Víkurfréttir - 04.04.2012, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUdagUrInn 4. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
að mistakast
„Mér varð á og þungan dóm ég hlaut, er ég villtist af réttri braut“
þetta söng Jóhann G. Jóhannsson um árið, en ég raulaði þessar
línur í huga mér um helgina. Mér varð nefninlega á. Mér tókst
að sofa yfir mig á morgunæfingunni síðasta laugardag. Svona
fer þegar krakkarnir eru ekki heima til að vekja mann í skrípó
klukkan 7.30 um helgar. Ég hlaut nú kannski ekki svo þungan
dóm, en við í liðinu höfum ákveðnar reglur og ef þær eru brotnar
borgar maður sekt í svonefndan sektarsjóð. Þessi sjóður rennur
svo til góðs málefnis eftir tímabil. Langþreyttir knattspyrnu-
menn hafa fengið að njóta góðs af honum síðustu ár, þar sem
við splæsum í veglegt skemmtikvöld fyrir þá. Það sem var hins
vegar öllu verra en sektin voru allir skemmtilegu brandararnir
og skotin sem ég fékk beint í æð frá liðsfélögunum. Þess má til
gamans geta að lagið hans Jóhanns heitir Traustur vinur, en
þegar ég vaknaði loksins og leit á símann var ég ekki með eitt
ósvarað símtal frá órólegum liðsfélaga yfir því að ég væri ekki
mættur tímanlega á æfingu.
Öllum verða víst á mistök og það á ekki síður við í íþróttum en
hverju öðru. Meir að segja bestu leikmenn í heimi í sinni íþrótt
gera mistök. Vissulega gera þeir færri mistök en sá lélegasti en
þeir gera engu að síður mistök. Á Íslandi stunda þúsundir krakka
fótbolta. Flestir af þeim æfa við mjög góðar aðstæður, hafa góða
þjálfara og stunda sína íþrótt af áhuga og alúð. Hvernig stendur
þá á því að sumir verða miklu betri en aðrir. Sumir eru heppnir
frá náttúrunnar hendi að vera vel skapaðir fyrir sína íþrótt.
Aðrir eru svo duglegri að æfa aukalega. Svo er það hugarfarið.
Á endanum er það yfirleitt hugarfarið sem sker úr um hverjir
ná lengst. Íslendingar eru einmitt mjög vinsæl útflutningsvara í
íþróttum vegna hins fræga hugarfars okkar. Í fótboltanum erum
við frægir fyrir að vera duglegir og vinnusamir. Bætum við það að
sífellt fleiri leikmenn eru að verða tæknilega færari með tilkomu
betri aðstöðu og þjálfunar hér á landi. Það er engin tilviljun að við
lesum um það annan hvern dag að ungur leikmaður sé að fara í
atvinnumennsku.
Þá komum við aftur að mistökunum því eins og ég segi þá gera
allir mistök, góðir og slakir leikmenn. Góður leikmaður er hins-
vegar ekki hræddur við að gera mistök. Hann hefur alltaf trú
á því að næsta sending heppnist, að næsta skot verði mark, að
hann vinni næstu tæklingu jafnvel þó að hann hafi klikkað stuttu
áður. Lakari leikmaðurinn verður hræddur eftir að hafa gert mis-
tök. Hann hikar við að skjóta eða hættir við sendingu af ótta við
að mistakast aftur. Lið eru í auknum mæli að skoða og fara yfir
þennan andlega þátt, því oft er það þetta sem sker úr um sigur og
tap hjá jöfnum liðum. Hver er sterkari andlega. Ég hef séð marga
leikmenn ná langt á hugarfarinu og trúnni á sjálfan sig. Ég hef líka
séð leikmenn hafa oftrú á eigin getu og ekki lukkast þess vegna.
Ég hef hinsvegar aldrei séð góðan leikmann sem ekki hefur haft
trú á sjálfum sér.
Njarðvíkingar taka á móti
Haukum í fyrsta
leik úrslitanna í
Iceland Express-
d e i l d k v e n n a
klukkan 19:15 í
Ljónagryfjunni í kvöld. Sverrir Þór
Sverrisson þjálfari Njarðvíkinga
er spenntur og tilbúinn í slaginn.
Njarðvíkingar sigruðu þrjá af
fjórum deildarleikjum liðanna á
tímabilinu og í bikarnum þurfti
að framlengja þegar liðin áttust
við. Það má því búast við hörku
leikjum.
Annað árið í röð í úrslitum hjá
Njarðvík, hvað er í gangi hjá
grænum?
„Já, það er bara búið að vera mikill
metnaður í þessu og góður andi í
liðinu. Við erum með gott lið og
engin tilviljun að við séum búin að
tryggja okkur inn í úrslitin aftur.
Það er mikil tilhlökkun í hópnum
og hjá stuðningsmönnum að mæta
þessu sterka Hauka liði.“
Bjóstu við að Haukar myndu sópa
Keflavíkingum út?
„Ég bjóst ekki við að þeir myndu
sópa þeim út en ég bjóst alveg við
að Haukar færu áfram. Þær eru
með það öflugt lið en það kom
mér alveg rosalega að óvart að
þær myndu taka þetta 3-0 og það
verður virkilega gaman að fá að
takast á við þær“.
Hvað er svona helst að varast hjá
Haukunum?
„Eins og sást í leikjunum á móti
Keflavík eru báðir útlendingarnir
þeirra gríðarlega góðir og íslensku
stelpurnar líka virkilega öflugar,
þær eru með stelpur eins og
Margrét Rósu og Gunnhildi sem
eru að koma sterkar inn hjá þeim.
