Selfoss - 28.05.2015, Side 14

Selfoss - 28.05.2015, Side 14
Vík í Mýrdal Fjölskylduvænt samfélag í fallegu umhverfi. Mýrdalshreppur er um 500 manna sveitarfélag. Í Vík er öll almenn þjónusta svo sem leik-, grunn-, og tónskóli, heilsugæsla, dvalar- og hjúkrunarheimili og frábær aðstaða til allrar almennrar íþróttaiðkunar. Náttúrufegurð er rómuð í Vík og nágrenni og samgöngur greiðar allt árið. Ferðaþjón- usta er öflug og vaxandi í sveitarfélaginu og fjölbreyttir möguleikar á því sviði fyrir fólk með ferskar hugmyndir. Lausar stöður í Vík í Mýrdal: • Staða skólastjóra Leikskóla Mýrdalshrepps Starfssvið: • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans • Skipulagning skólastarfs og fagleg forusta á sviði kennslu og skólaþróunar. • Ábyrgð á samstarfi við heimili og samfélag Menntunar og hæfniskröfur: • Kennsluréttindi á því sviði sem sótt erum . • Framhaldsmenntun í stjórnun og/eða uppeldis og kennslufræðum æskileg. • Reynsla af stjórnun og rekstri. • Metnaður, frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. • Hæfni í mannlegum samskiptum. Leitað er að einstaklingi með áhuga á forystu í skapandi skólastarfi og hæfni til að að leiða faglegt starf nemenda og starfsfólks. Laun skv. Kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi félags innan Kennarasambands íslands. • Umsjónakennarar • List- og verkgreinakennari • Íþróttakennari í afleysingu í eitt ár Tvær stöður umsjónakennara, á yngsta- og miðstigi, staða list- og verkgreinakennara og staða íþrót- takennara í eitt ár við Grunnskóla Mýrdalshrepps eru einnig lausar til umsóknar frá og með næsta skólaári. Leitað er að hæfileikaríkum og metnaðarfullum kennurum í þessar stöður. Laun skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Einarsdóttir skólastjóri ragnhildur@vik.is eða í síma 4871242. Umsóknir skal senda til Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík. Umsóknarfrestur er til 8. júní n.k Mýrdalshreppur - Austurvegi 17 - 870 - Vík sími 487-1210 14 28. Maí 2015 Gef mér smakka brennivín! Fjölmörg og fágæt orð í eðlilegu umhverfi sínu, ritaðri grein eða ívitnuðu tilsvari geymast í Austantórum Jóns Pálssonar. Í öðru hefti kemur fyrst grein um Eyrar- bakkaverslun, Bakkamenn, ferjur og flutninga, reiðinga og reiðver, vorlestirnar, ferðalög fótgangandi manna, ferjutolla hjá Óseyrarnesi og svo má áfram telja. Heftin eru alls þrjú og í formála fyrir öðru hefti upplýsir Guðni Jóns- son ýmislegt um samskipti þeirra Jóns og sýnilegt verður hvað miklu meira tveir fá áorkað heldur en ein- yrkinn þótt skrifi og miðli. Magister Guðni segir: „Þó að Jón Pálsson væri í fyrstu hikandi eða jafnvel tregur til að láta úrval úr safni sínu koma fyrir almenn- ingssjónir nú þegar, þá er mér vel kunnugt um það, að hann sá alls ekki eftir því, að í það var ráðist, enda þurfti hann þess eigi heldur. Viðtökur þær sem 1. hefti af Austan- tórum fékk, voru svo vinsamlegar og lofsamlegar, að þær glöddu hinn aldurhnigna heiðursmann stórlega og vöktu áhuga hans fyrir útgáfunni. Kom því svo að lokum, að hún var orðin eitt af hjartfólgnustu áhuga- málum hans.“ Hér er ferðasaga Mýrdælinga til Reykjavíkur: „Hinn 1. desember 1889 lögðu tveir menn af stað frá Felli í Mýr- dal suður til Reykjavíkur. Var annar þeirra aldraður og hafði hest einn til reiðar, en hinn var ungur og hraust- ur vel. Fór hann fótgangandi sem fylgdarmaður hins eldra, er vildi verja mál sitt fyrir landsyfirréttin- um í Reykjavík. Heim til sín komu þeir aftur á þrettánda dag jóla, 6. janúar 1890 og höfðu verið 37 daga í ferðinni fram og aftur, lent í vondum veðrum og umbrotaófærð báðar leiðir, teppst við árnar dögum saman og verið 11 daga á leiðinni frá Reykjavík austur að Sanhólaferju við Þjórsá; það er nálega 77 km leið. Í Reykjavík dvöldust þeir aðeins 3 daga. Fylgdarmaðurinn kostaði ferð sína að öllu leyti báðar leiðir, nesti, gistingar á bæjum, þar sem eitthvað var tekið fyrir þær, svo og dvöl sína í Reykjavík. Hann fékk 12 krónur fyrir túrinn.