Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Dagana 2. – 4. maí nk. verður gríðarlega mikið að gerast
í Njarðvíkurskóla. Ástæðan?
Njarðvíkurskóli verður 70 ára.
Þessa daga verða nemendur og
starfsfólk skólans á fullu í þema-
vinnu sem tengist afmælinu. Þann
4. maí verður lokahönd lögð á
afmælishátíðina með vinnu við
„Tímahylkið“ og afhendingu á „Af-
mælisarmbandi skólans“.
Afmælishátíðin hefst síðan með
opnun kl. 12:30 í Íþróttamiðstöð-
inni í Njarðvík. Þar verður formleg
opnun, ávörp, kynning á skólaleik-
ritinu ásamt söng. Gestum er síðan
boðið til sýningar í skólanum.
Njarðvíkurskóli verður síðan opin
fram eftir degi þar sem afmælis-
verkin verða til sýnis ásamt af-
rakstri vetrarins.
Eins í öllum alvöru afmælum þá
verða afmælisveitingar, afmælis-
terta ásamt djús og kaffi. Einnig
verður boðið upp á afmælismynda-
töku. Afmælisútgáfa af skólablaðinu
Nirði verður til sölu og kökubasar
9. bekkinga verður á staðnum.
Skólaleikritið verður síðan frum-
sýnt mánudaginn 7. maí.
Á afmælishátíðinni 4. maí vonumst
við til þess að sjá sem flesta, nú-
verandi og fyrrverandi nemendur,
ásamt foreldrum og starfsfólki
skólans í gegnum tíðina.
Nemendur og starfsfólk Njarð-
víkurskóla fagna þessum dögum og
bjóða ykkur hjartanlega velkomin
til sýningar á 70 ára afmælisdegi
skólans þann 4. maí sem þau vona
að þið njótið sem allra best með
þeim.
Nemendur og starfs-
fólk í Njarðvíkurskóla.
Þyrla lendir við
Heiðarskóla á
laugardag
Laugardaginn 5. maí 2012
fer fram stór
flugslysaæfing
á Keflavíkur-
flugvelli og er
fyrirhugað að
nota þyrlu Land-
helgisgæslunnar við æfinguna.
Þyrlan mun lenda nokkrum
sinnum á grassvæðinu norðan
við Heiðarskóla og er tíma-
setningin áætluð um hádegis-
bilið þann 5. maí 2012, segir í
tilkynningu frá lögreglunni á
Suðurnesjum til íbúa í Vallar- og
Heiðarhverfi í Reykjanesbæ.
Með tilkynningu þessari vill lög-
reglan vekja athygli á þessu þannig
að þetta komi fólki ekki á óvart
enþyrlunni fylgir töluverður há-
vaði og fyrirferð. Lögreglan tryggir
svæðið og tekur á móti þyrlunni.
Tjaldstæði útbúið
við íþróttamið-
stöðina í Garði
Bæjarráð Garðs leggur
til að þegar verði
hafin undir-
búningur að því
að skipta um
jarðveg og hlaða
þann hluta tjald-
svæðisins sem hýsir húsbíla, en
í þann hluta vinna listamenn
í Ferskum Vindum verk sín í
sumar. Þegar hefur verið tryggt
grjót í hleðsluna. Nýtt tjald-
svæði fyrir Sveitarfélagið Garð
verður búið til á lóð við hlið
íþróttamiðstöðvarinnar í Garði.
Byggingafulltrúi kom á fundinn
og fór yfir skipulag á svæðinu,
en unnið er að breytingum á
Aðal- og deiliskipulagi á svæðinu
en sú vinna hefur tekið meiri
tíma en ráð var fyrir gert.
Gert er ráð fyrir þessum hluta
verkefnisins í fjárhagsáætlun 2012.
MATJURTAGARÐAR
REYKJANESBÆJAR
2012
Úthlutun matjurtagarða Reykjanesbæjar er hafin.
Svæðin eru í Grófinni og í Dalshverfi neðan við Seljudal.
Hver reitur er um 20m2 og gjaldið er 3000 kr.
Þeir sem óska eftir sama reit og í fyrra verða að
staðfesta pöntun fyrir 10. maí.
Hægt er að panta garð í síma Þjónustumiðstöðvar
420-3200 á opnunartíma
LISTASAFN
REYKJANESBÆJAR
TILVIST
Síðasta sýningarhelgi á olíu- og vatnslitaverkum
Jóns Axels Björnssonar.
