Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.04.2012, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 26.04.2012, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGURINN 26. APRÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR MANNGILDISSJÓÐUR REYKJANESBÆR AUGLÝSIR TIL UMSÓKNAR STYRKI ÚR MANNGILDISSJÓÐI Skólaþróunarsjóður fræðsluráðs Hlutverk sjóðsins er að veita styrki og viðurkenningar sem að stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi í leik-, grunn- og tónlistarskólum Reykjanesbæjar. Styrkirnir eru veittir í samráði við reglur fræðsluráðs um styrki til þróunarverkefna frá 2006. Sækja þarf um til Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar fyrir 11. maí 2012. Umhverfissjóður Umsóknir sendist á usk@reykjanesbaer.is fyrir 10. maí. Fyrirspurnir sendist á usk@reykjanesbaer.is LÚÐRASVEITA- BÚNINGAR Leynist lúðrasveitabúningur heima hjá þér? T.d. anorakkur eða póló-bolur ? Eða kannski vesti frá fyrri tíð? Ef svo er, vinsamlegast skilaðu sem fyrst í Tónlistarskólann, Austurgötu 13, Reykjanesbæ Með kveðju, skólastjóri VORHREINSUN 2012 HVATNINGAR- VERÐLAUN FRÆÐSLURÁÐS ER EKKI ÁSTÆÐA TIL AÐ HRÓSA? Hin árlega vorhreinsun Reykjanesbæjar hefst 2. maí og stendur til 18. maí. Íbúar eru hvattir til að hreinsa til í görðum sínum og snyrta tré og runna sem snúa að gangstéttum og gangstígum. Sími Þjónustumiðstöðvar er 420-3200 ef þið óskið eftir aðstoð við að fjarlægja það sem til fellur. ATH. EINUNGIS VERÐUR TEKIÐ VIÐ LÍFRÆNUM GARÐAÚRGANGI Jarðvegslosunarstaður Reykjanesbæjar er á Stapa Innri Njarðvík . Einnig er hægt að fara með garðaúrgang í KÖLKU á opnunartíma. Fræðsluráð Reykjanesbæjar kallar eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs. Allir bæjarbúar geta tilnefnt einstaklinga eða skólaverkefni til verðlaunanna. Tilnefna má þróunar- og nýbreytniverkefni eða önnur vel unnin störf sem þykja til fyrirmyndar í starfsemi skóla á yfirstandandi skólaári. Tekið á móti tilnefningum á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar fram til 11. maí 2012. ›› FRÉTTIR ‹‹ Fiskikör hrundu á konu Lögreglan á Suðurnesjum var á mánudag kvödd í Voga, þar sem hafði orðið vinnuslys með þeim hætti að fiskikör féllu á konu. Konan hafði verið, ásamt annarri konu, að flokka keilu við vinnuborð þegar kör, full af fiski, sem staflað hafði verið fyrir aftan hana hrundu á hana. Hún kastaðist á vinnuborðið, sem kastaðist aftur á hina konuna sem vann á móti henni. Kon- urnar voru báðar fluttar með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Meiðsl annarrar þeirra reyndust vera minniháttar en grunur lék á að hin, sú sem fiskikörin féllu á, hafi axlarbrotnað. Féll af þaki húss Karlmaður féll af þaki húss í Reykjanesbæ um helgina. Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um slysið og fór hún á vettvang. Maðurinn hafði verið við vinnu á þaki húss- ins þegar atvikið átti sér stað. Hann var fluttur á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja til skoðunar og jafnframt var Vinnueftirliti ríkisins tilkynnt um slysið. Með dóp í nærklæðum Lögreglan á Suðurnesjum fór í húsleit í íbúðarhúsnæði í umdæminu um helgina, að fengnum hús- leitarúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Í hús- næðinu fundust meðal annars fjórir pokar af meintu amfeta- míni