Franskir dagar - 01.07.2014, Page 14

Franskir dagar - 01.07.2014, Page 14
FRMlDMIt °o lCJOlKFRMCíffi Á síðasta ári komu 305 manns á launaskrá hjá Loðnuvinns/unni hf.,cn að meðaltali störfiðupar 177 manns. Þá greiddi fe'/agið 1,2 miUjarða í vinnu/aun til starfsmanna sinna. Brúttótekjur Loðnuvinnslunnar hf. árið 2013 voru 6 millj- arðar og hagnaður eftir skatta 541 mil/jón. Eigið féLoðnuvinnslunnar hf. íárslok2013 var3 millj- arðar, sem er53,7% afniðurstöðu efnahagsreiknings. Hagnaður Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga samkvæmt samstæðureikningi árið 2013 var 427 milljónir og eigiðféfélagsins társlok var2,7 milljarðar, sem er 98,8% eiginfiárhlutfall. Fiskimjölsverksmiðja LVF byggð 1995. arsson frá árinu 1995. Skipstjóri á skuttogar- anum Hoífelli þau tuttugu ár sem skipið var á Fáskrúðsfirði var Högni Skaftason. Sérstakir útgerðarstjórar hafa verið íjórir: Jón Erlingur Guðmundsson 1972-1976, Gunnar Jónasson 1976-1981, Eiríkur Ólafsson 1981-2006, og Kjartan Reynisson frá árinu 2006. Hinn 12. maí árið 1978 tók Gunnar Jónasson stjórnarformaður KFFB fyrstu skóflustunguna að nýju verslunar- og skrifstofúhúsi félagsins að Skólavegi 59. Húsið er á þremur hæðum og er gólfHöturinn samtals 1500 fermetrar. Verslunin var flutt í húsið frá Tanga um miðjan nóvember árið 1980 og skrifstofúrnar íjúh' árið 1985. Mikil breyting varð til batnaðar í verslunarmálum Fá- skrúðsfirðinga þegar nýja verslunin að Skólavegi 59 var opnuð í miðju kauptúninu. En tímarnir breytast og þá þurfa fyrirtækin að aðlaga sig að nýjum aðstæðum. Með bættum samgöngum og tilkomu stórmarkaðanna áttu litlar dreifbýlis- verslanir stöðugt á brattann að sækja. Einingin var of lítil og hafði ekki eðlilegan rekstrargrundvöll. Finna varð henni stað í stærri verslunarrekstri til að freista þess að lækka vöruverðið. Frá 1. janúar árið 2000 var verslunin leigð til Kaupfélags Hér- aðsbúa, en árið 2009 tóku Samkaup hf. við henni °g leigja hana í dag. Hefúr þetta fyrirkomulag í verslunarmálum á Fáskrúðsfirði reynst ágædega. Um 1990 var keyptur 26 metra stálbátur frá Hvammstanga sem fékk nafnið Búðafell SU 90. Búðafell var gert út á rækju og línu í um þrjú ár. Báturinn var lengdur um 4 metra í Gdynia í Pól- landi. Hann var svo seldur til Hafnarfjarðar og fékk nafnið Lómur HF 177. I árslok 1993 var Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar hf. sameinað Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga, enda nær alfarið í eigu þess. Astæða sameiningarinnar var sú að ný lög um innlánsdeildir litu dagsins ljós og í nýju lögunum var kveðið á um aukið eigið fé hjá félögum sem ráku innlánsdeildir. Til þess að KFFB þyrfti ekki að leggja niður innlánsdeildina var brugðið á það ráð að sameina félögin og skapa með því eiginfjárstöðu sem myndi uppfylla hin nýju lagaskilyrði. Innlánsdeildirnar voru kaup- félögunum mjög nauðsynlegar, en þær áttu sinn 14 þátt í því að tryggja félögunum eðlilega lausa- fjárstöðu. Árið 1994 var stofnað fyrirtækið Loðnuvinnslan hf. af kaupfélaginu og fleiri aðilum, sem hafði það að markmiði að reisa 1000 tonna fiskimjölsverk- smiðju á Fáskrúðsfirði. Verksmiðjan var byggð árið 1995 og tók til starfa í janúar 1996. Bygg- ing verksmiðjunnar hafði mikil áhrif á íslenskan fiskimjölsiðnað á sínum tíma. Þar er sérstaklega til að taka að við verksmiðjuna voru reistir fjórir 32ja metra háir mjöltankar, þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Frá þeim er sjálfvirkur losunarbúnaður fyrir mjöl til