Reykjavík - 27.06.2015, Qupperneq 8
8 27. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
ÚTTEKT
Ingimar Karl
HelgasonHverjir fá kvótann - 3. hluti
Tvær fjölskyldur – Tíu prósent
Í Grindavíkurbæ búa, samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar, 2.995
einstaklingar. í þessum hópi eru 11 manns eru lang stærstu eigendur
tveggja fyrirtækja þar í bænum. Þessi tvö fyrirtæki fá úthlutað einum
tíunda af fiskveiðikvótanum við Ísland. Þau heita Vísir hf. og Þorbjörn hf.
Á sjöunda hundrað manna starfa beint hjá þessum félögum er marka má
síðustu birtu reikninga þeirra.
Þrjú eiga Þorbjörn
Þorbjörn hf. fær úthlutað 5,49 pró-
sentum af heildarkvótanum við Ís-
land, samkvæmt yfirliti Fiskistofu.
Hluthafar í Þorbirni hf. eru á þriðja
tuginn. Þrír einstaklingar eiga hins
vegar mest, systkynin Gunnar, Gerður
og Eiríkur Tómasbörn. Eignarhluti
sína geyma þau í eignarhaldsfé-
lögunum Blika, Skagen og Tabula
Rasa. Hvert þeirra um sig á tæplega
þriðjungs hlut í fyrirtækinu. Hinir
eiga eðlileg minna. Systkinin stýra
fyrirtækinu sjalf. Tómas Þorvaldsson,
faðir þeirra, var á sinni tíð aðaleig-
andi Þorbjarnar sem síðar sameinaðist
Fiskanesi þar í bænum.
Rekstur í plús
Félagið gerir upp í evrum. Samkvæmt
síðasta ársreikningi Þorbjarnar, fyrir
árið 2013, var hagnaður af rekstri fé-
lagsins eftir skatta tæplega 700 millj-
ónir króna, og er þá miðað við gengi
dagsins. Árið áður nam hagnaðurinn
ríflega einum komma einum milljarði
króna.
Ef marka má reikning ársins 2013
var enginn arður greiddur til hluthafa
þá. hins vegar voru reiknaðar hátt í
300 þúsund evrur í arð til hluthafa
árið 2012, en sú upphæð nemur um
43 milljónum króna á gengi dagsins.
Stjórnunarkostnaður félagsins er ekki
sundurliðaður í ársreikningi, en hann
nemur um 150 milljónum króna á ári.
Miklar skuldir
Frá því var greint í fréttum upp úr
hruni að skuldastaða fyrirtækja í
sjávarútvegi væri alvarleg. Sérstak-
lega var fjallað um Grindavík í þessu
sambandi, en fjögur sjávarútvegs-
fyrirtæki þar skulduðu samtals 54
milljarða króna. Þorbjörn og Vísir eru
stærst í þessu sambandi. Samkvæmt
síðasta birta ársreikningi Þorbjarnar
skuldar félagið rúmlega 100 milljónir
evra eða sem nemur tæpum fimmtán
og hálfum milljarði króna. Árið 2013
fóru ríflega fjórir milljarðar króna af
tekjum félagsins í skuldir. Tæplega
þrír og hálfur milljarður króna árið
2012.
Mikil verðmæti
Ekki er gerð grein fyrir verðmæti alls
kvóta fyrirtækisins í reikiningnum.
Þar segir að óefnislegar eignir saman-
standi af „varanlegum fiskveiðiheim-
ildum“. Þær séu einungis eignfærðar
þegar „líklegt sé að hagrænn ávinn-
ingur muni nýtast félaginu og hægt
er að meta kostnaðarverð eignarinnar
með áreiðanlegum hætti“. Keyptar
aflaheimildir eru aftur á móti í reikn-
ingnum eignfærðar til fimmtán millj-
arða króna, eða þar um bil.
Hins vegar má ætla að virði alls
kvóta fyrirtækisins sé um það bil
þrisvar sinnum meiri en það. Sé miðað
við að heildarkvótinn við Ísland sé
800 milljarða króna virði, en gerð var
grein fyrir því í fyrsta hluta þessarar
úttektar, og miðast við líklegt söluverð
á kvóta Stálskipa í Hafnarfirði, má ætla
að virði kvóta Þorbjarnar sé um 44
milljarðar króna. Hvert hinna þriggja
systkina fær því úthlutað verðmætum
upp á hátt í fimmtán milljarða króna
hvert.