Íslensku stelpurnar hjá þeim eru
barráttuglaðar og duglegar og þær
hafa gaman af þessu. Þær eiga bara
algjörlega skilið eins og við að vera
þarna í úrslitaeinvíginu.“
Hvernig eru málin í þínu liði
eru allar stelpurnar heilar og
eruð þið búnar að gera eitthvað
skemmtilegt til að hita upp?
„Já, Það eru bara allar heilar
og mikil tilhlökkun í hópnum.
Við hittumst heima hjá mér á
sunnudeginum í mat áður en
að við fórum á leikinn Njarðvík
- Grindavík í karlaboltanum. Svo
æfðum við í gær og fórum í hús og
seldum happdrættismiða. Svo er
bara æft meira og beðið eftir því að
fjörið hefjist.“
Ingibjörg Elva er búin að koma
sterk inn í liðið hjá ykkur, er
ekki mikill plús að fá svona
sterkan leikmann inn rétt fyrir
úrslitakeppni?
„Jú, það er alveg frábært að hún
hafi tekið þessa ákvörðun að taka
fram skóna af hillunni. Hún er búin
að styrkja okkur alveg gríðarlega
mikið bæði inná vellinum og
móralslega, hún hefur rosalega
góð áhrif á hópinn og hún er bara
frábær leikmaður og við vonum
bara að hún eigi eftir að vera að
spila með okkur í mörg ár í viðbót.
Hún er bara kornung ennþá. Ef
hún heldur áfram eins og hún er
búin að vera undanfarið er það
mikið fagnaðarefni fyrir Njarðvík.
Hún er uppalinn Njarpvíkingur
og sennilega ein af tveimur bestu
stúlkunum sem Njarðvík hefur alið
af sér.“
Eru einhverjar breytingar í
kortunum eða haldiði bara áfram
að spila ykkar leik?
„Við einblínum bara á okkar leik
og hugsa um hvað við ætlum að
gera og við þurfum að framkvæma
hlutina okkar vel bæði í okkar sókn
og spila frábæra vörn til þess að
vinna þetta Haukalið.“
Má búast við skemmtilegri rimmu
þegar þessi tvo lið mætast?
„Já ég held að það sé alveg pottþétt
mál og vonandi verður bara alveg
stútfullt uppí stúkunni hjá okkur í
fyrsta leiknum í kvöld.
En hvað með þessi meiðsli hjá
þeim, hefur það einhver áhrif á
liðsheildina?
„Auðvitað er slæmt að missa stelpur
út og Írisi sem er búin að vera með
betri leikmönnum í deildinni í vetur
en þær unnu Keflavík með tuttugu
og eitthvað stigum í þriðja leik án
þessara tveggja sem eru meiddar en
kannski minnkar þetta breiddina
hjá þeim. En þær eiga góðar stelpur
sem hafa verið að koma inn fyrir
þessar tvær.“
Njarðvík í úrslit
annað árið í röð
Grindavík áfram eftir
erfiðan leik í Njarðvík
- verðum ekki meistarar með svona
spilamennsku segir Þorleifur Ólafsson
Grindvíkingar unnu sigur á Njarðvík í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta á sunnudag, 76-87 urðu
lokatölur í hörkuleik. Njarðvíkingar börðust hvað þeir gátu en ekki
tóks þeim að vinna bug á sterku Grindavíkurliði. Þorleifur Ólafsson
fann fjölina sína í leiknum og hann steig upp þegar Grindvíkingar þurftu
hvað mest á því að halda undir lok leiksins. Sigur Grindvíkinga kom ekk
í hús fyrr en í 4. leikhluta en jafnt hafði verið á flestum tölum fram að því.
„4. leikhluti var mjög góður hjá okkur og við þurfum að byggja á því,“
sagði Þorleifur Ólafsson að leik loknum. „Við bættum varnarleikinn
hjá okkur og boltinn fór að ganga vel á milli manna. Ef við gerum það
þá erum við hvað bestir.“ Þorleifur er á því að það besta sé enn ókomið
frá Grindvíkingum. „Klárlega. Við verðum ekki Íslandsmeistarar ef við
ætlum að spila svona. Við verðum að halda áfram að bæta okkur.“
Keflvíkingar knúðu fram
oddaleik gegn Stjörnunni
- leikir liðanna verið afar fjörugir
Keflvíkingar knúðu fram oddaleik eftir æsispennandi rimmu gegn Stjörnunni í Sláturhúsinu á mánudagskvöld en lokatölur urðu
88-82. Keflvíkingar innsigluðu sigurinn á línunni en Valur Orri Valsson
gerði líklega út um vonir Stjörnunnar með mikilvægri körfu skömmu
fyrir leikslok. Charles Parker var með 24 stig en Jarryd Cole var með
22 og 14 fráköst í leiknum en auk þeirra var Valur Orri drjúgur. Næsti
leikur fer fram í Garðabæ á fimmtudaginn en þar verður barist allt til síðasta
blóðdropa. „Þetta er ótrúlega gaman og gott að koma þessu í oddaleik. Nú
verðum við bara að halda ævintýrinu áfram og sigra í Garðabænum,“ sagði
Valur Orri í samtali við Víkurfréttir að leik loknum. Valur var svellkaldur
í lokinn og setti niður mikilvæga þriggja stiga körfu þegar rétt innan við
mínúta var til leiksloka. „Ég varð að skjóta og mig langaði til þess. Ég hélt
reyndar að skotið væri ekki að rata rétta leið en sem betur fer hitti ég. Það er
ekkert berta en að sjá svona skot detta.“ Til þess að sigra oddaleikinn segir
Valur að liðið þurfi að halda stöðuleika í 4. leikhluta og halda sínu striki.
„Svo er bara að sjá hvort liðið mætir tilbúið til leiks í oddaleiknum,“ sagði
leikstjórnandinn ungi að lokum.