Víkurfréttir - 26.04.2012, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGURINN 26. APRÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
›› TÓNLIST ‹‹
Aníta Lind Fisher er í 9. bekk í Myllubakka-
skóla. Hún hefur áhuga á
að fara í flugmanninn og
væri til í að hafa ofurkraft
sem kallast telepathy.
Hvað gerirðu eftir skóla?
Fer á æfingu eða í píanó-
tíma, hitti vinina ef ég hef
tíma. Svo finnst mér best
að slaka á á kvöldin.
Hver eru áhugamál þín?
Íþróttir, tónlist og ég hef
áhuga á fluginu líka.
Uppáhaldsfag í skólanum?
Íþróttir og lífsleikni eru
uppáhaldsfögin.
En leiðinlegasta?
Danska, við erum samt með
frábæran kennara en tungu-
málið er ekki mín sterkasta hlið.
Hver er uppáhalds-
maturinn þinn?
Kjötsúpan hjá ömmu
hefur verið í uppáhaldi
síðan ég man eftir mér.
En drykkur?
Íslenska vatnið er alltaf best.
Ef þú gætir hitt einhvern
frægan, hver væri það?
Beyonce Knowles
Ef þú gætir fengið einn ofur-
kraft hver væri hann?
Það væri
ekki
leiðin-
legt að
hafa
einn
sem
kallast
tele-
pathy, ef
þú hefur
þennan
hæfileika
þá geturðu séð hvað fólk hugsar.
Hvað er drauma-
starfið í framtíðinni?
Ég stefni á flugmanninn.
Hver er frægastur í sím-
anum þínum?
Þau eru nokkur fræg, Thelma,
Elfa, Andrea, Leonard, Marvin
og Inga eru þau helstu.
Hver er merkilegastur
sem þú hefur hitt?
Hef ekki beint hitt neinn sem
er merkilegri en einhver annar,
en það var ekki leiðinlegt að
sjá Katy Perry síðasta sumar.
Hvað myndirðu gera ef þú
mættir vera ósýnileg í einn dag?
Ég mundi taka hana Helenu Rós
vinkonu mína á þetta og prófa
að labba á vegg og athuga hvort
ég kæmist í gegnum hann.
Umsjón
Páll Orri Pálsson
pop@vf.is
Kjötsúpan hjá ömmu er best
AÐALFUNDUR
STARFSMANNAFÉLAGS
SUÐURNESJA
Verður haldinn miðvikudaginn 9. maí
kl. 20:00 að Krossmóa 4, 5. hæð
Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt lögum félagsins
Kaffiveitingar
Félagar hvattir til að mæta
Stjórn STFS.
Sumarafleysingar - Tollafulltrúi
Starfssvið:
• Tollskýrslugerð
• Náin samvinna með
tollgæslunni
• Reikningagerð
• Samskipti við viðskiptavini
og samstarfsmenn í öðrum
deildum
• Þátttaka í öðrum verkefnum
innan deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tollmiðlararéttindi eru æskileg
• íslenska og enska,
talað og ritað mál.
• Framúrskarandi þjónustulund
& lipurð í mannlegum
samskiptum
• Góð almenn tölvukunnátta,
kunnátta í Navision æskileg
• Nákvæm og skipulögð
vinnubrögð
• Hreint sakarvottorð er skilyrði
• Frumkvæði og geta til þess að
vinna undir álagi
DHL Express á Íslandi óskar eftir að ráða tollafulltrúa í
sumarafleysingar á starfsstöð sinni á Keflavíkurflugvelli.
Umsóknarfrestur til og með 4. maí 2012
Áhugasamir eru hvattir til að senda ferilskrá á netfangið atvinna@dhl.com
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Tómasdóttir,
starfsmannastjóri DHL Express á Íslandi, í síma 535 1100.
DHL Express á Íslandi
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Börn og umhverfi -
námskeið
(áður barnfóstrunámskeið)
Haldið verður námskeið fyrir einstaklinga á
aldrinum 12-15 ára (12 ára á árinu) og fer fram
dagana 7. maí - 10. maí 2012 (fjögur kvöld)
frá kl. 18:00 - 21:00 alla dagana. Kennt verður
að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ.
Farið er yfir ýmsa þætti er varða umgengni og
framkomu við börn, ásamt kennslu í skyndi-
hjálp. Námskeiðsgjald er kr. 4.500.-
Skráning og nánari upplýsingar í síma
420 4700 virka daga frá kl.13:00 - 16:30 eða
með tölvupósti á sudredcross@sudredcross.is
Staðfestingarskírteini að námskeiði loknu.
ORLOFSHÚS
VERKALÝÐSFÉLAGS
GRINDAVÍKUR SUMARIÐ 2012
Frá og með 21. apríl til og með 15. maí verður tekið á
móti umsóknum um orolofshús Verkalýðsfélagsins
fyrir sumarið 2012.
