Víkurfréttir - 26.04.2012, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGURINN 26. APRÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
„Bæjarráð leggur til að frum-
varpið verði dregið til baka og
nefndin hefji að nýju vinnu við
fiskveiðistjórnunarkerfið á niður-
stöðu Sáttanefndar í sjávarútvegs-
málum sem skilaði af sér haustið
2010. Í þeim tillögum náðist fram
sátt milli allra helstu hagsmuna-
aðila, en andstaða tveggja aðila
varð til þess að þeirri miklu vinnu
var hent út af borðinu," segir m.a.
í ályktun bæjarráðs Grindavíkur-
bæjar sem samþykkt var á bæjar-
ráðsfundi í síðustu viku.
Fyrir fundinum lá beiði um umsögn
frá Atvinnuveganefnd Alþingis um
frumvarp til laga um stjórn fisk-
veiða (heildarlög), 657. mál.
Tillaga að umsögn um frumvarp til
laga um stjórn fiskveiða og frum-
varp til laga um veiðigjald lagt
fram.
Bæjarráð samþykkir umsögnina
og felur bæjarstjóra að senda til
atvinnuvegar Alþingis.
Úrdráttur vegna frumvarps til laga
um stjórn fiskveiða og frumvarps
til laga um veiðigjald:
„Bæjarráð og bæjarstjórn Grinda-
víkurbæjar hafa undanfarin miss-
eri samþykkt bókanir og umsagnir
um fiskveiðistjórnunarmál þar
sem lögð hefur verðið áhersla á að
leitað verði leiða til að ná sátt um
íslenskan sjávarútveg með reglum
sem hafi það að markmiði að þær
styrki greinina í heild sinni og skapi
hvata til þess að hámarka verðmæti,
draga úr framleiðslukostnaði og
auka þar með arðsemi og tekjur
þjóðarbúsins.
Sjávarútvegsfyrirtækin í Grinda-
vík skapa um 1.000 bein störf við
veiðar og vinnslu á Íslandi, sem
eru álíka mörg störf og eru í ál-
iðnaði á Íslandi. Varlega áætlað
hleypur fjöldi afleiddra starfa sem
sjávarútvegur í Grindavík skapar
á fleiri hundruðum. Þessi störf eru
mönnuð starfsmönnum sem búa
um allt land. Áhrif sjávarútvegs í
Grindavík ná því víða.
Helstu áhrif frumvarpanna tveggja
á Grindavík verða að:
• Aflaheimildir dragast saman um
á annað þúsund þorskígildistonn
sem leiða til samdráttar í útsvar-
stekjum Grindavíkurbæjar upp á
um 30 milljónir kr. á ári.
•Það mun kosta útgerðir yfir 300
m.kr. að leigja til sín heimildir af
kvótaþingi til að verða jafnsettar
og áður.
• Hlutur sveitarfélagsins af leigu-
kvóta í gegnum kvótaþing verður
takmarkaður og mun að líkindum
ekki vega upp tekjutap vegna
skerðinganna. Ekki liggur fyrir
hvernig tekjunum verður skipt
milli sveitarfélaga.
• Grunnveiðigjald og sérstakt veiði-
gjald í Grindavík á síðasta ári hefði
numið yfir 2.000 m.kr.
• Búast má við að stóraukin gjald-
heimta af sjávarútvegsfélögunum
leiði til þess að fyrirtækin reyni að
draga úr kostnaði annars staðar,
m.a. með því að endursemja við
sjómenn og annað starfsfólk, fækka
stöðugildum og draga úr þjónustu-
kaupum. Lækkun á launakostn-
aði fyrirtækjanna og minnkandi
þjónustukaupum mun skila sér í
enn frekari lækkun útsvarsstofns
Grindavíkurbæjar og samdrætti í
tekjum hafnarinnar.
Verði frumvörpin að lögum er
ljóst að áhrifin verða verulega
neikvæð á samfélagið í Grindavík
og á Suðurnesjum öllum og mun
að öllu óbreyttu valda enn meira
atvinnuleysi og því að íbúum á
svæðinu kann að fækka. Það er
ekki á samfélagið á Suðurnesjum
leggjandi. Áhrifin munu jafnframt
koma fram á öðrum svæðum, en
fyrirtækin í Grindavík sækja starfs-
fólk, og þá ekki síst sjómenn, um
land allt.
