Franskir dagar - 01.07.2014, Side 41
FWMntDMR °° uiJO*rmngffi
einnig til um tíðarandann. Frá stofnun til ársins
1970 var ávallt kosin skemmtinefnd fyrir hvern
fund. Dæmi um það sem var til skemmtunar var
kaffidrykkja og spjall, þá dönsuðu þær gjarnan
hver við aðra litla stund, vinsælt var að lesa upp
smásögu og ljóð og þær settu upp leikþætti eins
og ekkert væri. Og í einni fimdargerð frá árinu
1956 er tekið fram að þær hafi „hlustað á leikrit
sem hafði verið tekið upp á stálþráð” auk þess sem
þær sungu. Um svipað leyti ákveða félagskonur
að fara að hafa happadrætti. Fundarkonum gafst
kostur á að kaupa sér miða og allur ágóði af þessu
happadrætti skyldi renna í ferðasjóð því lengi
heffir mannskepnan haft þörf fyrir að ferðast og
sjá sig um í veröldinni. Enn er haft happadrætti
á ffindum og sömu miðar hafa verið notaðir frá
upphafi. Vinningar hafa verið af ýmsum toga
allt frá nælonsokkum upp í páskaegg.
Þá heffir kaffinefnd verið starfrækt síðan í árdaga
deildarinnar. A hverjum ffindi heffir verið boðið
uppá á kaffi og meðlæti og er það enn gert.
Fjáröflun Slysavarnadeildarinnar Hafdísar hefur
verið með ýmsum hætti í gegnum áratugina.
Löngum voru áheit ýmis konar mikil tekjulind,
það virðist sem það hafi verið all algengt fram
undir miðja síðustu öld að heita á Hafdísi og Hkast
til heffir það gefið góða raun því tekjurnar urðu
nokkrar. Þá héldu þær samkomur af ýmsu tagi. Á
árunum 1935 til 1950 var algengt að halda dans-
leiki og kaffisölu, þ.e. dansleik þar sem gert var hlé
og gestir dmkku kaffi og borðuðu kökur. Þá
héldu félagskonur skemmtanir þar sem leik-
þættir vom sýndir og tekið var lagið. Þær héldu
það sem þær kölluðu bögglakvöld, þá var boðið
í böggla sem útbúnir höfðu verið og innihéldu
gjarnan heimagerða hluti. Basara héldu félags-
konur h'ka bæði með kökum og handavinnu. Það
var gjarnan prjónað og heklað á ffindum og af-
urðirnar fóm svo á basar. Það kemur fram í einni
fondargerð frá árinu 1964 að erfitt var að halda
kökubasar, sem á þessu herrans ári var bara kallað
brauðsala, því að skortur var á hveiti og sykri til
baksturs. Þá vekur athygli körffidansleikur sem
haldinn var í Skrúði 1984, þá fylltu félagskonur
körfu með góðgæti og gjöffim og í körffirnar var
sett nafn konunnar sem útbjó körfona. Þá buðu
karlmenn í körfornar og fengu í kaupbæti einn
dans við dömuna sem gert hafði þá körffi sem
keypt var. Kemur fram að þetta hafi gefið drjúgan
skilding í kassann. Einnig heffir Slysavarnadeildin
Hafdís séð um kaffisölu á sjómannadag nánast
óslitið frá miðri síðusm öld. Fjáraflanir dagsins
í dag ganga mikið út á að baka og hafa umsjón
með kaffi fyrir fyrirtæki og stofnanir þegar óskað
er eftir, þá tekur deildin að sér að sjá um erfi-
drykkjur. Sú skemmtilega tilraun var gerð að
kaupa Candyflos-vél sem heffir aldeUis sannað
tilverurétt sinn því mörgum þykir tilheyra að fá
sér bleikt floss þegar halda skal hátíð. Er þessi
upptalning aðeins brot af því sem þessar vösku
konur hafa tekið sér fyrir hendur í því skyni að
afla fjár fyrir deildina.
En hvað verður svo um peningana, gæm ein-
hverjir velt vöngum yfir núna. Þeir hafa alltaf og
ávallt farið til slysavarna og til þess að bæta og
efla samfélagið á einhvern hátt. Lengi vel þurftu
Slysavamarkonur kátar við eldhússtörfin. Frá vinstri: Berglind Ósk Agnarsdóttir, Hrönn Önundardóttir, María Guðrún Jósepsdóttir,
Sóley Sigursveinsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir og Bjömfríður Fanney Þórðardóttir.
lEljf */? j ■ •J* £ ^ : 4Éí: /L:- *V Ijf i--• Æ
JL /JHj wr yrf j ’ i J
.iia ■ ‘ «. VH . V.- k- .1 ,1 1 ' ti
WÍÍPB \ umÆ „
mwT m
NHgM ■ ¥Æ ' Bt I r»i
Slysavamadeildarkonur í skemmtiferð til Homafjarðar sumarið 1963.
1 Svanhvít Guðmundsdóttir
2 Guðný Jónsdóttir
3 Anna Hildur Runólfsdóttir
4 Geir Björgvinsson btlstjóri, Neskaupstað
5 Guðrún Jónsdóttir
6 María Hrólfsdóttir
7 Ragnhildur J. Jónsdóttir
8 Guðrún Einarsdóttir
9 ?
10 Kristín Einarsdóttir
11 Sigrún Sigurðardóttir
12 Sigríður Ólafsdóttir
13 Herborg Bjamadóttir
14.Lovísa Einarsdóttir
15 Sigrún Daníelsdóttir
16. ?
17 Alberta Sigurjónsdóttir
18 Guðrún Guðmundsdóttir
19 Kristín Þórlindsdóttir
20 HlífKristinsdóttir
41