fyrir utan eldhúsglugga og einn poki af meintu kannabisefni í nærklæðum ungrar konu sem þar var stödd. Konan kvaðst eiga þessi meintu fíkniefni og viðurkenndi að hafa kastað hluta þeirra út um gluggann þegar hún varð vör við að það var lögreglan sem knúði dyra. Þá haldlagði lög- reglan kylfu í húsnæðinu. Hús- ráðandi veitti mikla mótspyrnu við handtöku og brotnaði við það hliðarspegill á lögreglubifreið. Sumarið gengið í garð Hin árlega skrúðganga skáta og tónlistarskóla Reykjanesbæjar var gengin á sumardaginn fyrsta. Sumarið er nú gengið í garð og venju samkvæmt var því fagnað með því að skátar í Heiðabúum fóru fyrir nokkrum fjölda fólks sem lagði leið sína að skátaheimilinu við Hringbraut. Þaðan var gengið vænan spöl en áningastaður var við Keflavíkurkirkju. Pikkfastur í glugga Þau eru af ýmsum toga, verk-efnin, sem rekur á fjörur lögreglunnar á Suðurnesjum. Um helgina hafði samband við hana karlmaður í umdæminu sem óskaði eftir aðstoð hið snarasta. Kvaðst hann hafa verið að reyna að skríða inn um glugga á heimili sínu en vera kominn þar í sjálf- heldu. Þegar lögreglumenn komu á staðinn reyndist húsráðandinn vera pikkfastur í glugganum. Lögregla losaði stormjárnið af opnunarfaginu og náði þar með að losa manninn. Lögreglumaður stökk svo inn um gluggann og opnaði fyrir húsráðandanum. Mánudaginn 16. apríl kom Jón Ingi Hannesson for- maður FEKÍ (Félags enskukenn- ara á Íslandi) færandi hendi í Myllubakkaskóla. Félagið hefur ásamt sendiráðum Indlands og Kanada haldið smásögusam- keppni fyrir unglinga í grunn- skólum landsins undanfarin ár. Veitt eru þrenn verðlaun frá hvoru landi og hafa þau verið afhent af sendiherrum landanna hverju sinni. Tveir nemendur Myllubakkaskóla hlutu að þessu sinni verðlaun fyrir smásögur sem tengjast Indlandi. Jón Ingi tjáði nemendum að Ind- land hefði ekki skipað nýjan sendi- herra og því hefði hann fengið umboð til að afhenda verðlaunin að þessu sinni. Það voru þeir Bjarki Freyr Ómarsson 9. ÞG sem hlaut 1. verðlaun og Jón Ásgeirsson 8. IM fékk verðlaun fyrir 3. sætið. Aðrir verðlaunahafar voru úr Lauga- lækjarskóla, Hagaskóla, og Hlíðar- skóla í Reykjavík. Þetta er í annað sinn sem nem- endur skólans fá viðurkenningu fyrir smásagnagerð á ensku og var kennari þeirra, Hildur Ellertsdóttir að vonum ánægð með árangurinn. n Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum hafti afskipti af allmörgum ökumönnum sem ekið hafa yfir leyfilegum hámarks- hraða í umdæminu. Flest brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók reyndist vera piltur um tvítugt og mældist bifreið hans á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Hann þarf að borga um 140 þúsund krónur í sekt og á yfir höfði sér ökuleyfis- sviptingu. Aðrir brotlegir ökumenn mældust frá 116 kílómetra hraða og allt upp í 143 km á klukkustund. Þeir eiga einnig yfir höfði sér sektargreiðslur upp á tugi þúsunda og sumir þeirra ökuleyfissviptingu að auki. Auk þessara ofangreindu gerðust þrír ökumenn til viðbótar brotlegir. Einn þeirra var ekki með ökuskírteini meðferðis, annar var með útrunnið ökuskírteini og hinn þriðji, karlmaður nær þrítugu, hafði aldrei öðlast ökuréttindi. n Tveir nemendur Myllubakka- skóla verðlaunaðir 140 þúsund í sekt fyrir hraðakstur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.