útskipunar um borð í flutningaskip. Þá var verksmiðjan tölvuvæddari en nokkur önnur verksmiðja hér á landi. Afar vel gekk að fá hráefni í hina nýbyggðu verk- smiðju og var hráefnismagn hennar fyrstu árin frá 75.000 tonnum og upp í 123.000 tonn. Þetta hráefnismagn var langt umfram þær áætlanir sem gerðar höfðu verið um væntanlegt hráefni í verksmiðjuna. Mjög mikilvæg viðskiptatengsl sköpuðust t.d. við tvö útgerðarfyrirtæki í Vest- mannaeyjum, Berg hf. og ísfélag Vestmannaeyja hf. Þá hefúr verksmiðjan frá upphafi verið með hæst hlutfall íslenskra verksmiðja af hráefni frá erlendum skipum. I áætlunum var gert ráð fyrir þessum möguleika einkum vegna staðsetningar verksmiðjunnar. Þá er verksmiðjan að sjálfsögðu lykillinn að manneldisvinnslu á uppsjávarfiski sem verið hefúr stöðugt mikilvægari þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Loðnuvinnslan hf. hefúr t.d. í mörg ár verið nær eina fyrirtækið hér á landi sem fram- leiðir saltsíld. Bygging fiskimjölsverksmiðjunnar árið 1995 er eitt stærsta verkefni sem Kaupfélag Fáskrúðs- firðinga hefúr ráðist í. Hún var byggð á einu ári og störfúðu um 80 manns við bygginguna þegar flest var. Þó að hér hafi verið um hlutafélag að ræða var það kaupfélagið sem dró vagninn til enda. Ef ætti að byggja nýja verksmiðju í dag og gera hana sambærilega þeirri sem Fáskrúðs- firðingar hafa, myndu slíkar framkvæmdir ekki kosta undir þremur milljörðum króna. Árið 1997 kaupir kaupfélagið hlutabréfRagna- borgar sem hér hafði haft aðsetur í nokkur ár. Með kaupunum eignaðist kaupfélagið húseignir þær sem áður voru í eigu Pólarsíldar hf. I þessum húsum var komið upp frystihúsi fyrir uppsjávar- fisk og byggður frystiklefi og kæligeymsla. Einnig fylgdu með í kaupunum húseignir þær sem áður tilheyrðuTrésmiðju Austurlands hf. innst í kaup- túninu. Þá voru einnig keyptar húseignir Hilmis ásamt eignarlóð við Hafnargötu. Arið 1998 kaupir Loðnuvinnslan hf. fjölveiðiskip frá Irlandi sem fékk nafnið Hoffell. Þessi kaup voru mjög mikilvæg fyrir starfsemina vegna þess að þróunin var sú að uppsjávarskipin tóku að færast á færri og færri hendur og tilheyrðu nú fleiri ákveðnum verksmiðjum. Það fór því svo að erfiðara var að ná í hráefni fyrir verksmiðjuna en áður hafði verið. Hoffell var í fyrstu kvótalaust skip. Það aflaði sér veiðireynslu í kolmunna, makríl og lítilsháttar í norsk-íslenskri síld. Þá tókst að kaupa inn á skipið kvóta í íslenskri síld og loðnu. Fyrsta árið var Helgi Kristjánsson skipstjóri á Hoffelli, en þá tók Bergur Einarsson við skipinu og hefúr verið skipstjóri á því fram á þennan dag. Á árunum 1999-2000 varð stórfellt verðfall á mjöli og lýsi. Mjölverð lækkaði á skömmum tíma um 50% og lýsi um 60%. Þetta verðfall kom mjög illa við Loðnuvinnsluna hf. (fyrri) með sína nýju fiskimjölsverksmiðju og nýkeypt fjölveiðiskip. Þá var brugðið á það ráð að stofna nýtt fyrirtæld með sama nafni hinn 29. október 2001, sem tók Alda Oddsdóítir og Friðrik Guðmundsson kaupfélagsstjóri. til starfa 1. janúar 2002. Þá var sjávarútvegs- og viðhaldsstarfsemi kaupfélagsins ásamt Loðnu- vinnslunni hf. fyrri komið fyrir í hinu nýja félagi og þar með var KFFB orðið 83% eigandi að Loðnu- vinnslunni hf. seinni. Þessi tilhögun hefúr staðið fram á þennan dag og reynst vel fyrir byggðarlagið. Eignarhaldið á atvinnustarfseminni er í traustri eigu heimamanna í gegnum samvinnufélagið. Trúlega mun vera einsdæmi hér á landi að íbúar

x

Franskir dagar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.