Vestfirðir - 12.02.2015, Blaðsíða 6
6 12. Febrúar 2015
3
Bæjarstjórinn á
Ísafirði launahæstur
Gísli Halldór Halldórsson, bæj-arstjóri á Ísafirði er launa-hæstur sveitarstjóranna 7
á Vestfjörðum. Föst laun hans voru
1.220.000 kr. á mánuði þegar hann
var ráðinn. Þau eru hækkuð um
hver áramót um sem svarar hækkun
á launavísitölu. Lægstur er Indriði
Indriðason, sveitarstjóri í Tálkna-
fjarðarhreppi. Hann fær tæpar 700
þús kr. á mánuði. Þegar tekið er
mið af stærð og tekjum sveitarfélag-
anna verður bæjarstjórinn á Ísafirði
ódýrastur 336 kr/íbúa, en sveitarstjór-
inn í Súðavík dýrastur 4.048 kr/íbúa.
Almennt er ráðið til fjögurra ára
með gagnkvæmum þriggja mánða
uppsagnarfrestiog tengingu við launa-
breytingar skv tilgreindum taxta. Það
er svo breytilegt við hvaða samninga
er miðað. Athyglisvert er að enginn
sveitarstjóranna miðar laun sín við
þingfararkaup, sem er sú viðmiðun
sem sveiatrstjórnarmennirnir nota
fyrir sín laun. Það segir sína sögu um
laun alþingismanna þegar enginn
sveitarstjóri vill taka mið af launum
þeirra.
Ísafjörður
Bæjarstjóri fær ekki frekari launa-
greiðslur en fram kemur, en hann fær
greitt fyrir síma og tölvutengingu. Að
öðru leyti er stuðst við kjarasamn-
ing BHM fyrir viðskiptafræðinga
og hagfræðinga. Samningur er upp-
segjanlegur með 6 mán fyrirvara og
greidd eru þriggja mánaða laun í lok
kjörtímabils, sem falla niður komi til
endurráðningar.
Vesturbyggð
Bæjarstjóri fær 25.000 kr mánaðar-
legan símastyrk og fastan bílastyrk
sem svara til 850 km aksturs. Launin
eru miðuð við launaflokk 500-139
sem Kjaradómur ákvarðar. Áunnin
réttur til biðlauna er 1 mánuður fyrir
hvert ár, þó aldrei færri en 3 mánuðir.
Bolungavík
Miðað er við kjarasamnings sambands
ísl. sveitarfélaga við Verkfræðingafé-
lag Íslands og fleiri skyld félög. Laun-
in miðast við launaflokk 68 með 8%
persónuálagi, samtals 710.102 frá
1.3. 2014. Auk þess er samið um 50
klst fasta yfirvinnu á mánuði. Hver
yfirvinnustund kostar 1,0385% af
mánðarlaunum. Samtals eru mánar-
launin þá liðlega 1 mkr. Greiddur er
fastur bílastyrkur 1000 km á mánuði
og einnig er greitt fyrir GSM síma.
Uppsagnarfrestur er 3 mánuðir en ef
ekki kemur til endurráðningar í lok
kjörtímabils greiðast 6 mánaða laun.
Súðavík
Sveitarstjóri fær ekki frekari greiðslur
en umsamin mánaðalaun og sinnir
jafnfram starfi framkvæmdastjóra
Grundarstrætis ehf og Fasteignafé-
lagsins Landeyrar ehf. Ekki er greitt
sérstaklega fyrir nefndarfundi. Miðað
er við launabreytingar í kjarasamn-
ingum BSRB. Biðalun eru 3 mánuðir.
Strandabyggð
Launin eru miðuð við samninga
Fræðagarðs við samband ísl. sveitar-
félaga, launaflokk 75-3. Greitt er
fyrir síma og fartölvu. Gagnkvæmur
uppsagnarfrestur er 3 mánuðir. Við
lok kjörtímabils er réttur til þriggja
mánða launa, sem falla þó niður ef
sveitarstjóri fer í annað starf á tímabil-
inu.
Tálknafjörður
Launin miðast við launatöflu Kjara-
ráðs nr 500, launaflokk 132. Greitt eru
afnot af farsíma. Biðlaunaréttur að
loknu kjörtímabili er 3 mánuðir komi
ekki til endurráðningar. Sá réttur fell-
ur niður ef sveitarstjóri tekur við öðru
starfi á meðan á biðlaunatíma stendur.
Reykhólar
Engar aðrar greiðslur eru en umsamin
laun og taka launin breytingum skv
hæsta launaflokki hjá FOSVest. Samið
er út kjörtímabiið en þriggja mánaða
uppsagnarfrestur er á báða bóga.
Tölur geta verið á mismunandi
tímabili, en ekki skeikar þá miklu.
Tölurnar eru almennt miðaðar við
mitt síðasta ár þegar samningar voru
gerðir. Vel gekk að afla upplýsinganna
og veittu sveitarstjórarnir eða aðrir
sem afgreiddu erindið umyrðalaust
umbeðin gögn.
Mánaðarlaun sveitarstjóra á Vestfjörðum 2015
kr/mán kr/íbúa
Gísli Halldór Halldórsson Ísafjarðarbær 1.220.000 336
Ásthildur Sturludóttir Vesturbyggð 823.632 840
Elías Jónatansson Bolungarvíkurkaupst. 1.078.802 1.160
Inga Birna Erlingsdóttir Reykhólahreppur 800.000 2.963
Andrea K. Jónsdóttir Strandabyggð 849.579 1.770
Pétur Markan Súðavíkurhreppur 850.000 4.048
Indriði Indriðason Tálknafjarðarhreppur 696.169 2.246
Frá Stútungi, þorrablóti
Flateyringa sem var
haldið um síðustu helgi
Þorrablótsnefndin.