Franskir dagar - 01.07.2014, Side 33

Franskir dagar - 01.07.2014, Side 33
ranffiraRDAGm ~ lcs jours rnnncnis 0, Herra, lát íheimipað mér hugfast jafnan vera að annastpund mér úthlutað svo ávöxt megi bera og lífs um tíð í trúnni að sá svo trúna verðlaun himnum á oss auðnist upp að skera. Velunnara hefiir kirkjan alltaf átt sem hafa lagt mikið af mörkum því oft hefur verið erfitt að fjár- magna viðhald á húsinu eða kaup á munum nema fyrir söfnunarfé eða lán. Velgjörðarfólk kirkj- unnar hefur verið henni ómetanlegur stuðningur. Arið 1989 var nýtt pípuorgel vígt, þriðja hljóð- færið sem BjörgvinTómasson, orgelsmiður smíð- aði og ári síðar voru gerðar breytingar á kirkj- unni og hún lagfærð töluvert. Björn Kristleifsson arkitekt, hafði umsjón með verkinu. Kirkjan var þá orðið friðað hús samkvæmt ákvæði þar um í þjóðminjalögum og allt unnið í samráði við Húsa- friðunarnefnd. Bekkir niðri voru endurnýjaðir, svo og gluggakarmar og hurðir fyrir kirkjudyrum. Stólar voru settir á kirkjuloft í stað bekkja, stoðir undir kirkjulofti klæddar að nýju og nýtt parket lagt á gólf í kirkjuskipi, en gólfið lagfært uppi og kirkjan öll máluð að innan. Sami arkitekt hannaði viðbyggingu sem Húsafriðunarnefnd samþykkti og er hún byggð til austurs, h'khúsið rifið og stækkaði kirkjan að grunnfleti um 35 fm. Þar er þjónusturými kirkjunnar með skrifstofu og fundaraðstöðu og var viðbyggingin tekin í notkun 1998. Búðakirkja / Fáskrúðsfjarðarkirkja Það sést við lestur fundargerða að upp úr miðjum áttunda áratugnum kemur nafnið Fáskrúðsfjarð- arkirkja oftar við sögu og var sóknarprestur áfram um það að nafnið tæki yfir. Hefúr sennilega skipt þar máli að önnur Búðakirkja er til, Búðakirkja í Ingjaldshólsprestakalli í Snæfells- og Dalasýslu. Sú kirkja er mun eldri, eða frá 1848, timbur- kirkja, sem var endurreist 1987. Má segja að nú sé nær eingöngu talað um Fáskrúðsfjarðarkirkju hér í byggð. Það sama gildir um nafnið á Búða- sókninni, það heiti hefur fyrir löngu vikið fyrir Fáskrúðsfjarðarsókn og í dag er sú sókn eina sóknin í Kolfreyjustaðarprestakallinu hinu forna. Alla tíð hefur söfnuðurinn látið sér annt um Fáskrúðsfjarðarkirkju og hafa margir lagt hönd á plóg við að sinna viðhaldi hennar og vinna hin ýmsu störf í þágu kirkju og safnaðar. Við kirkjuna hefur starfað mjög traust og áhuga- samt safnaðarfólk. Og við söfnuðinn er gott að þjóna, það getur sú vitnað um sem þetta ritar. Hafa aðeins fimm sóknarprestar verið starfandi frá vígslu hennar, en eftir tíð séra Þorleifs 1994, þjónaði séra Carlos A. Ferrer til ársins 2001 að séra Þórey Guðmundsdóttir tók við prestskap til 2009. Síðan hefur undirrituð verið sóknar- prestur safnaðarins. Kirkjan stendur á góðum grunni trúarinnar á kærleikann. Þó okkur mannfólkið skorti stundum þroska til að Hfa í þeim góða boðskap þá er kirkjan eftir sem áður tákn hans. Hún ber merki kross- ins í hönnun sinni, er krosskirkja þess kærleika sem umber, fyrirgefúr, fer ekki í manngreinarálit heldur metur alla jafnt. Megi okkur auðnast sú gæfa að lifa saman í þeim kærleika í Fáskrúðs- fjarðarkirkju. Heimildir: Gjörðarbók Búðasóknarfrá 1913 til 1990. Efni greinarfengið að mestu úrfundargerðum. Bygging húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði. Kristín Apústsdóttir. Kirkjur Islands, 20. bindi. Friðaðar kirkiur íAustfíarðarprófastdœmi, útg. Rvk. 2012. PORTDE GRAVEL!NES\ Mynd: Jóhanna Kristtn Hauksdóttir. n. u. : ■■ ■ ■ ■■ 5!..!! , A '■'■ í 33

x

Franskir dagar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.