Franskir dagar - 01.07.2014, Page 15

Franskir dagar - 01.07.2014, Page 15
miMDflGM ~ LEJOuKnmncnis Frá 80 ára afmæli KFFB. í liðlega 700 manna byggðarlagi eigi sjálfir jafn öfluga atvinnustarfsemi og hér um ræðir. Á árunum 2000-2001 var Hoffell lengt um 8 metra og gerðar á því umfangsmiklar endurbætur í Gdynia í Póllandi. Eftir þær breytingar ber skipið um 1430 tonn. Hoffell er mjög vel útbúið og hefur það verið aflasælt í gegnum árin. Hoffell bjargaði flutningaskipinu Olmu í nóvember2011 eftir að Alma hafði tapað stýrinu utan við Hornafjarðarós með 1500 tonn af freðfiski um borð og dró það til Fáskrúðsfjarðar. Á síðasta ári tók Loðnuvinnslan hf. á móti 40.500 tonnum af hráefni og framleiddi 15.750 tonn af afurðum. Aflamark Loðnuvinnslunnar hf. árið 2013 var tæplega 7500 þorskígildistonn, en á árunum 2012 og 2013 tókst að auka verulega við bolfiskkvóta félagsins. Enginn vafi er á því að samvinnufélagsformið hentar einkar vel til að halda utan um eignarhlut og aflaheimildir Loðnuvinnslunnar. Árið 2008 var hafist handa við að gera upp versl- unarhúsið Tanga í samstarfi við Húsafriðunar- nefnd. Húsið var gert upp sem næst upprunalegri mynd og var Stefán Björnsson fenginn til aðstoðar við skipulag þess. Stefán er fæddur í Tanga árið 1934 og alinn þar upp til 12 ára aldurs. Húsið er nú opið ferðamönnum og þar er saga hússins kynnt í máli og myndum. Þá hefur handverksfólk á Fáskrúðsfirði fengið aðstöðu í Tanga og selur þar varning sinn. Heiti þessa heimamarkaðar er Gallerí Kolfreyja. Þegar endurbyggingu Tanga var lokið var ákveðið að gera upp Wathneshús, sem er elsta uppi- standandi hús á Fáskrúðsfirði, byggt árið 1882. Wathneshús er frá tíma norsku bræðranna Friðriks og Ottós Wathne. Friðrik rak verslun á Fáskrúðsfirði, en Ottó stundaði þaðan síldveiðar. Bæði þessi hús em nú bæjarpiýði í kauptúninu og vitna um horfna tíð, upphaf byggðar á Búðum. Kaupfélagið hefiir ávallt smtt vel við bakið á ýmissi félagastarfsemi m.a. í íþrótta- mennta- menningar- og heilbrigðismálum og haft samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Þegar Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga fagnaði 80 ára afmæli sínu höfðu kaupfélagsstjórar þess verið 8 talsins. Björn I. Stefánsson 1933-1946, Einar G. Sigurðsson 1946-1949, Guðlaugur Eyjólfs- son 1949-1955, Helgi Vigfusson 1955-1956, Guðjón Friðgeirsson 1956-1969, Páll Jónsson 1970-1974, Einar Jónsson 1974-1975 og Gísli J. Jónatansson 1975-2013. Friðrik Mar Guðmundsson tók við starfi kaup- félagsstjóra l.september2013. Stjórnarformaður Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga er Steinn Björgvin Jónasson, en stjórnarformaður Loðnuvinnslunnar hf. er Lars Gunnarsson. Eg óska Fáskrúðsfirðingum innilega til hamingju með glæsilega atvinnustarfsemi. Megi hún halda áfram að blómgast og dafna. 15

x

Franskir dagar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.