Reykjavík - 27.06.2015, Qupperneq 14
14 27. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Hjólabætum Ísland:
Gerum góða
hluti enn betur
Umferðin er okkar allra og er þannig allt lífið. Þegar maður fylgist með í fuglabjörgum
eða horfir á síldartorfur hreyfa sig, er
alveg magnað að sjá hvernig allir kom-
ist um án þess að lenda nokkurn tíma
saman. Best væri að það sama ætti við
í mannheimum. Öll dýrin í skóginum
væru vinir, full virðing og tillitssemi.
Oftast er það líka þannig þegar við
hreyfum okkur fyrir eigin orku en
svo er eitthvað sem gerist hjá okkur
mörgum, ef einhver verkfæri bætast
við sem koma okkur hraðar áfram.
Þó að einkabíllinn haldi gríðar-
legum yfirburðum þegar kemur að
mannsköðum í umferð og alltaf er
það mannskepnan sem heldur um
stýrið, þá hefur mörgum orðið bilt
við eftir að sjá allt í einu allt þetta fólk
á reiðhjólum í umferðinni. Að fá fólk
út úr bílunum og út að hjóla er hverju
samfélagi mikils virði. Fjölbreyttni í
umferðinni kallar á samvinnu og ef
hún er góð sköpum við í leiðinni aukið
umferðaröryggi fyrir alla.
Á vordögum tóku sig saman Hjóla-
færni, Landsbankinn, Tryggingafé-
lagið Vörður, Landsvirkjun, Rio Tinto
Alcan á Íslandi, Vínbúðin, Reykja-
víkurborg og reiðhjólaverslunin
TRI og veltu fyrir sér hvernig mætti
hjólabæta Ísland. Ávextir verkefnis-
ins hafa verið að birtast opinberlega
á nokkrum stöðum.
Strætó hefur ekið síðustu vikur með
mynd af þeim einföldu skilaboðum
að við látum hægri réttinn ná yfir alla
vegi, líka hjóla- og göngustíga. Eins að
gömlu táknmálin fyrir hjólandi eru
enn í fullu gildi. Svipuð mynd er núna
víða í borgarstöndum Reykjavíkur.
Sitthvað fleira á eftir að líta dagsins
ljós. Það þarf heilt þorp til að ala upp
barn. Gerum þetta saman, gerum góða
hluti enn betur.
Einkarekið Apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
w.þ if.is / www.thrif.net / netfang: th if@centrum.is
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is
Við gerum tilboð í reglubundna
ræstingu ykkur að kostnaðarlausu.
Það er alltaf gaman
í Gaaraleikhúsinu
Sumarnámskeið fyrir börn
7-9 ára og 10 -12 ára
29 júní -10 júlí
Nokkur pláss eftir
Skráning og upplýsingar
í síma 565 5900 og
namskeið@gaaraleikhusid.is
gaaraleikhusid.is
Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni á
íslandi
Það var hátíðarstemn-
ing á dögunum þegar
leikskólinn Hof við
Gullteig flaggaði
Grænfánanum öðru
sinni. Katrín Magnús-
dóttir verkefnastjóri
Skóla á grænni grein
afhenti fánann sem
var dreginn að húni að
viðstöddum börnum
og starfsfólki Hofs.
Þema skólans voru að
þessu sinni lýðheilsa
og samgöngur. í til-
efni þessa var kveikt
upp í eldstæðum, grill-
aðar pylsur, bakaðar
lummur og heitur safi
drukkinn með.
notum táknmál og höldum okkur hægra megin á stígum og götum #hjolamal
Mynd-VR
ef þau eiga að bíta niður fullþroska
lúpínubreiður.
• Skógur getur vaxið lúpínu yfir
höfuð og skyggt hana út, en lúpínan
heldur velli í skóglausum rjóðrum
og í jöðrum. Kerfill (önnur framandi
ágeng jurt) vex henni líka yfir höfuð.
• Allar aðferðir til að takmarka út-
breiðslu lúpínu kosta mikið fé og/
eða fyrirhöfn – og þekkingu.
Misskilningur
eða ósannindi
• Að hægt sé að eyða lúpínubreiðum
með sauðfárbeit. Það hefur verið
rannsakað og reynist ekki hægt.
Fullþroska lúpína er of eitruð fyrir
kindurnar.
• Að tryggt sé að hún hörfi eftir að hafa
grætt upp landið. Á því gæti orðið
bið í áratugi, jafnvel aldir, þó þekja
hennar kunni að minnka. Dæmi eru
um að gömul lúpína hafi hörfað, þ.e.
minnkað og nánast horfið, einkum á
þurrum, úrkomulitlum landsvæðum
og í Heiðmörk, en víðast hvar virðist
hún breiðast ört út.
• Að hún vaxi og dafni bara í ógrónu eða
lítt grónu landi. Ótal dæmi og fjöldi
ljósmynda afsanna það. (Sjá einnig
rannsókn frá Húsavík: http://www.
ni.is/frettir/nr/13784)
• Að eitrun með roundup sé góð að-
ferð. Gerð var tilraun á Helluvaðs-
sandi 2007 með mismunandi eitur-
skammta á mismunandi tíma sumars.
Þekja lúpínu – svo og flestra annarra
tegunda – var marktækt minni árið
eftir í eitruðu reitunum, en lúpínan
hvarf þó alls ekki og eitrunin hefur
engin áhrif á fræforða í jarðvegi. Ekki
virðist hafa verið metið hvort áhrifa
eitrunarinnar gæti til lengri tíma. Þó
er víða klifað á því í enn dag að hægt
sé að útrýma henni með eitri.
Lokaorð
Lúpínan er mjög afkastamikil og hag-
kvæm uppgræðsluplanta og er heimilt
að nota hana til landgræðslu á sam-
felldum svæðum á láglendi. Það er hins
vegar afar erfitt að hafa stjórn á henni
Alaskalúpínan telst vera ágeng, fram-
andi tegund í íslenskri náttúru. (Sjá
nánar hér: http://agengar.land.is/)
Hún er jafnfram sú jurt sem ógnar
hvað mest sérkennum og fjölbreytni ís-
lensku flórunnar og ekkert annað getur
á næstu áratugum breytt ásýnd landsins
jafn mikið. Lúpínan mun á næstu ára-
tugum breyta ásýnd Íslands meira en
háspennulínur og virkjanir, jafnvel þótt
blautustu draumar virkjanasinna rætist.
Framhald af bls. 4.