Víkurfréttir - 03.07.2008, Page 10
10 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 27. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
Dagdvöl á Nesvöllum
og í Selinu
Reykjanesbær rekur dagdvöl
fyrir eldri borgara á tveimur
stöðum í bæjarfélaginu. Ann-
ars vegar á Nesvöllum og hins
vegar í Selinu við Vallarbraut í
Njarðvík.
Inga Lóa Guðmundsdóttir er
yfir báðum dagdvölunum en
einnig í 20% hlutastarfi sem
rekstrarstjóri Nesvalla. Inga
Lóa er búin að starfa frá upp-
hafi í dagdvöl á Suðurgötunni
eða síðan 1992.
Selið á Vallarbraut hýsti áður
hluta af tómstundastarfi aldr-
aðra en hefur fengið nýtt hlut-
verk í dag eftir að tómstunda-
starfið fluttist á Nesvelli. Þar er
nú rekin dagdvöl fyrir þá ein-
staklinga sem eru ekki virkir
þátttakendur í félagsstarfi
heldur þurfa meiri ró og næði.
Frjálst í dagdvöl
Þeir sem nýta sér þjón ustu
dagdvalar geta komið kl. 8:30
með þjónustubíl og er ekið
heim seinni partinn. „Þú getur
ekki droppað inn í dagdvöl,
það þarf að sækja um og skrá
sig.“ Þjónustubílar ganga á
ákveðnum tímum og það er
eina sem gæti heft fólk í að kom-
ast leiða sinna, að öðru leyti er
fólk mjög frjálst og fáar reglur.
„Fólk er hér á sínum forsendum
og velur að taka þátt í og stunda
þær tómstundir sem það hefur
áhuga á,“ segir Inga Lóa.
Deildu lóð með sjúkra-
húsinu á Suðurgötu
Aðspurð hvers hún sakni frá
gömlu aðstöðunni við Suður-
götuna segir Inga Lóa: „Við
vorum með skrúðgarðinn nán-
ast sem einkalóð og söknum
mest nálægðinnar við sjúkra-
húsið. Ef eitthvað kom upp á
þá var möguleiki á að hlaupa
yfir blettinn með sjúklinginn
í hjólastól til læknisvitjunar.
Á Nesvöllum verður aftur á
móti hjúkrunarfræðingur með
aðstöðu en við alvarleg tilfelli
köllum við á sjúkrabíl.“
Allir velkomnir á Nesvelli
Fólk á öllum heilsustigum, á
ekki að þurfa að sækja þjón-
ustu um langan veg. „Hér er
ekki pútt eða billjard en nán-
ast allt annað. Aðstandendur
og vinir eru velkomnir hingað
á Nesvelli til að borða með
þeim sem sækja dagdvöl eða
til að heimsækja og eiga góðar
stundir. Veitingastaðurinn á
Nesvöllum mun bjóða upp á
venjulegan heimilismat.“ segir
Inga Lóa.
Starfsemi hófst í
byrjun apríl
Jónína Skarphéðinsdótt ir,
sjúkraliði, er deildarstjóri í
dagdvölinni á Nesvöllum en
Björk Erlendsdóttir yfir Selinu.
Jónína er búin að vinna við
dagdvölina í átta ár og líkar
mjög vel.
„Við erum öll að aðlagast breyt-
ingunum. Þann 7. apríl síðast-
liðinn hófum við starfsemi
okkar hér á Nesvöllum. Þá
skiptist dagdvölin í tvennt.“
Hvernig tekur fólk breyting-
unum? „Alveg ótrúlega vel.
Það tekur alltaf tíma að venj-
ast breyt ingum bæði fyr ir
starfsfólk og dvalargesti. Hér
á Nesvöllum er meiri erill en
á Suðurgötunni, húsnæðið er
opnara. Helsti kosturinn fyrir
vistmenn er að þjónustan er
á sama stað, það þarf ekki að
panta bíl og fara út og suður
um bæinn. Í húsnæðinu er
meðal annars snyrtistofa, hár-
snyrtistofa, sjúkraþjálfun og
apótek.“
Flest starfsemi sem verður á
Nesvöllum er komin í gagn.
Lesið upp úr blöðum og
hársnyrting
Hrafnhildur Jónsdóttir sem
starfar á dagdvöl, segir að með
tilkomu sjúkraþjálfunarinnar
í sama húsnæði og dagdvölin
hafi skapast töluverð breyting
og þægindi. „Sjúkraþjálfunin
er staðsett í kjallara hússins
sem er alveg æðisleg breyt-
ing. Við höldum samt ennþá
í okkar hefðir frá Suðurgöt-
Nesvellir:
Dagdvöl
aldraðra
Dagdvöl aldraðra í Reykjanesbæ er þjónusta
ætluð öllum Reykjanesbæingum 67 ára og
eldri. Hún er liður í að gera öldruðum kleift að
búa á eigin heimili. Dagdvölin var áður til húsa
við Suðurgötu í Keflavík.
unni og erum með léttta leik-
fimi, lesum úr blöðum, erum
með hársnyrtingu og förum
í Boccia.“ Fólk unir sér við
leik og störf í nýju glæsilegu
húsnæði þjónustumiðstöðvar-
innar Nesvalla.
Bergljót Sjöfn Steinarsdóttir
starfsmaður Reykjanes-
bæjar með hressum konum í
handavinnu.
VF/IngaSæm
Hrafnhildur Jóns-
dóttir, sjúkraliði
Dagdvöl aldraðra
á Nesvöllum setur
rúllur í hár.
Jónína Skarphéðinsdóttir,
deildarstjóri Dagdvöl aldr-
aðra á Nesvöllum.
Inga Lóa Guðmunds-
dóttir, forstöðumaður
Dagdvöl aldraðra í
Reykjanesbæ.
Soffía Aðalsteins-
dóttir, leiðbeinandi
í Tómstundastarfi
eldri borgara, að-
stoðar við handa-
vinnu.