Franskir dagar - 01.07.2014, Qupperneq 11

Franskir dagar - 01.07.2014, Qupperneq 11
fMlMDAGM - LDJÖŒömnnCAB Endurfundir stelpnanna sem komu til Fáskrúðsjjarðar árið 1977. Þœr hittust í Toowoomba, Astralíu í september 2012. Frá vinstri: Lynette, Mystie, Denise, Christine, Susan, Roslyn, Donna. Susan með Gísla t Hótel Valhöll í júlí 2013. Mynd frá David McDonald. þjökuðu stundum samskiptin og er skondin saga af því þegar nokkrar ný- komar fóru niður í eldhús á fyrsta degi og spurðu ráðskonuna „Can we have breakfast?“ (Getum við fengið morg- unmat?) Ráðskonan horfði ringluð á móti. „Ha...vilja þær tala við Berg- kvist...?” I annað sinn kom í ljós að vanafesta okkar getur tekið öllu fram. Stelpurnar urðu fljótlega að gera sér Ijóst hverjir áttu sitt sæti í kaffistofunni og víðar. Þannig ætluðu tvær þeirra að skreppa með frystihúsrútunni inní Kaupfélag eftir vinnu og voru sestar, þegar einn af elstu starfsmönnum fyrirtækisins kom inní rútuna og sá sætið „sitt“ upptekið. Það var sko ekkert EXXKJUUSMÍÍ !!! Sá gamli settist einfaldlega í fangið á stelpunum og hreyfði sig ekki þaðan fyrr er var stoppað fyrir ofan Melgerði. Fréttin breiddist út og var „einkarétt- urinn“ ávallt virtur eftir það. Veturinn 1981 óskuðu stelpurnar eftir því að elda sinn mat sjálfar í stað þess að hafa matráðskonu. Orðið var við því, en varla var nægt rými í ísskápum fyrir allt sem þær vildu hafa hver fyrir sig. Tvær stelpur frá Astralíu töldu þetta ekki vera neitt mál, það vantaði ekki snjóinn og kuldann úti. Maturinn væri best geymdur úti í skafli. Þær urðu því heldur skrítnar á svipinn þegar fiskurinn þeirra varð úldinn og Emmess ísinn þeirra bráðnaði allur á stuttum tíma. I svona hópum var að sjálfsögðu að finna misjafnlega afkastamikla ein- staklinga. En heilt yfir reyndist þetta ágætur starfskraftur og voru jafnvel „bónusdrottningar" í sumum hópunum. Ymislegt var reynt til að halda í sína siði. Þannig var á sólbjörtum vordegi að stelpurnar vildu hafa „barbeque" og kveiktu sér eld í fjörunni neðan við Valhöll. Það var áður en grillmenn- ing okkar Islendinga varð til og skildi enginn í því þegar svartur reykur stóð upp af Valhöll séð ofan úr bæ á þessum góðviðrisdegi. Það varð því stelpunum heldur betur óvænt heimsókn þegar allt í einu birtust menn úr slökkviliði bæjarins til að athuga hvað væri í gangi. Oft var glatt á hjalla í Valhöll um helgar og það var alls ekki svo að stelpurnar vildu ekki blanda geði við annað fólk. Ymsar heimsóknir voru þó alls ekki viðeigandi og varð þeim ekki um sel þegar tveir góðglaðir menn á hestum heimsóttu stelpurnar og þegar útidyrnar voru opnaðar, þá skyldi hestur stinga hausnum fyrst inn. Samskiptin við heimafólk voru af öllum toga. Flest eldra fólkið í frystihúsinu átti í erfið- leikum með enskuna, en hlýlegt bros segir meira en mörg orð. Þannig eign- aðist Jói Gests margar vinkonur sem héldu sambandi við hann alla ævi. Það var ekki mikið sagt, en brjóstsykurpoki sem laumað var í sloppvasa, karamella sem hengd var í svuntuband eða lopa- vettlingar sem laumað var á kalda fingur sýndu hlýhug og vináttu sem var mikils metin. í fyrrasumar kom Susan Chisholm ásamt sambýlismanni sínum David í heimsókn til Fáskrúðsfjarðar. Susan var í fyrsta hópnum sem hingað kom 1977 og hefur hún staðið fyrir merkilegu starfi við að halda sambandi við þá hópa kvenna sem hingað hafa komið. Hún hefur stofnað fasbókarsíðu: Faskrudsfjordur Overseas Workers 1977 -1986 til að hafa uppi á öllum sem til þessa hópa tilheyrðu og hefúr orðið vel ágengt. Þannig komu nokkrar þeirra saman til endurfúndar í Ástralíu 2012 til að rifja upp gamla tíma frá Fáskrúðsfirði. Jólamaturinn í Valhöll 1978. Frá vinstri: Sharon, Val, Gaelyn, Maggie, Margret, Trudi, Ronni, Maxine. Myndfrá Maxine. Nokkrar stelpur úr hópnum sem kom árið 1977 á bryggjunni t morgunkaffipásu. Frá vinstri: Donna, Lynette, Denise, Mystie, Margret, Susan, Christine. Myndfrá Roslyn. 11

x

Franskir dagar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.