Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2012, Side 24

Víkurfréttir - 12.04.2012, Side 24
Ljómi fortíðar Það er margt sem kemur í ljós á háaloftinu þegar maður byrjar að gramsa. Dótið og draslið sem fylgt hefur búslóðinni á milli staða er nátt- úrulega ómetanlegt. Síðar meir. En að nenna að drösla þessu á milli húsa er eiginlega bilun. Henti samt heilum bílfarmi í þar síðasta flutningi. Sé fram á að þurfa að fara eina ferð á næst- unni enda hefur þetta ekkert að gera þarna uppi á lofti. Annað en að safna ryki og vera byrði. En svo leynast gullmolarnir innan um sem ekki er hægt að henda, jafnvel þó þú viljir ekki hafa þetta framstillt inni í stofu eða uppi á hillu. Einn kassinn hafði að geyma heimilisbókhaldið frá árunum sem við hjónakornin hófum bú- skap. Fyrstu launaseðlarnir stíf- pressaðir og fínir. Varð grátklökkur að sjá hvað kallinn hafði verið duglegur í yfirvinnu í fraktinni hjá Flugleiðum. Kominn með heimili að sjá fyrir. Eða næstum því. Konu- kaupið kom úr Klippóteki. Hafði notað öll sparimerkin, sem safnast höfðu árin á undan í sumarhýrunni, til þess að festa kaup á fyrstu íbúð- inni. Nýi bíllinn, Mazda 1986, GTi 1600, eldrauður með topplúgu og lituðu gleri, samlituðum speglum og „low profile“ dekkjum, fékk að fara líka. Tók hæsta boði í gripinn. Gat ekki sungið lengur frasann „... með mynd af bílnum í vasanum“! Heppinn kaupandi. Fletti í gegnum margar möppur enda ævisagan sögð í prentuðu máli. Allir reikningar geymdir. Í skipulagðri röð, ár eftir ár. Slétt- fullar möppur af innkomum og útgreiðslum. Sérlega útgreiðslum. Bensín á lága verðinu. Sennilega alltof dýrt í minningunni engu að síður. Heimilisinnkaup úr Kaup- félaginu, mjólk, mikið af skyri og jógúrti, bleyjur, nautahakk. Rim- lagardínur í metravís úr Álnabæ, jólaskraut úr Stapafelli, málning úr Dropanum. Hljómplötur úr Hljóm- vali, eyrnapinnar úr Apótekinu, frystikista frá Sigga Símens. Allt hafði þetta sína þýðingu og lagði grunninn að velferð heimilisins. Á spottprís, jafnvel eftir að núllin voru tekin af krónunni nokkrum árum áður. Hef það ekki í mér að henda þessum æviágripum. Grasa- Leifi hefði bannað mér það, án efa. Frúin leit mig undrunaraugum þegar ég mændi á hana og bað griða. „Hentu þessu helvítis drasli og hættu að burðast með for- tíðina með þér“, sagði hún ísköld. Kassinn góði endaði tilveru sína í Kölku. Lífið okkar liggur nú innan um minningabrot annarra í gámi merktum heimilisúrgangur. Ljómi fortíðar bíður brennslu. Ókeypis. vf.is Fimmtudagurinn 12. apríl 2012 • 15. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr Gefðu sparnað í fermingargjöf Fermingarkortið er inneignarkort sem hentar þeim vel sem vilja gefa sparnað í fermingargjöf. Landsbankinn greiðir 5.000 króna mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn. Fermingarkortið er gjöf sem leggur grunn að � árhag framtíðarinnar. Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í útibúum Landsbankans. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.