Franskir dagar - 01.07.2014, Síða 42

Franskir dagar - 01.07.2014, Síða 42
mnnMDMR ~ Lcjowrmncnis Óseyri, hús sem Slysavamadeildin Hafdís á í fe'Iagi við Björgunarsveitina Geisla ogRauða krossinn. deildir Slysavarnafélags Islands að senda hluta af innkomu sinni til höfuðstöðvanna og það gerðu Hafdísarkonur með glans og eiga sinn hlut í því að hafa byggt upp þetta öfluga félag sem í dag er Landsbjörg. En það allra fyrsta sem félags- konur lögðu áherslu á var að aðstoða sjómenn og útgerðafélög við að koma talstöðvum fyrir í öllum bátum. Þær lánuðu peninga til þess arna og jafnvel gáfú ef fátækt var mikil. Það var sam- þykkt á fúndi 1940 að „ganga ekki eftir því að skuldir verði greiddar”. Þá keypti deildin björg- unarhringi og stjaka á allar bryggjur sem þá voru mun fleiri en þær eru í dag. Félagskonum fannst mikilvægt að sjómenn og börn lærðu að synda. Því stóðu þær fyrir því að sundkennari kæmi austur og kenndi sund í Osnum og strax í kjölfarið áttu þær frumkvæðið að því að stofnaður yrði sundlaugarsjóður sem þær lögðu peninga í með reglulegu millibili þar til sundlaug reis í Búðaþorpi 1948 og nokkrum sinnum eftir það til lögðu þær til fjármuni til viðhalds. Allmikla peninga sendu Hafdísarkonur til Reykjavíkur í sjóð sem átti að nota til þess að byggja Björgunarskútu sem þjóna skyldi mið- unum við Austurland, einnig sendu þær peninga í sjóð til þess að kaupa þyrlu sem staðsett skyldi vera á Egilsstöðum, þyrlan var keypt en henni var komið fyrir annars staðar. En mesta áherslan hefúr ávallt verið á heimabyggðina. Hafdísarkonur áttu frumkvæðið að því að hér yrði stofnuð Björg- unarsveit og var hún formlega stofnuð 1966 og hlaut nafnið Geisli. Akveðið var að gefa Geisla 15.000 krónur í stofnfé sem voru miklir peningar þá. Allar götur síðan hefúr Hafdís staðið þétt við bak Geisla og gefið reiðufé, tæki og búnað til starfseminnar og hefur samstarf þessara félaga, sem eiga sér sama markmið, verið afar farsælt og gott og á stundum verið líkt og stóra systir og litli bróðir sem eru þó bæði orðin fúllorðin. í þakklætis- og virðingarskyni nefndi Geisli nýja björgunarbátinn Hafdísi. Önnur félagasamtök hafa h'ka fengið að njóta gjafmildi Hafdísar sem og stofnanir og breytir þá engu hvort heldur er um að ræða opinberar stofnanir eða einkareknar. Hafdís ásamt nokkrum öðrum félagasam- tökum og sveitafélaginu ákvað að stofna sjóð til byggingar félagsheimilis. I u.þ.b. tíu ár söfnuðu félagasamtökin pen- ingum og Skrúður var vígður árið 1963. Allar götur síðan hefúr Skrúður verið Hafdísar- konum kær og hafa þær ávallt borið hag þessa húss, sem á sér svo marga velunara, fyrir brjósti og gefið til hússins búnað, tæki og ómælda vinnu. Það yrði allt of langt mál að æda að telja upp alla sem notið hafa styrks frá Slysavarnadeildinni Hafdísi en til að gefa nokkra mynd af árangri starfs þessara kvenna má nefna að gefinn var búnaður í lögreglubíl og til slökkviliðsins, hjartastuðtæki hafa verið gefin í íþróttahús, sundlaug, björgunarsveitarbílinn og skólamiðstöðina. All nokkur tæki hafa verið gefin á Heilsugæslustöðina, eyru til að mæla hjóð- styrk gefin til Leikskólans Kærabæjar og árum saman hafa börnum verið gefin endurskinsvesti, reiðhjólahjálmar og fleira og fleira. Þá hafa eldri borgarar einnig notið góðs af göfúm Hafdísar- kvenna, bæði í félagsaðstöðu sinni í Glaðheimum sem og Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Upp- sölum. Þá hefúr deildin styrkt einstakhnga og íjölskyldur með peningagjöfúm þegar erfiðleikar hafa sótt að. Þegar lesið er yfir félagaskrá Slysavarnadeildar- innar Hafdísar má sjá að oft hafa stúlkur niður í 14 til 15 ára gengið í deildina, gjarnan dætur kvenna sem eru þar fyrir. Þannig hefúr kynslóð tekið við af kynslóð og á þann hátt náð að halda þessu aldna félagi atorkusömu og líflegu. Það er dýrmætar en orð geta lýst fyrir samfélag að hafa félagsskap, sem Slysavarnardeildin Hafdfs er, innan sinna vébanda. Félagskap sem hefúr það að markmiði að bæta og efla, göfga og styrkja nærumhverfi sitf í eins víðu samhengi og hugsast getur. En félagsskapur af þessu tagi er ekkert án kvennanna sem skipa hann og ekkert án sam- félagsins sem hann lifir í. Bæjarbúar hafa ávallt sýnt deildinni tryggð og stutt með ráðum og dáð. Það er algerlega ómetanlegt. Það fólk sem byggir samfélagið í Fáskrúðsfirði leggur grunn að starfsemi deildarinnar sem og konurnar sem með glöðu geði leggja tíma og orku til eflingar Slysavarnardeildinni Hafdísi, konurnar sem vinna verkin - þær lengi lifi. FOSSHOTEL 42

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.