Víkurfréttir - 12.04.2012, Qupperneq 10
10 fimmtudagurinn 12. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
STARFSKRAFTUR ÓSKAST
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
N1 leitar að áreiðanlegum og þjónustulunduðum
bifvélavirkja eða reynslumiklum viðgerðarmanni til
starfa á verkstæði félagins í Reykjanesbæ. Helstu
verkefni eru almennar hjólbarða- og bílaviðgerðir
ásamt annarri þjónustu við viðskiptavini.
Nánari upplýsingar veitir
Pétur A. Pétursson í síma
892-6012. Áhugasamir
geta einnig sótt um
starfið á www.n1.is
Fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 20:00 á Flughóteli
Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár.
2. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðastliðið
reikningsár lagðir fram til samþykktar.
3. Kosningar (stjórn og skoðunarmenn reikninga).
4. Kosnir fulltrúar á aðalfund Krabbameinsfélags
Íslands 5. maí nk.
5. Önnur mál. Fræðsluerindi:
Ágúst Steinar Kristjánsson frá Stómasamtökunum
allar um innsæi eftir veikindi.
Félagar og velunnarar Krabbameinsfélags Suðurnesja og
Sunnan 5 eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR
Dansleikur
á Nesvöllum
Félag eldri borgara heldur dansleik á Nesvöllum miðvikudaginn
18. apríl (síðasti vetrardagur) frá kl. 20:00 - 24:00.
Aðgöngumiði kr. 1000.
Skemmtinefndin.
Jóga með Ágústu
Ágústa Hildur Gizurardóttir, jógakennari
Ágústa er útskrifaður Raja jógakennari frá Jógaskóla Kristbjargar
Jogamedagustu/facebook
í Íþróttahúsinu Njarðvík
Ný 6 vikna námskeið að heast þann 16. apríl.
Kennsla fer fram á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 17:30-18:30
Þriðjudögum og mmtudögum frá kl.10:00-11:00 / 16:30-17:30
Jóga er frábær leið til þess að vera í tengingu
við sjálfa sig líkamlega og andlega.
Jóga eir einbeitingu, styrkir líkama og
innri líæri, örvar blóðæði líkamans.
Jóga er fyrir alla.
Skráning er han í síma 897 5774 eða á netfanginu
jogamedagustu@gmail.com
Neil Patrick-Harris
gæti kennt mér á lífið
Kormákur Andri Þórsson er í 9. UG í Myllubakkaskóla. Hann
svaraði nokkrum spurningum í létt-
ari kantinum sem Víkurfréttir lögðu
fyrir hann.
Hvað gerirðu eftir skóla?
Tölvuna bara og svo eru æfingar seinni
partinn.
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti og körfubolti.
Uppáhalds fag í skólanum?
Íþróttir.
En leiðinlegasta?
Náttúrufræði og eðlisfræði.
Hver er uppáhalds maturinn þinn?
Hamborgari á Wendy´s klikkar ekki.
En drykkur?
Vatnið er gott.
Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?
Neil Patrick-Harris, láta hann kenna mér á lífið.
Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?
Ég væri til í að geta flogið.
Hvað er draumastarfið í framtíðinni?
Atvinnumaður í einhverri krúttlegri íþrótt.
Hver er frægastur í símanum þínum?
Maggi Mix.
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Tryggvi Ólafsson, merkilegur drengur.
Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?
Komast að því af hverju stelpur fara alltaf tvær inn á klósett.
Umsjón
Páll Orri Pálsson
pop@vf.is
Nokkuð sérstök flugvél frá bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, hefur haft aðsetur á Keflavíkurflugvelli frá því um síðustu
mánaðamót. Vélin er sérstök útlits og eru það helst stórir vængir vélar-
innar sem vekja athygli og þar sem vélin er þróuð af NASA hafa gárung-
arnir talað um „NASA-vængi“. Þá vekur hjólabúnaður vélarinnar einnig
athygli. Eitt hjólastell er undir miðri vélinni og svo eitt stoðhjól nærri
stéli vélarinnar. Þá hefur hún nokkurs konar hjálpardekk á vængjum.
Það er því mikil nákvæmni sem þarf þegar vélinni er lent. Hjólabúnað-
inn má sjá á meðfylgjandi myndum sem ljósmyndari Víkurfrétta tók á
páskadag þegar vélin kom inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli.
