Franskir dagar - 01.07.2014, Side 8

Franskir dagar - 01.07.2014, Side 8
fMIMRDMIt - m JOURS rRÍUlCnB Lengi voru rúturnar tvær. Önnur rútan fór í veg fyrir flugið en hin var að mestu notuð í hópferðir, stundum var farið með Leiknislið í keppnir, eða með hljómsveitir til að spila á böllum. Jón skildi aldrei við bílana á kvöldin nema allt væri í lagi í þeim. Hann eyddi ófáum stundum í að þvo og laga bílana. Lítið var um frístundir og þau bundin dag og nótt yfir rekstrinum. „Eftir að Víðir og Sigga stækkuðu fórum við í stuttar sumarferðir norður í Skagafjörð eða til Hornafjarðar.” Anna var í kvenfélaginu á Búðum, var þar lengi gjaldkeri og formaður í eitt ár. Hún var virk í kirkjunni, sóknarnefndarformaður um tíma og meðhjálpari síðustu árin. „Við stofnuðum félagsskap þegar ákveðið var að reisa dvalarheimili fyrir aldraða á Fáskrúðsfirði. Hópurinn var með vinnukvöld, var stundum heila helgi í skólanum og hélt basar í lokin. Við gáfum ýmislegt til heimifisins, meðal annars öll gluggatjöld og eitt og annað í eldhúsið. Heilan dag unnu kvenfélagskonur við að skafa móta- timbur á meðan húsið var í byggingu. Sjálfboða- liðar á vegum hópsins máluðu með málningu sem við gáfum.“ Ein jól voru öðrum eftirminnilegri. Á jólanótt árið 1988 fórst flutningaskipið Syneta við Skrúð. „Björgunarsveitin ræsti okkur út um klukkan hálf tvö. Við tókum ýmsan varning úr sjopp- unni, settum í rútu sem Jón fór á og hélt til í Skriðunum á meðan á leitinni stóð. Við létum þau hafa allt sem við gátum og vorum á vakt í sjoppunni þangað til seinni partinn á jóladag þegar leitinni lauk. Nokkrir skipverjar fundust með lífsmarki en létust fljótlega. Alls fórust tólf manns í þessu hörmulega slysi.“ Og enn verða kaflaskil Svo lauk sjoppu- og rútuævintýrinu og Anna og Siggi ákváðu að leggja niður fyrirtækið og flytja. I byrjun febrúar 1991 fluttu þau í íbúð í Breiðholti sem þau keyptu nokkrum árum áður. „Við seldum rúturnar 1986 og Indriði Margeirs- son tók við akstrinum. Fljótlega hættum við með flugafgreiðsluna og bensínafgreiðsluna." Jón keypti húsið Sólvang við Skólaveg og flutti þangað en Anna og Siggi fluttu suður. Anna Björk segir að þau hafi gengið að þessum flutningum eins og hverju öðru verki og þetta hafi verið enn eitt upphafið. Anna vann við að- hlynningu á hjúkrunarheimili eftir að hún kom suður, allt þar til hún fór á eftirlaun sumarið 2006. Tengdaforeldrar Önnu eru jörðuð í grafreitnum á Hafranest. Þegar Kristinn lést var útfórin frá Hafranesi, baði húskveðja og útfórin. Erfitt gat verið á vetrum að koma líkum yfirjf/allið til greftrunar á Kolfreyjustað, pess vegna var útbúinn grafreitur á Hafranesi. Daníel Sigurðsson(1830-1925) á Kolmúla varfyrstur grafinn ígrafreitnum í lok janúar 1925. Það varfóst trú manna hérlendis, að sá sem fyrstur væri grafinn í nýjum kirkjugarði yrði „vökumaður" hans. JÍtti hann að taka á móti öllum er stðar væru par grafhir og vaka stöðugt yfir garðinum. Bræðurnir Stefán og Jón á Berunesi erupeir síðustu sem voru grafhir ígarðinum. Tilboð um Franska daga. Frönsklauksúpa Hamborgaratilboð • Pizzatilboð Pylsutilboð • Rétturdagsins SÖLUSKÁLI S.J. FÁSKRÚÐSFIRÐI & 475 1490 SKYNDIBITASTAÐUR OG BENSÍNSTÖÐ VIÐ ÞJÓÐVEGINN OPNUNARTÍMI KL. 9-22 ALLA DAGA 8

x

Franskir dagar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.