Víkurfréttir - 12.04.2012, Blaðsíða 2
2 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Atvinnumessu
frestað
Ákveðið hefur verið
að fresta fyrir-
hugaðri At-
vinnumessu sem
halda átti þann
13. apríl 2012 í Stapa. Ástæðan
er sú að ekki hefur enn fengist
nægilegur fjöldi fyrirtækja
til að taka þátt í messunni.
Fljótlega verður tekin
ákvörðun um hvort og þá hve-
nær hún verður haldin.
Grunaður um fíkni-
efnaakstur og faldi
sig bak við gám
Við hefð-bundið
umferðareftirlit
nýverið veitti lög-
reglan á Suður-
nesjum athygli
ökumanni sem grunaður var um
akstur undir áhrifum fíkniefna.
Maðurinn ók inn á bifreiðastæði
fyrirtækis í Reykjanesbæ og
fylgdi lögreglubíll á eftir. Á bíla-
stæðinu stöðvaði ökumaðurinn
bifreiðina, stökk út úr henni og
tók til fótanna að gámi aftan við
húsnæði fyrirtækisins. Hann faldi
sig bak við gáminn en var hand-
tekinn og færður á lögreglustöð,
þar sem akstur undir áhrifum
fíkniefna fékkst staðfestur.
Með fíkniefni
innvortis
Rúmlega tvítug kona var
stöðvuð í Flug-
stöð Leifs Eiríks-
sonar á dögunum
við hefðbundið
eftirlit tollgæslu vegna gruns
um að hún væri með fíkniefni
í fórum sínum. Lögreglan á
Suðurnesjum færði konuna á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
og reyndist hún vera með eina
pakkningu af meintu hassi inn-
vortis. Málið telst upplýst.
Lögreglan minnir á fíkni-
efnasímann 800 5005 þar sem
hægt er að koma gjaldfrjálst
á framfæri upplýsingum um
fíkniefnamál undir nafnleynd.
Suðandi rakvél
í farangri
Starfsmaður í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar óskaði
í vikunni eftir að-
stoð lögreglunnar
á Suðurnesjum
vegna ókennilegs hljóðs úr
farangurstösku sem verið var
að hlaða um borð í farþegavél
er var á leiðinni til New York.
Lögreglumaður mætti á staðinn
ásamt öryggisverði og var eigandi
töskunnar kallaður til. Þegar
skyggnst var í töskuna kom í ljós
að suðið kom frá rakvél sem í
henni var. Eftir þessa niðurstöðu
var taskan sett um borð í vélina.
HAMINGJAN ER HÉR!
Nesvellir þjónustumiðstöð
Léttur föstudagur 13. apríl kl. 14:00.
Anna Lóa Ólafsdóttir náms- og starfsráðgjafi fjallar um
hamingjuna í víðu samhengi. Hvað er það sem veitir okkur
hamingju: peningar, menntun, maki, sól, flottur líkami,
tengsl við aðra eða eitthvað allt annað? Erum við að
keppast við að finna hamingjuna þegar hún er kannski
beint fyrir framan okkur? Erum við að bíða eftir því að
einhver ákveðin manneskja eða atburður veiti okkur
hamingjuríkt líf? Fjallað er um þessa þætti og fleira í
skemmtilegum og fræðandi fyrirlestri um það sem okkur
dreymir öll um að upplifa – hamingjuna!
Barnahátíð
í Reykjanesbæ 12. og 13. maí
Vertu með!
Ert þú eða þitt fyrirtæki með góða hugmynd? Barnahátíð
í Reykjanesbæ verður brátt haldin í 7. sinn og við bjóðum
einstaklingum og fyrirtækjum til þátttöku í undirbúningi
hennar. Margt kemur til greina: námskeið, skemmtanir,
þjónusta eða hvað eina annað sem þú telur að höfðað
geti til barna og fjölskyldna þeirra. Vertu með!
Áhugasamir hafi samband á netfangið
barnahatid@reykjanesbaer.is eða í síma 863-4989.
LJÓSANÆTURSÝNING
LISTASAFNSINS 2012
ALLIR SAMAN NÚ!