“ Og við þessa 12 króna greiðslu má hæfa að bæta við ferjutollum í Óseyrarnesi, sem höfundur tiltekur, að hafi verið 60-70 árum áður, gætu verið 1860-1870: Fyrir að flytja lausgangandi mann 25 aurar Fyrir að flytja mann og hest 35 aurar Fyrir að flytja mann, hest og klyfja hest 50 aurar Væri fleiri en einn áburðarhestur með í ferðinni, var það kölluð lest. Fyrir að skipleggja stórgripi, hesta og nautpening, varð að greiða eina krónu fyrir hvert þeirra. Gjald þetta, ferjutollurinn, var oftast miðaður við fiskvirði, og var hann oftast nokkru lægri við ferjurnar við Þjórsá en við Ölfusá, enda var meðalalin oftast metin nokkru lægri í Rang- árvallasýslu en Árnessýslu. Síðar í bókinni er sagt frá starfsmönnum Eyrarbakkaverslunar, s. s. kornmanni, öðrum við búðar- borðið, laxakarlinum og brennivíns- manninum: „Í þessa vandasömu og veglegu stöðu völdust jafnan góðir menn og reglusamir. Staða þeirra var erfið og ónæðissöm og þeir máttu aldrei líta upp frá því, sem þeir voru að gera. Starf þeirra var argsamt mjög og eirulaust, en ein- stætt að því leyti, að sá sem hafði það á hendi, þurfti ekki að hafa mikla ferlivist. Hann var ef til vill haltur eða bagaður mjög á fótum og gat að meinalausu setið eða stað- ið í sömu sporum allan liðlangan daginn. Naumast mun þó nokkur annar starfsmaður við verslunina hafa haft vanþakklátara starf á hendi en hann, því að vara sú, vínið, sem hann átti að sjá um, að fengi eðli- leg útrás, þoldi enga bið. Ávallt var verið að hrópa til hans og kalla á þessa leið:„Tvo potta brennivín!“ – „Þrjá pela brennivín!“ – „Hálfpela brennivín!“ – „Staup!“ – „Staup!“ – „Staup!“ Varð hann þá að endur- taka þessi orð svo hátt, að sá, er fyr- irskipunina gerði, heyrði það, og endurómuðu þeir hin sömu orð eða einhver þeirra og í sömu andránni frá einum eða öðrum, oft mörgum í einu: „Staup!“ „Staup!“ – „Staup!“ – „Þrjá pela!“ o. s. frv.“ Harðhausi lýkur með drykkju- vísu sem Rangæingar kváðu fyrrum og þurftu enda út yfir hana Þjórsá til komast á Bakkann. Einnig má minnast myndanna sem Halldór Laxness dregur upp í Íslandsklukk- unni og við fylgjumst með jung- kæranum í Bræðratungu, komnum í félagsskap drukkinna presta niður í Flóa en öxin liggur heima í spóna- hrúgunni: Eg er að flakka eins og svín út á Bakka og heim til þín Góins stakka grundin fín gef mér smakka brennivín. Vísan er eftir Árna Böðvarsson, Snæfelling fæddan 1713 og er úr einni fjölmargra rímna hans. Upp- hafleg gerð vísunnar er talin vera: Eg er að flakka eins og svín út um víðar sveitir. Góins stakka grundin fín, gef mér smakka brennivín. ÚR HARÐ HAUS Ingi Heiðmar Jónsson Héraðsskjalasafn Árnesinga hefur á undanförnum árum fengið fjölda merkra ljósmyndasafna. Héraðs- skjalasafnið fékk ásamt Héraðs- skjalasafni Austfirðinga og Héraðs- skjalasafni Skagfirðinga styrk frá Mennta og Menningarmálaráðuneyti til atvinnuskapandi verkefnis tengd innskönnun og skráningu á ljósmynd- um á söfnunum þremur. Sveitarfélag- ið Árborg og Menningarráð Suður- lands styrktu svo sérstaklega verkefnið hér í sýslunni. Á héraðsskjalasafninu eru nú rúmlega tvö hundruð þúsund ljósmyndir. Í tengslum við verkefnið er búið að skanna inn um 105.000 ljósmyndir. Stór hluti þeirra er skráður að einhverju eða öllu leyti. Mikil vinna liggur að baki skrán- ingu á ljósmyndum og oft á tíðum er ekki hægt að greina nákvæmlega frá viðburðum eða þekkja þá einstaklinga sem eru á myndunum. Mikilvægt er að geta leitað til almennings og fá aðstoð við skráningu á ljósmyndum. Birting ljósmynda með þessum hætti er því í raun samvinnuverkefni íbúa héraðsins og skjalasafnsins. Að þessu sinni birtum við myndir úr safni sr. Guðmundar Óla Ólafsson- ar sóknarprests af óþekktum húsum/ stöðum og að eru þær varðveittar á Héraðsskjalasafni Árnesinga. Vinsamlegast hafið samband ef þið teljið ykkur kunna skil á mynd eða myndunum. Hægt er að hafa samband beint við Héraðsskjala- safn Árnesinga eða í síma ritstjóra 8942098 eða á netfangið torlakur@ fotspor.is Við köllum eftir ábendingum um myndirnar sem við birtum síðast. Höfum fengið upplýsingar um aðra þeirra og fjöllum um frekar í næsta blaði. ÞHH ÞEKKIR ÞÚ? Kemur næst út 11. júní S U Ð U R L A N D Auglýsingasími: 578 1190

x

Selfoss

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.