Franskir dagar - 01.07.2014, Qupperneq 31

Franskir dagar - 01.07.2014, Qupperneq 31
riMMDMft ~ LMUIti f ftnnCAft Afmtelisnejhdin. Aflari röð fv. Ólafur Atli Sigurðsson, UnnarAri Hansson, Elvar Óskarsson, Óskar Þór Guðmundsson, Óskar Ingimar Gunnarsson. Fremri röð f.v. Guðrún Nielsdóttir, Brynja Rún Steinpórsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, formaður nefndarinnar, Svava Gerður Magnúsdóttir, sr. Jóna Kristin Þorvaldsdóttir. A myndina vantar Hildi Einarsdóttur. safnaðarfundurfyrir Búðasókn haldinn á Búðum. Fundarefni 1. Lesið símskeytifráprófasti svohljóð- andi: „Stjórnarráðið biður tilkynnt: Skipting Kol- freyjustaðarsóknar sampykkt. Kirkjugjöld skiptast frá fardögum 1913. Búðakirkja reist fyrir árslok 1914'. Undir öðrum fundarliðum var rætt um það hvar kirkjan ætti að rísa og ákveðið að hún yrði byggð á Alfamel, fengist til þess lóð. Sam- þykkt var að kjósa fimm manna nefnd til að standa fyrir byggingunni og hlutu eftirtaldir kosningu eins og fært er til bókar: Stefán, verslunarfulltrúi, Guðmundsson, Haraldur, prestur,Jónasson, Gísli, póstafgreiðslumaður, Högnason, Georg, læknir, Georgsson og Sveinn, trésmiður, Benediktsson. Síðan var leitað samskota til kirkjubyggingar- innar á fundinum. Nöfn þeirra þrjátíu sem tóku þátt í samskotinu voru skráð í bókina ásamt dagsverkum og upphæðum, sem námu samtals 77 dagsverkum og 305 krónum. Lóðina undir kirkjuna átti einn byggingarnefndarmanna, GísH Högnason. Þann 30. maí 1916 ritaði hann form- legt bréf til Búðasóknar þar sem hann tilkynnti að hann gefi Búðakirkju til fullrar eignar og umráða 9785 feta lóð úr landareign sinni. Síðar gafhann einnig land undir kirkjugarðinn og er það form- lega staðfest af erfmgjum hans sumarið 1923. Byggingarárið 1914 Arið 1914 var viðburðaríkt. Strax í janúar undir- ritaði Rögnvaldur Ólafsson (1874-1917), húsa- smíðameistari og byggingaráðunautur heima- stjórnarinnar, uppdrætti að Búðakirkju. Af öðmm kirkjum eftir Rögnvald má nefna Húsavíkur- kirkju, Bíldudalskirkju, Þingeyrarkirkju, Kefla- víkurkirkju og Hafnarfjarðarkirkju og eru þær tvær síðastnefndu ásamt Búðakirkju gjarnan kallaðar systurkirkjurnar þrjár. Biskup Islands, herra Þórhallur Bjarnason, segir frá því í Nýju Kirkjublaði 1915 að árið 1914 hafi verið eitt mesta kirkjubyggingarár í sögu Þjóðkirkjunnar. Sóknirnar tvær, Kolfreyjustaðarsókn og Búðasókn funduðu saman í apríl og úr varð að fyrrnefnda sóknin lagði til byggingar Búðakirkju alla inneign sína í hinum Almenna Kirkjusjóði að undan- skildum 230 krónum, eða 3482,35 krónur. Það lá á að safna fé fyrir júnímánuð því þá þurfti að greiða byggingarmeistara og steinsmiði, Oddi Guðmundssyni í Reykjavík 5500 krónur og þeir peningar urðu að komast sem fyrst með skipi suður. Meira fé þurfti til og varð söfnuðurinn að skrifa undir ábyrgðarskjal fyrir láni úr Kirkju- sjóðnum fyrir allt að 4000 krónum. Undirritaðri þótti nokkuð sérstakt að lesa eftirfarandi úr bréfi til prófasts ritað af afa hennar: Jlðpví er snertir undirskriftir undir ábyrgðarskjalið,pá áleit sóknar- nefndin enga pýðingu hafa að aðrir undirrituðupað, en fullveðja menn, og sömuleiðis áleit húnpað ekki nauðsynlegt að konur ábyrgðarmannanna skrifuðu undir skja/ið. Auk giftra kvenna og annarra, sem að áliti sóknarnefndarinnar engapýðingu hefir að skrifi undir nokkrar ábyrgðir, munu vera um 130 fullveðja menn í sókninni.” Þannig var nú við- horfið til kynjanna í þá daga. En að síðustu er þess óskað í bréfinu að erindi þetta berist áfram til biskups með strandferðabátnum í júh. Það er ekki alveg áreynslulaust að byggja upp safn- aðarstarf og reisa kirkju og það reyndi hinn nýi söfnuður á Búðum. Einhverra hluta vegna, sem ekki eru tilgreindir í Gjörðarbókinni, biðst nær öll byggingarnefndin lausnar frá störfiim í maí 1914. En áfram var haldið að reisa kirkjuna og fyrsti sóknarprestur við Búðakirkju, séra Haraldur Jónasson, var ráðinn til starfa. Hann hafði verið