Sú venja hefur skapast á Ljósanótt undanfarin ár að
heimafólk hefur verið í aðalhlutverki á sýningu
Listasafnsins í listasal Duushúsa . Í ár er ætlunin að þar
verði stór samsýning listamanna af Suðurnesjum.
Leitað er eftir verkum af öllum tegundum myndlistar,
tvívíðum og þrívíðum verkum, málverkum, vatnslita-
myndum, teikningum, ljósmyndum, skúlptúrum,
hefðbundinni list og óhefðbundinni og í raun öllu því
sem getur fallið undir víðustu skilgreiningu myndlistar.
Skilyrðin fyrir þátttöku eru aðeins tvö; að listafólkið
hafi náð 18 ára aldri og eigi lögheimili á Suðurnesjum.
Markmið sýningarinnar er að sýna hina miklu grósku
myndlistar á svæðinu og vonast er eftir að breiddin
verði sem mest, atvinnulistamenn og áhugamenn á
öllum aldri blandist í sköpuninni á eftirminnilegan hátt.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni eiga að
senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið
listasafn@reykjanesbaer.is fyrir 15. júní n.k: Nafn
listamannsins, netfang, heiti verksins, lýsing á verkinu
m.a. stærð og gerð og ljósmynd af verkinu í góðri
upplausn. Hver og einn má senda inn þrjú verk.
Sérstök valnefnd velur svo úr innsendum verkum með
framangreint markmið í huga.
Listasafn Reykjanesbæjar
›› FRÉTTIR ‹‹
Fréttasími Víkurfrétta
er 898 2222
allan sólarhringinn!
›› Reykjanesbær:
„Það hefur aukist mikið að fólk
sé að losa sig við úrgang eða hluti
sem það þarf að greiða fyrir í
sorpeyðingarstöðinni. Steininn
tók úr nú í byrjun vikunnar eftir
páskana þegar starfsmenn okkar
þurftu að hirða upp um 8 tonn af
úrgangi af svæði sem er ekki ætlað
til losunar,“ segir Guðlaugur H.
Sigurjónsson framkvæmdastjóri
umhverfis- og skipulagssviðs hjá
Reykjanesbæ.
Staðir eins og jarðvegslosunarsvæði
Reykjanesbæjar við Stapa í Innri-
Njarðvík, Patterson við Ásbrú,
Bergið og Helguvíkursvæðið hafa
í auknum mæli fengið nýtt hlutverk
í hugum fólks sem ruslahaugar.
„Gjaldtaka Kölku virðist vera helsta
ástæðan því óheimil losun hefur
aukist mikið eftir áramótin eftir að
gjaldtakan hófst. Við verðum að
biðja bæjarbúa um að virða nýjar
reglur en við munum taka hart á
því ef við verðum vör við óheimila
losun og tilkynna hana til lögregl-
unnar og biðjum fólk að taka þátt
í því með okkur og láta vita ef það
verður vart við þetta,“ sagði Guð-
laugur.
„Það er enginn hörgull á því að
fólk mæti hingað til okkar og þetta
gengur bara mjög vel yfir höfuð.
Við höfum þó fengið athugasemdir
þar sem fólk er að misskilja ýmis-
legt varðandi gjaldtökuna. Svo
hafa verið búnar til tröllasögur í
kringum þetta en almennt hefur
þetta gengið bara mjög vel,“ sagði
Jón Norðfjörð framkvæmdastjóri
Kölku í samtali við Víkurfréttir.
Hann segir að kynning á gjaldtök-
unni hafi kannski ekki verið nægi-
lega mikil en nú sé verið að bera út
í öll hús á Suðurnesjum bækling
þar sem upplýsingar um gjaldskrár
og verðdæmi eru tekin fram, ásamt
ýmsum fróðlegum upplýsingum. Á
baksíðunni er svo sorphirðudaga-
talið.