Var skráð félag
Þorbjörn er eitt þeirra sjávarútvegs-
fyritækja sem um tíma voru skráð í
Kauphöll. Fyrir árið 2003 var grein frá
því að fyrirtækið hefði skilað milljarði
króna í hagnað og að ríflegur arður
yrði greiddur til hluthafa. Fréttir um
þetta voru byggðar á tilkynningu til
Kauphallarinnar, en fréttir um afkomu
einstakra sjávarútvegsfyrirtækja eru
annars stopular og á heimasíðum fé-
laga segir gjarnan fátt um þessi mál.
Systkinin
Vísir hf. í Grindavík fær úthlutað rétt
rúmum fjórum prósentum af heildar-
kvótanum við Ísland. Á bak við þau
verðmæti eru nú ex systkini sem öll
eiga svo til jafnan hlut félaginu, að
undanskildum Páli Jóhanni Pálssyni,
alþingismanni, sem á minna.
Rétt er að taka fram að á hluthaf-
alista sem birtur er með nýjasta árs-
reikningi og vísað er til hér á síðunni
eru hluthafar nefndir átta. Hlutir í
eigu foreldra systkinanna eru þar
taldir með. Páll H. Pálsson lést fyrir
skömmu. Hann er skráður fyrir
eignarhlut í nýjasta ársreikningi líkt
og dánarbú Margrétar Sighvatsdóttur.
Verðmætir hlutir
Hvert systkinanna er í nýjasta reikn-
ingi fyrirtækisins skráð fyrir 13,6 pró-
senta hlut í fyrirtækinu. Sem fyrr segir
að Páli Jóhanni undanskyldum, en
hann er skráður fyrir 4,8 prósenta hlut.
Hann á að auki, eða kona hans öllu
heldur, sjávarútvegsfyrirtækið Marver,
sem hefur nýlega verið í fréttum vegna
úthlutunar makrílkvóta.
Fyrirtækið, gerir upp í erlendri
mynt eins og svo margar aðrar stór-
útgerðir, evrum. Varanlegar aflaheim-
ildir eru þar metnar til tæplega tíu
milljarða króna. Þær eru sagðar færðar
til bókar á kostnaðarverði. Með sömu
aðferð og nefnd var hér að ofan mætti
slumpa á að virði fjögurra prósenta af
heildarkvótanum við Ísland, sé ríflega
þrjátíu milljarða króna virði, hugs-
anlega meira. Miðað við eignarhluta
systkinanna eins og hann er skráður
í nýjasta reikning fyrirtækisins eru
það um 4,4 milljarðar króna á mann,
að undanskyldum Páli Jóhanni. Hlut
hans í verðmæti þess kvóta sem Vísir
fær úthlutað kynni að nema um einum
og hálfum milljarði króna.
Stjórnendur Vísis fengu í heildar-
laun og þóknanir í kringum 16 millj-
ónir króna á árinu 2013.
Tap og skuldir
Árið 2013 skilaði fyrirtækið um 150
milljóna króna tapi, samkvæmt reikn-
ingnum og er þar allt tekið til, fjár-
magnsgjöld og skattar. Árið á undan
var hagnaður af rekstrinum um 640
milljónir króna á gengi dagsins.
Raunar var bæði þessi ár umtalsverður
hagnaður af strípuðum rekstri fyrir-
tæksins. Um 800 milljónir króna árið
2013 og 1,6 milljarðar króna árið áður.
Skuldir eru hins vegar umtalsverðar
ríflega 18 milljarðar króna á gengi
dagsins, miðað við ársreikning 2013
og hafa farið lækkandi.
Ýmis umsvif
Vísir á stóra hluti í ýmsum félögum
og eru talin til dóttur- og hlut-
deildarfélaga í reikningnum meðal
annars VOOT Beita ehf í Grindavík.
Eignarhaldsfélögin Landvís og Saltvís
auk Haustaks í Grindavík. Þá á félagið
eignir í Kanada og Þýskalandi.
Þá eru tilgreindir eignarhlutar í
ýmsum fleiri félögum. Nefnan má
Ísfélag Grindavíkur, Seljabót ehf..,
Fiskmarkað Grindavíkur, hlut í Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur, hluti í Fisk-
markaði Þingeyrar og Fiskmarkaði
Húsavíkur. Hlut í Hótel Húsavík, hlut
í Stjörnu Odda ehf, Bernskunni ehf.