skipaður aðstoðarprestur 1910 til séra Jónasar Hallgrímssonar á Kolfreyjustað, en fékk góða kosningu í embætti sóknarprests þetta árið. Aðkoma fríkirkjusafhaðar Þann 8. nóvember 1914 var boðað til fundar. Fundarefni var erfiður fjárhagur við byggingu kirkjunnar og aðkoma fríkirkjusafnaðar á Fá- skrúðsfirði að henni. Þess er ekki getið hver var málshefjandi á fundinum, en útskýringin á bágri fjárhagsstöðu varð inngangur að þeirri uppá- stungu sem var borin fram samkvæmt Gjörðar- bókinni: „...vildi hann (málshejjandi) pvi skýra frá hver afstaða hins væntanlega fríkirkjusafn- aðar gteti verið ípví máli, ef samkomulagfengist, sem er, að peir vteru fúsir til að taka jafnan pátt í öllum kostnaði við kirkjubygginguna og árlegum kirkjugjöldum, eins ogpjóðkirkjumenn eða á annan sanngjarnan hátt eftir tillögumpjóðkirkjumanna. ” Þessi tillaga virtist koma fundarmönnum á óvart og frestaði sóknarnefndin frekari fundarhöldum um óákveðinn tíma. Þrem vikum síðar, 1. des- ember, var aftur boðað til fundar og aðalefnið var aðkoma fríkirkjusafnaðar að kirkjunni. Áður en það mál var tekið á dagskrá gat fundarstjóri mjög veglegra gjafa frá kvenfélaginu Keðjunni, sem var hvorki meira né minna en orgel í nýju kirkjuna og messuskrúði, altarisklæði, hökull og rykkihn. Þær kvenfélagskonur hafa heldur betur verið stórtækar í stuðningi sínum við kirkjuna og munað miklu um framlag þeirra. En eftir þennan fundarlið var orðið gefið laust um hugsanlegt samkomulag við fríkirkjusöfnuð. Páll kennari Pálsson bar upp tillögu studda af Jónasi Jónas- syni í Sjólyst þess efnis að samþykkt yrði að leigja fríkirkjusöfnuði afnot af Guðshúsinu með þeim skilyrðum að sá söfnuður tæki jafnan þátt í öllum kostnaði við kirkjuna og leigði hana til fimm ára í senn. Miklar umræður fóru fram en engin breytingartillaga var borin upp. Áður en gengið var til atkvæða voru þeir væntanlegu fríkirkju- menn viðstaddir spurðir hvort þeir ætluðu að taka þátt í atkvæðagreiðslunni, en því var svarað fyrir þeirra hönd að það myndu þeir ekki gera þó þeim fyndist þeir hafa rétt til þess þar eð þeir hefðu ekki enn sagt sig úr Þjóðkirkjunni. Var því næst gengið til atkvæðagreiðslu um tillöguna að viðhöfðu nafnakaUi og hvert nafn og atkvæði fært til bókar. Fór svo að tillagan var samþykkt með 48 gegn 37 atkvæðum. Reynt var að efna til samskota í lok fundar til að greiða skuld við Kirkjusjóð, en þar sem fundurinn hafði leyst upp eftir atkvæðagreiðsluna var ákveðið að fara með samskotaskjal til þeirra sem ekkert höfðu enn lagt til byggingarinnar. Vígsluárið 1915 Hlé varð á fundum hjá sóknarnefndinni á Búðum og næsti fundur færður til bókar þann 2. maí 1915. Var þar farið yfir bréf biskups og prófasts vegna fyrirhugaðs samkomulags fríkirkju- og Þjóðkirkjusafnaðar á Búðum. Biskup vildi ekki samþykkja lögmæti fundarins frá 1. desember, þar sem enginn fríkirkjusöfnuður hafði verið formlega myndaður og fór hann fram á það að beiðni um lán á kirkjunni kæmi frá löggiltum fríkirkjusöfnuði með staðfestum forstöðumanni. Biskup getur þess þó f lok erindis að hann sé alls ekki andvígur þeirri hugsun að söfnuðirnir tveir geti verið saman um kirkjuhúsið. Um bréf þessi urðu nær engar umræður, því nú hafði löggiltur fríkirkjusöfnuður verið stofnaður og var gengið aftur til atkvæðagreiðslu um tillöguna frá l.des- ember. Mikið fjölmenni hefur verið á þessum fundi og eru nöfn og atkvæði skráð þannig að 63 sögðu já við tillögunni um samkomulag við frí- kirkjusöfnuð, en 49 voru andvígir. Fimm dögum eftir þennan fund sendi ritari sóknarnefndar hinum nýja sóknarpresti bréf og óskar eftir því fyrir hönd nefndarinnar að kirkjan verði vígð hið fyrsta, orgel og messuskrúði væru til staðar, auk kirkjuklukku sem fengin var að láni frá Kol- freyjustað og ekkert lengur því til fyrirstöðu að taka kirkjuna í notkun fyrir börnin sem áttu að fermast um vorið. 31

x

Franskir dagar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.