tunguholti. Þegar Anna kom í Hafranes var búið í öðrum endanum á stóra steinhúsinu sem byggt var 1913 en hinn endinn var orðinn einskonar geymsla. Lengst af bjuggu tvær fjölskyldur í húsinu og um tíma bjuggu þar fjórar fjölskyldur. „Þegar ég kom í Hafranes voru þar þrír bræður, Sigurður, Jón og Gísfi. Foreldrar þeirra, Krist- „Fyrir það fyrsta þá var ég algjörlega óvön sjónum. Fyrsta morguninn kom Gísli inn með spriklandi rauðmaga sem hann skellti í eldhúsvaskinn - ég rak upp stór augu. En hann sýndi mér handtökin og rauðmagaverkunin og fjölmargt annað lærðist smátt og smátt - eftir þetta fannst mér vorið vera komið þegar fyrsti rauðmaginn kom. Annað eftirminnilegt atvik varð þennan fyrsta dag sem var 20. maí árið 1959. Mér varð litið út um eldhúsgluggann og sá mannlausan bíl koma keyrandi niður að húsinu. Það var sama hversu mikið ég rýndi, ég sá engan við stýrið. Þá var þetta Borgþór á Kolmúla, ellefu ára gamall, sem kom keyrandi á jepp- anum inneftir. Kolmúla- krakkarnir fengu að keyra jeppann þegar þeir náðu niður á olíugjöfina. Eitt af því sem ég lærði á Hafranesi var að sjóða ábrysti úr sauðabroddi, hann hafði ég ekki smakkað áður en ég kom austur,” Steinhúsið á Hafranesi, byggt 1913. Annan veturinn sem Anna bjó á Hafranesi keypti Guðjón á Kolmúla nýjan bát og reri pá út frá Hafranesi en mjög gott skipalægi er par, Siggi reri með honum í nokkurár. Bryggjan brotnaði undan hafís 1964 ogpá var smíðuð ný bryggja. 5

x

Franskir dagar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.