Er á eftirtöldum stöðum:
Hallgeirshólum, Skorradal og Apavatni.
Allir bústaðir eru með heitum potti
Umsóknarfrestur til 15. maí
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Verkalýðsfélagsins að Víkurbraut 56
Orlofsnefndin.
Vortónleikar
Kvennakórs
Suðurnesja
Kvennakór Suðurnesja fagnar vori með tónleikum í Bíósal
Duushúsa mánudaginn 30. apríl
og fimmtudaginn 3. maí. Tón-
leikarnir hefjast kl. 20 báða dag-
ana. Á tónleikunum flytur kór-
inn úrval íslenskra og erlendra
laga sem senda sumaryl í hjörtu
þeirra sem á hlýða. Þar á meðal
eru tvö lög eftir Hrafnhildi Bryn-
dísi Rafnsdóttur sem er félagi í
kvennakórnum. Einnig munu
einsöngvarar úr röðum kórsins
flytja nokkur lög, en það eru þær
Birta Rós Arnórsdóttir, Steinunn
Björg Ólafsdóttir og Una María
Bergmann.
Helgina 19. - 20. maí ætlar kórinn
síðan að halda í ferðalag á Snæfells-
nes og munu kórkonur ylja Snæfell-
ingum með söng sínum auk þess að
skoða sig um á þessu fallega svæði.
Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn
Jónsdóttir og meðleikari á píanó er
Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr.
við innganginn en hægt er að kaupa
miða í forsölu á 1.500 kr. hjá kór-
konum. Einnig er hægt að hringja
og panta miða í síma 8974776 og
8987744 eða senda tölvupóst á
netfangið kvennakorsudurnesja@
gmail.com.
Tónlistarveisla
í Stapanum
Karlakór Keflavíkur heldur stór-
tónleika í Stapanum þriðjudaginn
8. maí og fimmtudaginn 10. maí.
Í vetur hefur kórinn verið önnum
kafinn. Fyrir áramót söng kórinn
tvenna tónleika með Grundar-
tangakórnum. Þá tók kórinn
þátt í 100 ára afmælistónleikum
Karlakórsins Þrastar í Hörpunni
í febrúar. Kórinn hefur sungið á
árshátíðum í Bláa lóninu, m.a. með
stjörnurokkaranum Eyþóri Inga og
einnig á eigin vegum.
Kórinn kveður nú Guðlaug Vikt-
orsson stjórnanda sinn til 8 ára en
Guðlaugur heldur til framhalds-
náms erlendis. Af þessu tilefni
verður meira lagt í tónleikana en
venjulega vortónleika.
Á tónleikunum verður boðið upp
á söngleikjalög úr West Side Story
og My Fair Lady, tónlist eftir Irving
Berlin og Leonard Bernstein. Þá
mun kórinn syngja nokkra kóra úr
óperuverkum svo sem Hermanna-
kórinn úr Faust, Pílagrímakórinn
úr Tannhäuser, Veiðimannakórinn
og Steðjakórinn.
Einnig mun kórinn flytja „brot af
því besta“ frá samstarfi kórsins og
Guðlaugs Viktorssonar. Má þar
nefna lög eftir Bellman, Hildigunni
Rúnarsdóttur, Oddgeir Kristjáns-
son, Ólaf Gauk, Bjarna J. Gíslason,
Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson
og Magnús Kjartansson.
Lögreglan á Suðurnesjum
stöðvaði aðfaranótt
sumardagins
fyrsta ökumann
vegna gruns um að
hann væri ölvaður
undir stýri. Mað-
urinn harðneitaði að hafa neytt
áfengis fyrr um kvöldið, þótt
af honum væri megn áfengis-
lykt. Hann var tvívegis látinn
blása í áfengismæli en gaf ófull-
nægjandi blástur í bæði skiptin.
Hann var því handtekinn og
færður á lögreglustöð. Þar var
hann enn látinn blása í áfengis-
mæli en bar því þá við að hann
gæti ekki blásið þar sem mælirinn
væri stíflaður. Með þessu fram-
ferði var litið svo á
að hann neitaði að
gefa öndunarsýni og
honum gerð grein
fyrir því að slíkt
varðaði, samkvæmt
umferðarlögum,
100 þúsund króna
sekt, auk árs sviptingar öku-
réttinda, að viðbættri sekt og
sviptingu fyrir ölvunarakstur.
Að því búnu var honum enn
gefið tækifæri til að blása en
hann þverskallaðist við. Fagaðili
var þá fenginn á lögreglustöðina
til að taka blóðsýni úr mann-
inum sem hinn síðarnefndi
féllst á eftir nokkurt þóf. Próf-
anir á áfengismælinum sýndu
að hann var í fullkomnu lagi.
Stútur neitaði að blása
Nýjustu fréttir
eru á vf.is