Rannsóknarflugvél NASA Earth Resources (ER-2) kom til Keflavíkur
um síðustu mánaðamót eins og áður segir en flugvélin er sérhönnuð til
að fljúga í hárri lofthæð og útbúin fullkomnum mælitækjum. Vélin mun
dvelja á Íslandi í mánuð og sinna rannsóknum í mikilli lofthæð yfir Græn-
landi.
Markmiðið með veru vélarinnar hér á landi er að mæla nákvæmni nýlega
þróaðs mælitækis sem nefnist MABEL (Multiple Altimeter Beam Experi-
ment Lidar). Mælingarnar eru hluti af þróunarferli sambærilegs mælitækis
er verður hluti af IceSat-2, gervihnetti frá NASA sem verður loftsettur árið
2016 og er ætlað að fylgjast með umhverfis- og loftslagsbreytingum.
Verkefnið mun styðja við rannsóknir á loftlagsbreytingum með þróun
betri aðferða við að mæla bráðnun heimskautaíss.
Flugvélin er gerð út frá Rannsóknarflugsetri NASA í Edwards, Kaliforníu.
Flugmaður vélarinnar er Timothy L. Williams, reyndur flugmaður sem
starfaði lengi hjá Flugher Bandaríkjanna.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Kona tekin við
reykingar í flugvél
Óskað var eftir aðstoð
lögreglunnar á
Suðurnesjum
á föstudaginn
síðastliðinn vegna
flugfarþega sem hafði orðið
uppvís að því að reykja inni
á salerni flugvélar Icelandair.
Lögregla var mætt á staðinn
þegar flugvélin lenti. Farþeginn
reyndist vera rúmlega fertug
erlend kona, sem færð var til
varðstofu Flugstöðvardeildar
til nánari upplýsingatöku. Hún
kvaðst hafa reykt inni á salerni
flugvélarinnar þar sem hún
hefði verið á svo löngu ferðalagi.
Konan var frjáls ferða sinna að
svo búnu, en málið er í höndum
lögreglunnar á Suðurnesjum.
Ætluðu í læknis-
leik með notaða
sprautunál
Vegfarandi hafði sam-
band við lög-
regluna á Suður-
nesjum um páska-
helgina og vísaði
á sprautunál sem
lá í moldarbeði við hús í Reykja-
nesbæ. Hann hafði verið á gangi
framhjá húsinu, þegar hann
heyrði á tal nokkurra barna, um
það bil fimm ára gamalla, sem
voru að tala um að fara í læknis-
leik með sprautunál. Hann spurði
börnin hvað þau væru að gera en
þá hlupu þau í burtu. Nálin var
fjarlægð og eytt á lögreglustöð.
Þá tilkynnti annar vegfarandi
lögreglunni um fíkniefnaáhald,
sem reyndist vera hálfs líters
plastflaska sem notuð hafði verið
til fíkniefnaneyslu og var hún
fjarlægð. Lögreglan beinir þeim
tilmælum til fólks að hafa augun
opin fyrir slíkum hlutum og láta
tafarlaust vita í síma 420 1700.
Í hraðakstri á
Reykjanesbraut
Lögreglan á Suðurnesjum hefur undanfarna daga haft afskipti
af allmörgum ökumönnum sem
ekið hafa yfir löglegum hámarks-
hraða. Flest brotin áttu sér stað á
Reykjanesbraut. Sá sem hraðast
ók, var karlmaður á þrítugsaldri
en bíll hans mældist á 138 kíló-
metra hraða þar sem hámarks-
hraði er 90 km. Kona á svipuðum
aldri ók á 120 kílómetra hraða.
Önnur kona, sem ók á 118 kíló-
metra hraða reyndist ekki vera
með ökuskírteini þegar að var
spurt. Lögreglan hvetur ökumenn
til þess að virða hámarkshraða og
sýna aðgát við aksturinn.
›› FRÉTTIR ‹‹
Nasavængur með hjálpardekk
Sumarið kemur í næstu viku!
Þar sem sumardagurinn fyrsti er næstkomandi fimmtudag
munu Víkurfréttir koma út miðvikudaginn 18. apríl.
Skilafrestur auglýsinga er á mánudaginn.
Auglýsingasíminn er 421 0001
Póstfang auglýsingardeildar er gunnar@vf.is