Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.04.2012, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 26.04.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGURINN 26. APRÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR Quinoa er glúteinlaust korn sem gefur góða næringu og er góð tilbreyting í daglegt mataræði. Það er ríkt af nær- ingarefnum eins og járni, kalki, magnesíum, fólínsýru, vítamín B2 og fosfór. Einnig inniheldur quinoa helstu amínósýrurnar sem líkaminn þarf og er talið vera full- komið prótein. Hægt er að nota quinoa sem meðlæti með mat, sem morgungraut, í brauð og bakstur, í súpur, o.fl. Þessi uppskrift hér að neðan veitir okkur orkuríka næringu og tilvalin til að grípa í sem millibita eða þegar okkur langar í eitthvað sætt og saðsamt. ¾ b medjool döðlur (um 7-8 stk, fjarlægja steina) 2/3 b hreinn eplasafi 1 tsk vanilluduft/dropar ¼ b chia fræ 2 msk kókósolía 1½ b quinoa flögur 1 b pistasíuhnetur (fjarlægja skel, gróft saxaðar) ½ b valhnetur (gróft saxaðar) 1½ b þurrkaðar fíkjur (gróft saxaðar) 1½ tsk kanill -gerir um 16 stk -hita ofn í 180°C -blanda döðlum, vanillu og eplasafa í skál og láta standa í 10 mín -setja í blandara eða töfrasprota og mauka saman -setja í litla skál og blanda chia fræjum saman við, setja til hliðar í 10 mín meðan fræin draga í sig vökva -á meðan, bræða kókósolíu á vægum hita og bæta quinoa flögum, pistasíuhnetum og valhnetum, hræra í 3-4 mín -bæta kanil og hræra vel saman við, taka af hita og setja í stóra skál -bæta fíkjum og chia/döðlumauki og hræra þar til þykkt deig -setja bökunarpappír á ofnskúffu og fletja deig vel út -láta bakast í 30 mín í ofni, láta kólna og skera svo í 5x5 kubba (gerir 16 stk alls) -geymist í kæli í 1 viku en líka gott að frysta og eiga seinna Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is Orkustykki úr quinOa www.facebook.com/grasalaeknir.is Ég er búin að átta mig á því að ég hef verið dramadrottning allt mitt líf, og þá ekki endilega með neikvæðum formerkjum. Man eftir mér sem barni setja upp hvert leikritið á fætur öðru og það var aldrei talin góð uppfærsla nema það væri slatti af drama og helst grátið í lokin. Börnin í leikritunum áttu það sameiginlegt að eiga erfiða æsku og voru fyrirmyndir eins og Stikilsberja-Finnur og Oliver Twist ofarlega á blaði. Ég var ekki gömul þegar ég fór í fýlu út í for- eldra mína, náði mér í prik eins og Stikilsberja-Finnur var vanur að nota, setti á það nokkrar fatadruslur og tilkynnti að nú væri ég farin að heiman. Þegar ég bað föður minn um pening fyrir strætófargjaldi því ég ætlaði mér að fara á munaðarleysingjarhæli, sá hann við dóttur sinni og sagði ,,Anna Lóa mín, ég skal bara skutla þér“ og þar með eyðilagði hann það dramakast. Móðir mín söng gjarnan fyrir okkur systkinin fyrir svefninn og lagið sem var í algjöru uppáhaldi hjá mér var um hann Villa litla sem dó. Ég fæ enn tár í augun þegar ég hugsa til systur Villa litla sem fór á krána til að reyna að fá pabba þeirra heim: Kom heim, kom heim, ó pabbi minn kæri kom heim! Ég er enn með samviskubit yfir sögunum sem ég bjó til og ,,tróð“ ofan í litlu systur, en flestar fjölluðu þær um að ég væri prinsessa í álögum hjá þessari venjulegu fjölskyldu á Seltjarnarnesi (sem mér fannst of venjuleg fyrir mig á ákveðnu tímabili) og bara spurning um hvenær ég yrði sótt. Systir mín hefur fyrirgefið mér enda hef ég reynt að útskýra fyrir henni að þetta hafi eftir allt saman verið ágæt æfing fyrir lífsins ólgusjó. Það var svo í haust sem ég settist á skólabekk og var í áfanga þar sem hvatt var til tilfinningaútrásar þar sem gráturinn var efstur á blaði. Dramadrottningin fann strax að þarna var hún búin að finna eitthvað sem átti ótrúlega vel við hana. Í áfanganum, voru