Franskir dagar - 01.07.2014, Síða 27
ntnnMDAGAit -> m joim^ ritAngAis
Konungsætt
4egg
175 g sykur
50 g hveiti
50 g kartöflumjöl
2 tsk. lyftiduft
Þeytið egg og sykur mjög vel. Bætið þurrefnunum varlega saman við.
Bakið í Rafha ofnskúffii (gömlu) við 250°C í u.þ.b. 10 mín.
KæMð. Skerið botninn langsum í 9, 7,5,3, og 1 cm lengjur.
Krem
2,5 dl mjólk
2 eggjarauður
35 g sykur
30 g hveiti
150 g smjör
45 g dökkt súkkulaði
Hitið mjólkina. Hrærið sykur og eggjarauður vel saman. Bætið hveitinu
saman við og hellið síðan sjóðandi heitri mjólkinni saman við en þeytið
vel í á meðan. Hellið þessu þá aftur í pottinn og hitið að suðu og hrærið
vel í á meðan svo verði ekki kekkir. Kælið.
Hrærið nú smjörið létt og ljóst, blandið því svo saman við.
Bræðið súkkulaðið.
Takið frá eins og 1 msk. til að skreyta með og bætið þá súkkulaðinu út
í. Eftir því sem meira súkkulaði er sett út í, því dekkra verður kremið.
Tertan sett saman:
Setjið breiðustu lengjuna á ílangan tertudisk. Smyrjið kremi á, þá næstu
lengju og svo koll af kolli.
Smyrjið kremi utan á tertuna og setjið þá ljósa kremið sem tekið var frá
í sprautupoka og sprautið fallegu munstri á hana.
Konfektterta
3egg
1 bolli sykur
% bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
75 g kókosmjöl
100 g brytjað dökkt súkkulaði
Þeytið vel saman egg og sykur. Bætið hveiti, lyftidufti, kókosmjöli og
súkkulaði saman við. Skiptið deiginu í tvo botna og bakið í um 20-25
mín. við 180°C.
Va 1 rjómi. Þeytið rjómann, setjið á milli botnanna.
150-200 g marsipan. Rúllið út marsipani og setjið yfir termna.
Hjúpur:
140 g súkkulaði
1 dl óþeyttur rjómi
Setjið í pott og bræðið á lágum hita - hrærið reglulega í.
Hellið yfir termna.
Konfektterta
Marsipanterta. Þessa tertuuppskriftfékk Sonja hjá Ingibjörgu Þórormsdótturpeirri góðu konu sem var
eins og allar hinar Þórormsdtetumar, mikill matgæðingur.
Marsipanterta
5 egg
150 g sykur
70 g kartöflumjöl
Vi tsk. lyftiduft
1 dl sérrý eða ávaxtasafi til að bleyta botninn.
Krem:
4 matarlímsblöð
Vi 1 rjómi (óþeytmr)
vanilla
1-2 msk. sykur
4 eggjarauður
100-150 g marsipan
1 dl þeyttur rjómi
Botn: Þeytið egg og sykur, bætið við kartöflumjöli og lyftidufti. Skiptið
deiginu í tvo botna og bakið við 180°C í um 20 mín.
Krem: Skolið matarlímið í köldu vatni og bræðið það í vatnsbaði ásamt
vanillunni.
Þeytið vel saman eggjarauður og sykur. Hitið rjómann í potti, rífið marsipanið
og blandið saman við rjómann þangað til það hefur samlagast.
Þá er heiti rjóminn settur út í eggjahræruna og hrærður smá stund og allt
sett aftur í pottinn og matarlími bætt við í mjórri bunu svo ekki komi kekkir.
Látið kólna um stund og blandið þá þeytta ijómanum saman við. Hellið
kreminu í kökuform, til að fá sömu stærð og á botnunum. Látið kólna í ísskáp.
Kakan sett saman: Setjið botninn á tertudisk, hellið helmingnum af sérrýi
eða ávaxtasafa yfir. Setjið kremið ofan á og loks hinn botninn. Vætið efri
botninn með restinni af sérrýinu.
Skreytið tertuna að vild, t.d. með útflöttu marsipani eða hverju sem vill.
27