Bæjarráð leggur til að frumvarpið
verði dregið til baka og nefndin
hefji að nýju vinnu við fiskveiði-
stjórnunarkerfið á niðurstöðu
Sáttanefndar í sjávarútvegsmálum
sem skilaði af sér haustið 2010.
Í þeim tillögum náðist fram sátt
milli allra helstu hagsmunaaðila,
en andstaða tveggja aðila varð til
þess að þeirri miklu vinnu var hent
út af borðinu.“
Bæjarráð Grindavíkur mótmælir nýju kvótafrumvarpi
Víkingaheimar hafa gengið gegnum mikla endurnýjun
síðustu vikur og þar verður hægt
að skoða og upplifa margar nýjar
sýningar á næstu mánuðum.
Víkingaheimar eru ekki bara eitt
sýningarhús með einni sýningu
heldur heilt svæði með margvís-
legum sýningum og upplifunum,
bæði úti og inni. Af þessu til-
efni var opnunarhátíð haldin á
staðnum sl. þriðjudag.
Á útisvæðinu er t.d. ný útikennslu-
stofa sem býður upp á tækifæri til
alls kyns fræðilegrar vinnu fyrir
hópa. Landnámsdýragarður er rek-
inn á svæðinu yfir sumarmánuðina
og nú er verið að leggja lokahönd á
sérstakt leiksvæði þar sem leikir og
íþróttir víkinga verða í fyrirrúmi.
Þurrabúðin Stekkjarkot er tilgátu-
hús sem stendur í útjaðri svæðisins
og tilvalið að kíkja þar í heimsókn.
Inni í sýningarhúsinu sjálfu verða
fimm sýningar í gangi. Fyrst má
telja Íslending, víkingaskipið sjálft
sem sigldi til Ameríku árið 2000
og allt sem því fylgir. Einnig má sjá
endurnýjaða sýninguna Víkingar
Norður-Atlantshafsins, sýningu
um siglingar og landnám norrænna
manna sem sett var upp í sam-
starfi við Smithsonian stofnunina
í Bandaríkjunum. Þriðja sýningin
í húsinu er sýning á merkum forn-
leifum af Suðurnesjum og má þar
nefna gripi bæði úr Hafurbjarnar-
kumlinu og úr nýjustu rannsókn-
inni í Höfnum. Fjórða sýningin
er kynning á helstu söguslóðum á
Íslandi unnin í samstarfi við Sam-
tök um sögutengda ferðaþjónustu.
Fimmta sýningin kallast svo Örlög
goðanna og fjallar um norræna
goðafræði. Þarna eru raktar ýmsar
þekktar sögur af norrænu goð-
unum með aðstoð einstakra leik-
mynda eftir listakonuna Kristínu
Rögnu Gunnarsdóttur, tónlist
eftir Hilmar Örn Hilmarsson alls-
herjargoða ásamt hljóðleiðsögn á
fjórum tungumálum sem Ingunn
Ásdísardóttir þjóðfræðingur hefur
tekið saman.
Í húsinu er einnig fyrirlestrarsalur,
sala á kaffiveitingum og minja-
gripum.
Víkingaheimar eru opnir allan
ársins hring, sumaropnunin hefst
1. maí: Opið frá kl. 11.00 - 18.00.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 fyrir full-
orðna, ókeypis fyrir börn 14 ára og
yngri og hægt að fá hópafslátt.
Endurnýjaðir Víkinga-
heimar opnaðir
›› Reykjanesbær:
Sýningin Örlög goðanna hefur verið opnuð í Víkingaheimum. Virkilega glæsileg sýning.Víkingaskipið Ís-
lendingur skipar
veigamikinn sess
á sýningunni í
Víkingaheimum en
nú hefur sýningar-
munum frá
Smithsonian-safn-
inu verið komið
fyrir umhverfis
skipið.
HAGSTÆÐ ÁRGJÖLD
GLÆSILEGUR GOLFVÖLLUR
FRÁBÆR ÆFINGAAÐSTAÐA
BYRJENDAVÖLLUR
GOLFKENNSLA
Hafið samband í síma 421 4100 eða netfangið gs@gs.is
ÞAÐ ERU ALLIR VELKOMNIR Í LEIRUNA.
SJÁIÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.GS.IS
EÐA HRINGIÐ Í SÍMA 421-4100.
KOMDU Í GOLF
Í LEIRUNNI