Franskir dagar - 01.07.2014, Síða 23

Franskir dagar - 01.07.2014, Síða 23
fmffimwm ~ LDJOUffirmncnis skömmu fyrir skímina að drengurinn bæri föður- nafn sitt ef hann ætti að bera fyrra nafnið. Oljóst er hvernig sambandi Birnu við bamsfeður sína tvo var háttað, en samband barna hennar við feður sína var ólíkt. Jóhanna heför alla tíð þekkt föður sinn og umgengist hann og fjölskyldu hans en Guðmundur þekkti ekki til föðuríjölskyldu sinnar fyrr en nokkmm árum eftir fráfall Birnu. Hver þáttur Birnu var í þeirri tilhögun skal ósagður látinn. Birnu þótti afar vænt um börnin sín tvö og veitti þeim einstaka umhyggju og vernd. Hún tók því illa ef einhver hafði eitthvað út á þau að setja eða stríddi þeim, þá lét hún sko í sér heyra! Þrátt fyrir algengi þess að einstaklingar með þroskaskerðingu og/eða födun af einhverju tagi væm vistaðir á stofnunum á borð við Kópavogs- hæh fyrir miðja 20. öld tók Birna þá ákvörðun að ala dóttur sína sjálf upp á heimaslóðum sínum á Brimnesi og lagði hún hart að sér, ásamt Sólveigu uppeldismóður sinni, við að aðstoðajóhönnu við að læra hvort sem það var á bók eða heimilisstörf. Ljósmóðirin Birna Kristborg Birna lærði ljósmóðurfræði við Ljósmæðra- skóla Islands skólaárið 1951-1952 og varð það að hennar ævistarfi, en Búða- og Fáskrúðsfjarðar- hreppir styrktu Birnu til námsins. í útslaiftar- skírteini hennar fær Birna einkunnarorðin vel hæf til Ijósmóðurstarfa. Jóhanna bjó með móður sinni í Reykjavík á námstímanum og ættingjar hjálpuðu til við að passa stúlkuna þegar Birna sinnti námi og vöktum á fæðingardeild Land- spítalans. Birna var vel fiðin innan nemendahóps- ins og hafði yfir að ráða eftirsóknaverðri alúð og mikilli hæfni í samskiptum við hinar verðandi mæður. A námstímanum hélt Birna gjarnan uppi stuðinu, hún hafði gaman af því að dansa og dró aðrar námsmeyjar með sér í bæinn á böh. Hún stóð fyrir söngkvöldum og ýtti undir samveru hóps- ins sem nam saman í Ljósmæðraskólanum þetta ár. Þrátt fyrir gylliboð um starf á Landspítalanum að námi loknu, eflaust við betri aðstæður en þekktust í dreifbýl- inu, sneri hún aftur til Fáskrúðsljarðar og í bréfi dagsettu 5. maí 1953 sótti Birna um ljósmóðurstarf í Fáskrúðsfjarðar- ljósmóðurumdæmi. Starfið fékk hún og þar sinnti hún barns- hafandi konum af fagmennsku og öryggi þar til hún lét af störfum árið 1989. Mikilvægt er að nefna að fæðing- araðstoð og starfs- umhverfi ljósmæðra í dreifbýli var með Brimnes. öðrum hætti á miðri síðustu öld en það er í dag. Þá fæddu konur nær undantekningarlaust börn sín í heimahúsum með aðstoð ljósmæðra en ekki á sjúkrahúsum. Birna dvaldi oft á heimili hinna verðandi mæðra og annaðist þær fyrir og eftir fæðingar, ásamt því að sinna fjölskyldum kvennanna og húsverkum teldi hún þörf á því. Einnig sinnti hún heimavitjunum í nokkurn tíma eftir fæðingar. Birna var þeim mörgu unglæknum sem komu til starfa í Fáskrúðsfjarðarlæknishéraði afar tryggur leiðbeinandi í fæðingarhjálp og umönnun kvenna og barna. Afar vel var látið af Birnu sem ljósmóður og taldi hún ekkert eftir sér í þeim efnum þegar kom að erfiðum aðstæðum við störf hennar, hvort sem um var að ræða eigið heilsufar eða aftaka- veður sem gerði för hennar til kvennanna erfiða. Birna var farsæl í starfi og lagði natni í að ná til þeirra sem hún annaðist hverju sinni. Styrkleikar Birnu í félagslegum samskipmm nýttust henni vel í ljósmóðurstarfinu. Hún átti auðvelt með að gefa og einnig að þiggja og tók þátt í gleði og sorg hinna verðandi mæðra og fjölskyldna þeirra af virðingu, nærgætni og ómældri hlýju og samúð. Birna hélt ljósmæðraskrá yfir allar þær fæðingar sem hún sá um í starfi sínu sem ljósmóðir í Fá- skrúðsijarðarljósmóðurumdæmi. A 35 ára starfs- ævi í Fáskrúðsfirði tók Birna á móti 315 börnum. Fyrsta barnið sem hún tók á móti eftir að hún var ráðin var Borghildur Stefanía Olafsdóttir, þann 22. maí 1953, og það síðasta var Elvar Friðriks- son þann 12. maí 1989. Húsffeyjan Birna Kristborg Samhhða ljósmóðurstarfinu var Birna lykilmann- eskja í að reka og stjórna heimilinu á Brimnesi. Ásamt Birnu og börnum hennar voru þar búsett Guðmundur og Sólveig fósturforeldrar hennar og Þorgeir og Albert uppeldisbræður hennar. Eftir að Guðmundur og Sólveig féllu frá, árin 1970 og 1972, var Þorgeir með búskap á jörðinni og Albert var vinnumaður á heimilinu. Birna sá að mestu um verk innan heimilisins, og Þorgeir og Albert sáu um bústörfin utandyra. Mikill fyöldi barna og unglinga dvaldi á Brim- nesi á hverju sumri, en algengt var á þessum tíma að börn væru send í sveit. Flest barnanna sem dvöldu á Brimnesi að sumarlagi komu árlega fram á fullorðinsár. Þau voru sum hver systkinabörn Birnu ættuð frá Felli í Breiðdal en einnig voru þau mörg afkomendur Guðmundar og Sólveigar, fósturforeldra Birnu. Einhver þeirra höfðu engin ættartengsl að rekja til Brimness. Fjöldi heimilis- manna gat verið um 20 manns þegar mest lét yfir sumartímann. Birna bar ábyrgð á barnahópnum ef svo má segja. Þrátt fyrir að Þorgeir og Albert hafi haft mikið af börnunum með sér í vinnu þá var það Birna sem tók að sér að hafa yfirumsjón með öOu sem viðkom sumarbörnunum. Henni var mikið í mun að börnin þróuðu með sér gott verkvit og lagði sig fram við að kynnast börnunum með uppbyggilegum hætti, sýna þeim alúð og nærgætni og sinna þörfum þeirra. 23

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.