„Við drógum dálítið að senda þetta
út vegna útboðsmála í vetur og
óvissu um það hverjir yrðu okkar
verktakar,“ sagði Jón en hann er þó
ekki viss um að íbúar Suðurnesja
hefðu þurft aðlögunartíma til að
venjast gjaldtökunni. „Í sjálfu sér
ekki. Mér finnst þetta bara vera að
ganga ágætlega en það er bara eðli-
legt að fá einhverjar athugasemdir
og við gerðum ráð fyrir því.“
Jón kannast við að heyra sögur af
því að fólk fari í auknum mæli með
sorp á staði þar sem ekki er leyfi-
legt að losa sorp. „Við heyrum af
því og þetta er ekki í miklum mæli
og alls ekki í meira mæli en áður
en gjaldtakan var tekin upp. Nú á
dögunum var t.d. Miðnesheiðin
kembd í sérstakri skoðun og þar
fannst ekki snitti af rusli. Ég veit þó
til þess að fólk hefur verið að keyra
út á Stapa þar sem Reykjanesbær er
með opið svæði fyrir jarðvegsúr-
gang og annað. Það er svæði sem
er ekki undir eftirliti og býður því
upp á það að fólk misnoti sér það,“
segir Jón. Hann vill meina það að
Reykjanesbær verði að vakta sín
mál betur, þetta sé frekar þeirra
áhyggjuefni.
Varðandi það að hafa lokað á
sunnudögum þegar fólk er alla-
jafna að taka til í geymslum og bíl-
skúrum þá segir Jón að ekki hafi
verið kvartað undan því að lokað sé
á þeim degi. „Það hefur verið lokað
á sunnudögum síðan 2008 og ég
hef ekki heyrt neitt kvartað undan
því. Við höfum stytt opnunar-
tímann aðra daga og það kemur
bara ágætlega út. Sunnudagsopnun
kostar meiri pening og það er verið
að reyna að spara.“
Jón segir að það komi talsvert af
peningum inn vegna gjaldtök-
unnar en honum finnst þó að gefa
þurfi lengri tíma til þess að öðlast
reynslu vegna hennar.
„Umferðin hjá okkur er hliðstæð
við það sem hefur verið undanfarin
ár. Eini munurinn sem við verðum
vör við er sá að fyrirtæki sem að
notuðu þessi plön mikið sem voru
eingöngu hugsuð fyrir heimilisúr-
gang eru nú í auknum mæli farin
að koma inn á vigt til okkar. Þannig
að það er mjög jákvæð breyting.“
Ekki er hægt að greiða með reiðufé
í Kölku en Jón segir það vera kostn-
aðarsamt. „Við erum að reka hér
opinbert fyrirtæki og þyrftum því
að taka upp fullkomið kassakerfi
sem kostar mikla peninga og því
var ákveðið að hafa þetta svona,“
en hægt er að borga með kortum og
þeir sem ekki hafa kort geta fengið
reikning sendan heim.
Jón kveðst vera sáttur með það
hvernig gengið hafi frá því gjald-
takan var tekin í gildi. „Já ég er það.
Við verðum a.m.k. ekki fyrir neinu
ónæði og leiðindum þó auðvitað
komi upp spurningar.“
„Einn kom t.d. hér með rúmdýnu
sem kostaði 875 krónur að farga.
Hann ákvað þó að fara með dýnuna
aftur heim og kom með hana tveim
dögum síðar þar sem hann hafði
rifið hana niður í tætlur. Hann
var þá búinn að taka allt efnið og
stoppið úr dýnunni sem rúmuðust
núna í hálfum ruslapoka sem hann
gat hent endurgjaldslaust. Svo var
hann með járnið úr dýnunni sem
mátti nú henda endurgjaldslaust
en ekki er rukkað fyrir að henda
málmum. Þannig að þessi maður
eyddi heilum degi í að spara sér 875
krónur,“ sagði Jón að lokum.
-eftir að gjaldtaka hófst á hluta úrgangs í
Kölku í upphafi árs hafa margir losað rusl á
stöðum sem óheimilt er að losa. Starfsmenn
Reykjanesbæjar fluttu 8 tonn af „ólöglegu“
rusli í Kölku á einum degi eftir páska.
Gjaldskylt sorp
á víðavanGi