nemendur hvattir til að lesa bækur og horfa á bíómyndir sem tengdust efni áfangans sem var dauðinn og sorgin. Þannig hef ég notið þess að lesa sorglegar bækur og horfa á bíómyndir sem hafa kallað fram ótrúlegustu til- finningaviðbrögð og skilið mig eftir máttfarna af gráti. Kvikmyndin Shadowlands stóð algjörlega undir væntingum sem grátmynd - og fyrir dramadrottninguna var ómetanlegt að geta setið fyrir framan sjónvarpið og grátið en geta í leiðinni sagt að þetta hafi verið heimaverkefni! Myndin, sem skartar þeim Anthony Hopkins og Debru Winger í aðalhlutverkum byggir á sannsögulegum atburðum og fjallar um ástarsamband breska rithöfundarins C.S. Lewis og bandarísku skáldkonunnar Joy Gresham. Þarna má finna allt sem prýðir gott drama og myndin full af yndisfögrum atriðum og setningum sem skilja engan eftir ósnort- inn (mundi ég halda). Í framhaldi af Shadowlands fékk ég lánaða myndina My sister´s keeper hjá frænku minni og þegar hún lét mig fá hana hvíslaði hún í eyra mér ,,Anna Lóa, ég mundi horfa á hana ein, en þá getur þú alveg sleppt þér og grátið óheft“. Það reyndist algjörlega hárrétt ákvörðun og ótrúleg útrás sem átti sér stað þá kvöld- stund. Þegar ég fékk síðan það verkefni að lesa barnabók fyrir einn tímann átti ég ekki von á að bókin yrði lesin upp til agna á einu kvöldi og mundi skilja mig eftir grátbólgna og þrútna og blaðsíðurnar límdar saman eftir tilfinninga rús- sibana af bestu gerð. Um er að ræða bókina Loforðið eftir Hrund Þórisdóttur en bókin fékk barnabókaverðlaunin árið 2007 og óhætt að mæla með henni fyrir börn jafnt sem fullorðna. Bókin fjallar á nærfærinn hátt um sorgina og dauðann en ekki síður um lífið sem heldur áfram þrátt fyrir áfall og missi. Ég veit ekki alveg hvað það er, en stundum fær maður svakalegt kikk út úr því að gráta almennilega. Maður getur skýlt sér á bak við myndir eða bækur en grátið í leiðinni út af alls konar gömlum óuppgerðum hlutum. Þannig getur maður safnað í góðan grát-bunka og sleppt sér svo almennilega: gamlir draumar, áföll, vonir sem urðu að engu, orð sem hafa verið sögð og önnur sem voru aldrei sögð, brostið hjarta og forboðin sorg. Allt eru þetta hlutir sem við gætum þurft að syrgja og þetta nýtti ég mér til hins ýtrasta. En að öllu gríni slepptu þá er nauðsynlegt að leyfa sér að gráta. Lífið er ekki einn táradalur en eitt og annað sem við þurfum að takast á við sem kallar fram tár eða tvö. Vanmat á sorg eða forboðin sorg, þar sem fólk lokast inni með tilfinningar sínar finnur sér yfirleitt annan farveg sé henni ekki sinnt. Þeir sem eiga erfitt tilfinningalega og finnst veikleikamerki að sýna sorgarviðbrögð finna oft fyrir meiri líkamlegum einkennum en þeir sem gangast við sorginni. Við þurfum að hlúa að sorginni eins og öðrum sárum, þau gróa með tímanum en eftir standa ör sem minna okkur á. Ef þú lesandi góður skyldir mæta mér úti á göngu eða akandi um götur bæjar- ins, rauðflekkótta í framan með maskara niður á kinnar þá skaltu ekki örvænta. Ég er líklega bara að hlusta á góða dramatíska hljóðbók eða Titanic lagið (hver grætur ekki yfir því), eða með kveikt á útvarpinu og þar er verið er að tala á ,,léttu“ nótunum um ástandið á Íslandi. Góður grátur er gulli betri! Þangað til næst - gangi þér vel! Anna Lóa Góður grátur er gulli betri! List án landamæra á Suður-nesjum þakkar bæjarbúum frábærar móttökur og veittan stuðning á Geðveiku kaffihúsi sem fram fór í Svarta pakkhúsinu á sumardaginn fyrsta. Óhætt er að segja að þátttakan hafi farið fram úr björtustu vonum skipu- leggjenda enda var kaffihúsið þétt setið allan opnunartímann og mikil gleði við völd á þessum fyrsta degi sumars sem skartaði sínu fegursta af því tilefni. Ýmsar skemmtilegar uppákomur litu dagsins ljós. Félagar