Lokanir og
flutningar
Fyrirtækið starfaði víða um land, en
lýsti því nýlega yfir að innlend starf-
semi yrði í hagræðingarskyni öll flutt
til Grindavíkur. Það hefur eðlilega haft
gríðarleg áhrif á fjölmargar fjölskyldur
á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi.
Var fólki boðin vinna í Grindavík og
meðal annars sagt í fjölmiðlum að
nóg væri af lausum íbúðum í blokk-
inni í Grindavík. Frá því var greint
í vefritinu Herðubreið í fyrravor að
Vísismenn hefðu í nafni óstofnaðs
hlutafélags gert tilboð í blokkina.
Blaðið hefur ekki fengið það staðfest..
Hluta af vanda Vísis mun mega
rekja til útrásar fyrirtækisins til
Kanada þar sem keyptur var stór
hlutur í kanadísku fyrirtæki Ocean
Choice, en áætlanir ekki allar gengið
eftir.
Yfirlit:
Þorbjörn hf.
5,49% af kvótanum
32,98% Blika ehf
93,34% Gunnar Tómasson
32,94% Skagen ehf
87,95% Eiríkur Tómasson
31,25% Tabula Rasa ehf
95,00% Gerður Sigríður Tómasdóttir
2,83% Aðrir
Vísir hf.
4,05% af kvótanum
13,60% Páll Hreinn Pálsson (látinn)
13,60% Pétur Hafsteinn Pálsson
13,60% Margrét Pálsdóttir
13,60% Svanhvít Daðey Pálsdóttir
13,60% Db. Margrétar Sighvatsdóttir
13,60% Kristín Elísabet Pálsdóttir
13,60% Sólný Ingibjörg Pálsdóttir
4,80% Páll Jóhann Pálsson
Þingmaður útgerðarinnar
Páll Jóhann Pálsson þingmaður Fram-
sóknarflokksins hefur vakið athygli
fyrir framgöngu sína, en oft hefur verið
bent á að hann fjalli beint um eigin
hagsmuni á þingi, til dæmis þegar
kemur að ákvörðun veiðigjalda.
„Það sem að ég hef sagt er að ég bauð
mig fram sem útgerðarmaður og sem
talsmaður sjávarbyggða og útgerða og
ég mér fannst það bara ekkert of mikið
að það væri einn af 63 þingmönnum
hérna úr útgerð. Mér sýnist nú í þessari
umræðu og nefndarstörfum að það
hafi ekkert veitt að því,“ sagði hann á
Alþingi sumarið 2013.
Þá átti Ögmundur Jónasson, þing-
maður Vinstri grænna við hann orða-
stað um hagsmunatengsl þingmanna
við útgerðarfyrirtæki og styrki til
stjórnmálaflokka.
Fram hefur komið að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkurinn
hafa undanfarin ár fengið yfir 9 krónur
af hverjum tíu sem sjávarútvegsfyr-
irtæki hafa greitt stjórnmálaflokkum
í styrki.
„Bjóst fyrrverandi ríkisstjórn, bjóst
háttvirtur Ögmundur Jónasson við því
að þegar hann kæmi inn í útgerðarfyr-
irtæki að menn færu að moka í hann
einhverjum styrkjum, eins og hann
var var búinn að koma fram. Ég er
ekkert hissa á því. Og hvernig hann
er búinn að tala í kvöld. Datt honum
í hug að hann gæti farið inn í þessa
atvinnugrein og fyllt hjá sér bækur,“
sagði Páll Jóhann enn fremur.
Ögmundur sagði:
„Við önnur reynum að reka aðra
hagsmuni, en við látum ekki greiða
okkur til þess. Og þegar að stórfyr-
irtæki í landinu eru farin að stjórna
stjórnmálum á Alþingi þá er hægt að
tala um það orð og nota það orð sem ég
notaði fyrr í kvöld, auðvald. Þá er auð-
urinn farinn að hafa vald inn í þennan
sal, og það er ekki gott.“
Eiríkur Tómasson frá Þorbirni hér til vinstri og Pétur H. Pálsson frá Vísi til hægri.
Bæði sjávarútvegsfélögn hafa lengi stutt íþróttastarf í Grindavík.
Mynd: Grindavíkurbær
Eitt af skipum Þorbjarnar við bryggju í Grimsby. Verðmæti kvótans sem Þor-
björn fær úthlutað hleypur á tugum milljarða krónar. Þrjár manneskjur eiga
bróðurpartinn í fyrirtækinu.
„Ég bauð mig fram sem útgerðar-
maður,“ sagði Páll Jóhann Pálsson
á Alþingi.