Franskir dagar - 01.07.2014, Page 8
fMIMRDMIt - m JOURS rRÍUlCnB
Lengi voru rúturnar tvær. Önnur rútan fór í veg
fyrir flugið en hin var að mestu notuð í hópferðir,
stundum var farið með Leiknislið í keppnir, eða
með hljómsveitir til að spila á böllum.
Jón skildi aldrei við bílana á kvöldin nema allt
væri í lagi í þeim. Hann eyddi ófáum stundum í
að þvo og laga bílana.
Lítið var um frístundir og þau bundin dag og
nótt yfir rekstrinum. „Eftir að Víðir og Sigga
stækkuðu fórum við í stuttar sumarferðir norður
í Skagafjörð eða til Hornafjarðar.”
Anna var í kvenfélaginu á Búðum, var þar lengi
gjaldkeri og formaður í eitt ár. Hún var virk í
kirkjunni, sóknarnefndarformaður um tíma og
meðhjálpari síðustu árin.
„Við stofnuðum félagsskap þegar ákveðið var að
reisa dvalarheimili fyrir aldraða á Fáskrúðsfirði.
Hópurinn var með vinnukvöld, var stundum
heila helgi í skólanum og hélt basar í lokin. Við
gáfum ýmislegt til heimifisins, meðal annars öll
gluggatjöld og eitt og annað í eldhúsið. Heilan
dag unnu kvenfélagskonur við að skafa móta-
timbur á meðan húsið var í byggingu. Sjálfboða-
liðar á vegum hópsins máluðu með málningu
sem við gáfum.“
Ein jól voru öðrum eftirminnilegri. Á jólanótt
árið 1988 fórst flutningaskipið Syneta við Skrúð.
„Björgunarsveitin ræsti okkur út um klukkan
hálf tvö. Við tókum ýmsan varning úr sjopp-
unni, settum í rútu sem Jón fór á og hélt til í
Skriðunum á meðan á leitinni stóð. Við létum
þau hafa allt sem við gátum og vorum á vakt í
sjoppunni þangað til seinni partinn á jóladag
þegar leitinni lauk. Nokkrir skipverjar fundust
með lífsmarki en létust fljótlega. Alls fórust tólf
manns í þessu hörmulega slysi.“
Og enn verða kaflaskil
Svo lauk sjoppu- og rútuævintýrinu og Anna
og Siggi ákváðu að leggja niður fyrirtækið og
flytja. I byrjun febrúar 1991 fluttu þau í íbúð í
Breiðholti sem þau keyptu nokkrum árum áður.
„Við seldum rúturnar 1986 og Indriði Margeirs-
son tók við akstrinum. Fljótlega hættum við með
flugafgreiðsluna og bensínafgreiðsluna."
Jón keypti húsið Sólvang við Skólaveg og flutti
þangað en Anna og Siggi fluttu suður.
Anna Björk segir að þau hafi gengið að þessum
flutningum eins og hverju öðru verki og þetta
hafi verið enn eitt upphafið. Anna vann við að-
hlynningu á hjúkrunarheimili eftir að hún kom
suður, allt þar til hún fór á eftirlaun sumarið 2006.
Tengdaforeldrar Önnu eru jörðuð í grafreitnum á Hafranest.
Þegar Kristinn lést var útfórin frá Hafranesi, baði húskveðja og
útfórin. Erfitt gat verið á vetrum að koma líkum yfirjf/allið til
greftrunar á Kolfreyjustað, pess vegna var útbúinn grafreitur á
Hafranesi. Daníel Sigurðsson(1830-1925) á Kolmúla varfyrstur
grafinn ígrafreitnum í lok janúar 1925. Það varfóst trú manna
hérlendis, að sá sem fyrstur væri grafinn í nýjum kirkjugarði yrði
„vökumaður" hans. JÍtti hann að taka á móti öllum er stðar væru
par grafhir og vaka stöðugt yfir garðinum. Bræðurnir Stefán og
Jón á Berunesi erupeir síðustu sem voru grafhir ígarðinum.
Tilboð um Franska daga.
Frönsklauksúpa
Hamborgaratilboð • Pizzatilboð
Pylsutilboð • Rétturdagsins
SÖLUSKÁLI S.J. FÁSKRÚÐSFIRÐI & 475 1490
SKYNDIBITASTAÐUR OG BENSÍNSTÖÐ VIÐ ÞJÓÐVEGINN OPNUNARTÍMI KL. 9-22 ALLA DAGA
8