Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2012, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 12.04.2012, Blaðsíða 8
8 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR ÖSPIN, BREKKUSTÍGUR 11, REYKJANESBÆR VIÐBYGGING 2012 Verkfræðistofa Suðurnesja ehf, fyrir hönd Reykjanesbæjar, óskar eftir tilboðum í verkið: „Öspin, Brekkustígur 11, Reykjanesbær – Viðbygging 2012“. Verkið felst í að byggja 176 m² viðbyggingu við Öspina, Brekkustíg 11, Reyk- janesbæ. Einnig eru endurbætur á núverandi byggingu sem er 160 m² að stærð. Húsinu skal skilað fullfrágengnu að utan og innan. Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2012. Útboðsgögn (geisladiskur eingöngu) verða seld á skrifstofu Verkfræðistofu Suðurnesja ehf, Víkurbraut 13, Reykjanesbæ, á kr. 10.000,- frá og með mánudeginum 16. apríl 2012. Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 30. apríl 2012, kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Aðalfundur    Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Kea- víkur og nágrennis verður haldinn í Krossmóa 4, 5. hæð, þriðjudaginn 24. apríl nk. kl. 20.00.   Dagskrá            Stjórnin Keflavíkurkirkja AÐALSAFNAÐARFUNDUR KEFLAVÍKURSÓKNAR verður sunnudaginn 29. apríl kl. 17:00 í kirkjunni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Nýr geisladiskur kórs Keflavíkurkirkju verður kynntur. Allir velkomnir. Sóknarnefnd Gærur, glimmer og gaddavír er yfirskrift hátíðartónleika Ljósanætur í ár og halda þeir fé- lagar Arnór Vilbergsson og Krist- ján Jóhannsson tímaferðalaginu áfram þar sem frá var horfið á síðasta ári en nú skulu tekin fyrir lög og tíðarandi áratugarins 1970 - 1980. „Sýningin Með blik í auga hlaut frábærar viðtökur áhorfenda á síð- ustu Ljósanótt en við ætlum að gera enn betur núna,“ segja þeir Arnór og Kristján sem bera hitann og þungann af öllum undirbúningi. Flutt verður tónlist áratugarins og má þar nefna Ríó tríó, Mána, Loga, Magnús og Jóhann, Brunaliðið og Brimkló og verður umgjörð sýn- ingarinnar öll hin glæsilegasta. Þátttakendur komu saman í And- rews leikhúsinu í vikunni til þess að hefja undirbúning en alls taka yfir 30 söngvarar og hljóðfæraleikarar þátt í sýningunni, allir af Suður- nesjum. Meðal flytjenda má nefna Valdimar Guðmundsson, Fríðu Dís Guðmundsóttur og sigurvegara söngvakeppni Samfés, Melkorku Rós Hjartardóttur. Arnór mun stjórna hljómsveitinni af sinni alkunnu snilld en Kristján á heiðurinn af handriti og mun leiða gesti í gegnum áratuginn í tali og myndum. Að þessu sinni verður riðið á vaðið í upphafi Ljósanætur og verður frumsýning miðvikudaginn 29. ágúst. Alls verða haldnir fernir tónleikar en þeir félagar lofa mikilli upplifun. Miðasala verður á midi.is og hægt verður að fylgjast með viðburð- inum frekar á facebook. Föstudaginn 13. apríl, kl. 13:00 verður opinn fyrirlestur um loftslagsbreytingar í Andrews Theatre á Ásbrú. Sigurður Eyberg, umhverfis- og auðlindafræðingur flytur erindi og forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, setur viðburðinn með frásögn af ferð sinni með Al Gore til Suðurheim- skautslandsins fyrr á árinu. Loftslagsbreytingar - vísindaskáldskapur eða raunveruleiki Eru loftslagsbreytingar raunveru- legar? Eru þær af mannavöldum? Af hverju er ekki verið að gera neitt í málunum ef þær eru raunveru- legar? Koma þær okkur við hér á Íslandi? Hvað get ég gert? Viðburðurinn er samstarfverkefni Climate Reality Project, samtaka Nóbelsverðlaunahafans Al Gore sem helgar sig upplýstri umræðu um loftslagsbreytingar, Garðars- hólms sem er miðstöð sjálfbærni sem er í smíðum á Húsavík, Stofn- unar Sæmundar Fróða, rann- sóknar- og þjónustustofnunar á sviði sjálfbærrar þróunar og þver- faglegra viðfangsefna innan Há- skóla Íslands og Keilis - miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Fyrirlesturinn er öllum opinn. – á hátíðartónleikum í Andrews á Ljósanótt Með blik í auga ii Gærur, glimmer og gaddavír Fyrirlestur um loftslagsbreytingar Sumarið kemur í næstu viku! Þar sem sumardagurinn fyrsti er næstkomandi fimmtudag munu Víkurfréttir koma út miðvikudaginn 18. apríl. Skilafrestur auglýsinga er á mánudaginn. Auglýsingasíminn er 421 0001 Póstfang auglýsingardeildar er gunnar@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.