Víkurfréttir - 29.05.2008, Blaðsíða 12
12 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 22. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Hugins Heiðars Guðmundssonar,
Greniteig 49,
Keflavík.
Þakkir færum við öllu starfsfólki Barnaspítala Hringsins
og gjörgæsludeildarinnar við Hringbraut. Þá sendum við
öllum þeim sem hafa aðstoðað okkur og stutt í veik-
indum Hugins og gert okkur kleift að einbeita okkur að
lífi hans og baráttu, kærar þakkir.
Án ykkar hefði þetta orðið svo miklu erfiðara.
Guðmundur Guðbergsson, Fjóla Ævarsdóttir,
Natan Freyr Guðmundsson, Sóley Ásgeirsdóttir,
Hafrún Eva Kristjánsdóttir,
Guðjón Örn Kristjánsson,
Ásdís Rán Kristjánsdóttir.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem hafa
aðstoðað okkur og stutt vegna andláts
og útfarar ástkærs sonar okkar, bróður
og mágs,
��� ����� ���������
����������������� �������������������
��������
��������
��������
�� ���
������
������� ���������
�����������������
Þrjátíu ÍAK einkaþjálfarar útskrifuðust frá
Heilsu- og uppeldisskóla Keilis sl. laugardag.
Stefanía Katrín Karlsdóttir, framkvæmda-
stjóri, hélt við tilefnið útskriftarræðu þar
sem fram kom meðal annars að ÍAK einka-
þjálfaranámið er nú orðin viðurkennd náms-
braut sem lánshæf er hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna.
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir
góðan námsárangur og fleira. Þær Sjöfn Sig-
þórsdóttir og Sonja Sverrisdóttir hlutu viður-
kenningu fyrir besta bóklega árangurinn. Sjöfn
hlaut meðaleinkunnina 9,2 og Sonja 8,43. Ásdís
Þorgilsdóttir og Sveinn Rafn Hinriksson hlutu
viðurkenningu fyrir besta verklega árangurinn.
Þá hlaut Hrund Sigurðardóttir viðurkenningu
fyrir bestu ritgerðina, Haraldur Magnússon var
valinn besti kennarinn af nemendum og Sturla
Ólafsson fékk sérstaka viðurkenningu fyrir
hjálpsemi í vetur.
Áhugasömum um þjálfarana og námið er bent
á heimasíðu Keilis, www.keilir.net Fyrri um-
sóknarfrestur í ÍAK einkaþjálfaranámið rennur
út 13. júní.
Menntun:
Keilir útskrifar einkaþjálfara
Þrátt fyrir að jafnréttisbaráttunni hafi fleygt
fram í rétta átt síðustu ár og áratugi er þó eitt
vígi sem mun seint falla, en það eru störf á
leikskólum. Mikill meirihluti leikskólakenn-
ara og leiðbeinenda eru enn þann dag í dag
konur og sums staðar er raunar engan karl
að finna.
Sú er ekki raunin á leikskólanum Gimli í
Reykjanesbæ þar sem hvorki fleiri né færri en
fjórir hressir strákar vinna.
Þeir Símun Samúelssen, Þór Harðarson og
bræðurnir Pálmi og Smári Ketilssynir hafa
unnið mislengi á Gimli en eru allir jafn ánægðir
með starfið.
„Þetta er alveg yndisleg vinna,“ segir Símun,
en hann ætti að vera flestum kunnugur sem
einn af burðarásum toppliðs Keflavíkur í knatt-
spyrnu. Það var einmitt liðsfélagi hans, Hall-
grímur Jónasson, sem kynnti hann fyrir starf-
inu. „Ég sótti svo bara um í fyrra og er búinn
að vera hér síðan, fyrir utan að ég fór í fæðing-
arorlof.“
Leið hinna þriggja að starfinu er enn styttri,
en Karen Valdimarsdóttir, móðir þeirra Pálma
og Smára, rekur leikskólann og móðir Þórs er
leikskólakennari á Gimli. Þeir félagar eru ein-
róma í þeirri skoðun sinni að starfið sé frábært.
„Þetta opnar manni önnur sjónarmið og er
mjög þroskandi og góð reynsla,“ segir Pálmi.
„Og er líka gott til að þjálfa þolinmæðina,“
bætir Símun við brosandi.
Þór segir aðspurður að sú staðreynd að hann
vinni á leikskóla komi fólki ekki svo mjög á
óvart. „Alla vega hef ég bara fengið jákvæð
viðbrögð. Það er helst að maður sé spurður út í
það hvort launin séu ekki lág!“
Þeir fara ekki frekar út í launaumræðuna, en
segjast allir sáttir við sitt.
Í samtali við Víkurfréttir sagði Karen að hún
reyndi yfirleitt að hafa karlmenn starfandi hjá
sér á Gimli, en þeir væru óvenjumargir nú.
Þeir segja að sú staðreynd að þeir eru fjórir
saman hjálpi vissulega til að gera starfið eins
ánægjulegt og raun ber vitni. „Já, ég var aleinn
hér á tímabili,“ segir Símun. „En þó það hafi
verið mjög gaman, þá skiptir líka máli að geta
stundum talað við aðra stráka um fótbolta og
þess háttar.“
Þeir gefa ekkert út um það hvort þeir stefni á
það að helga sig starfi á leikskóla, en Smári seg-
ist alla vega geta mælt með því að strákar sem
hafi áhuga á að reyna, slái til. „Þetta er mjög
góð reynsla og er ákaflega gefandi.“
Pálmi bróðir hans tekur undir það. „Þetta er
líka frábær undirbúningur fyrir framtíðina
þegar maður fer sjálfur að eignast börn og
hugsa um þau. Svona reynsla kemur sér virki-
lega vel.“
Karlaveldi á Gimli:
Þroskandi og góð reynsla
Útskriftarhópurinn í Íþróttaakademíunni