úr Björg- inni, geðræktarmiðstöð, fluttu ljóð sem hrifu nærstadda með einlægni sinni. Þá var flutt brot úr leikverki sem leikhópur Listar án landamæra er nú að æfa fyrir sviðs- skemmtun sem haldin verður 5. og 6. maí í Frumleikhúsinu og ljóst að þar er á ferðinni nokkuð sem enginn má láta framhjá sér fara. Þá kom fram hljómsveitin Eldar sem einnig heillaði áheyrendur með sinni angurværu tónlist í flutningi Valdimars Guðmundssonar og Björgvins Ívars Baldurssonar. Það var Björgin sem stóð fyrir kaffi- húsinu og glæsilegum veitingum en þátttakendur komu þó víðar að m.a. frá Hæfingarstöðinni, Mið- stöð símenntunar og Reykjanesbæ auk einstaklinga sem m.a. seldu listaverk og handverk. Saman sköpuðu þau þetta skemmtilega kaffihús sem vonandi verður að ár- legum viðburði héðan í frá. Það er ekki sjálfgefið mál að hópar eins og Björgin og Hæfingarstöðin hrindi af stað verkefnum sem þessum og setji sjálfa sig í forgrunn með þeim hætti sem hér var gert og því er óhætt að óska þeim til hamingju með frábært framtak og frammi- stöðu. Það eru sveitarfélögin á Suður- nesjum sem í sameiningu standa fyrir verkefninu List án landamæra á Suðurnesjum með styrk frá Menningarsjóði Suðurnesja. Duglegir leik- skólakrakkar! Ég er bara að styrkja bæjar-vinnuna! Hver hefur ekki heyrt þennan? Afar gamall og útbrunninn brandari þess efnis að það sé í lagi að henda rusli út um gluggann á bílnum eða á víðavangi því það mun einhver annar koma og hirða upp eftir mig, þetta er bara góðverk að sjá til þess að hann hafi eitthvað að gera. Þetta er kannski orðinn svo gamalgróinn brandari að sumir halda að þetta sé í alvöru? Nú þegar vorið er komið horfum við flest í kringum okkur og klæjar í puttana að fegra umhverfið og reyna eftir fremsta megni að flýta komu sumars. Yngstu börnin eru kannski okkar bestu fyrirmyndir í þessum efnum, þau óhikað beygja sig niður eftir rusli sem verður á vegi þeirra og finna því stað í næstu tunnu. Ósjaldan heyri ég af leikskóla- hópum sem tóku með sér rusla- poka í vettvangsferðina því þeim blöskraði svo ruslið síðast þegar þau fóru út. Ég verð alltaf jafn glöð að heyra af svona góðverkum og eiga þau öll lof skilið bæði starfsfólk og nemendur fyrir að vera svona dugleg og meðvituð um umhverfið sitt. Það þarf oft ekki mikið til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið. Lítum okkur nær og munum að þetta er bærinn okkar og ábyrgðin okkar. Kveðja, Berglind Ásgeirsdóttir Garðyrkjufræðingur hjá Reykjanesbæ Nemendur í 8.–10. bekk í Heiðarskóla fengu heimsókn frá NASA í síðustu viku. Tveir vísindamenn sögðu nemendum frá rannsóknum NASA á jökul- breiðu Grænlands og ísbreiðunni í kringum Norðurpólinn. Þessar rannsóknir eru unnar í samstarfi við Veðurstofu Íslands. Nemendur fengu mjög góðar lýs- ingar á því hvernig mælingarnar eru gerðar og hvers konar tækni er notuð. Flugvélin sem notuð er í þessu verkefni kallast ER-2 og er henni flogið í allt að 70 þúsund feta hæð, sem gerir það að verkum að flugmaður vélarinnar verður að klæðast geimbúningi. Það sem vakti hvað mesta forvitni nemenda var einmitt geimbún- ingurinn, en tveir geimbúninga- tæknimenn sögðu nemendum allt um það hvernig þeir virka og hvers vegna þörf er á að klæðast bún- ingnum. Í lok kynningarinnar gafst nem- endum kostur á að spyrja vísinda- mennina og komu fram margar skemmtilegar spurningar. Miklar umræður urðu um það hvernig flugmennirnir gætu matast og gert nauðsynlegar þarfir, klæddir í geimbúning. Gaman er að segja frá því að öll kynningin fór fram á ensku og var athyglisvert að sjá um 150 nemendur hlusta á hana og að því virtist, skilja allt sem fram fór. NASA heimsótti Heiðarskóla Þakkir frá geðveiku kaffihúsi

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.