Opið 13:00 - 17:00
Aðgangur ókeypis
Verið velkomin
Duushús, Duusgötu 2-8
AÐALFUNDUR
FASTEIGNA
REYKJANESBÆJAR
Aðalfundur Fasteigna Reykjanesbæjar ehf. verður
haldinn mánudaginn 14. maí 2012, kl. 16:00 að
Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sérstaklega er bent á að skv. 16. gr. samþykkta
félagsins hafa leigjendur íbúða í eigu félagsins rétt til
setu á aðalfundi þess með málfrelsi en án tillögu- eða
atkvæðisréttar.
Framkvæmdastjóri.
ÚTIVISTARTÍMI
BREYTTUR ÚTIVISTARTÍMI
BARNA Í SUMAR
Fjölskyldu-og félagsþjónustan minnir á að útvistartími
barna og unglinga tekur breytingum 1. maí og þá mega
12 ára börn og yngri vera úti til kl. 22.00 en 13-16 ára
unglingar mega vera úti til kl. 24.00. Börn mega ekki
vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd
með fullorðnum.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum
og er þeim m.a. ætlað að tryggja öryggi barna auk þess
sem mikilvægt er að börn og unglingar fái nægan
svefn.
Fjölskyldu- og félagsþjónustusvið
›› FRÉTTIR ‹‹
70 ára afmæli Njarðvíkurskóla fagnað
Ættfræði á
bókasafninu
Félagar af Suðurnesjum í Ætt-fræðifélaginu ætla að hittast
á bókasafninu og ræða saman
um ættfræði þriðjudaginn 8.
maí 2012 kl. 17:00-19:00.
Allir áhugasamir eru velkomnir.
Hafsteinn Guð-m u n d s s o n ,
fyrrverandi íþrótta-
k e n n a r i o g for-
stöðumaður, lést á
Hlévangi í Reykja-
nesbæ 29. apríl, 89
ára að aldri. Hann
fæddist 1. október
1923 í Reykjavík,
s o n u r V i g d í s a r
Waage Ólafsdóttur
og Guðmundar Sig-
mundssonar.
Hafsteinn nam við Samvinnu-
skólann 1943-45, Íþróttakenn-
araskólann á Laugarvatni 1946-
47 og Íþróttaháskólann í Köln
1951.
Hann var íþróttakennari á Suður-
nesjum í 43 ár og forstöðumaður
Sundhallar Keflavíkur og Sund-
miðstöðvarinnar í Keflavík.
Hafsteinn lék á sínum tíma með
meistaraflokki Vals í knattspyrnu
og síðar Íþróttabandalagi Kefla-
víkur (ÍBK). Jafnframt lék hann
með meistaraflokki Vals í hand-
knattleik. Hafsteinn
v a r ð n o k k r u m
s innum Ís lands-
meistari með Val,
bæði í knattspyrnu
og handknattleik.
Hann var annar
tveggja sem léku
fyrstu landsleiki Ís-
lands í knattspyrnu
1946 og í handknatt-
leik 1950.
Hafsteinn var for-
maður ÍBK frá stofnun 1956 og
til 1975, formaður UMFK 1978-
81, í stjórn KSÍ 1968-72, í lands-
liðsnefnd KSÍ og síðar einvaldur
1969-73 og í stjórn HSÍ 1959-60.
Hafsteinn var sæmdur heiður-
skrossi KSÍ, heiðurskrossi ÍSÍ,
gullmerki ÍBK, var heiðurs-
félagi UMFK og var sæmdur
riddarakrossi Hinnar íslensku
fálkaorðu.
Eftirlifandi eiginkona Hafsteins
er Jóhanna Guðjónsdóttir. Þau
eignuðust fimm börn, Hafdísi,
Hauk, Svölu, Brynju og Sigrúnu.
Ásk riftir skólamáltíða í Reykjanesbæ hafa aukist á
þessu ári. Um 75% allra nemenda
í grunnskólum Reykjanesbæjar
sem eru nær 2000 talsins nýta sér
að kaupa skólamáltíð í áskrift. Á
sama tíma í fyrra var þetta hlut-
fall 70%, svipað og árin á undan.
Þetta er því hærra hlutfall en
verið hefur undanfarin ár.
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði
á íbúafundi í Innri Njarðvík, s.l.
mánudagskvöld, að bærinn fylgdist
með þessum tölum til að meta hvort
efnahagsþrengingar kæmu niður
á börnunum með færri skólamál-
tíðum. Svo reyndist ekki vera.
Í kynningu bæjarstjóra kom
fram að verð á heitum skólamál-
tíðum í áskrift hjá Reykjanesbæ
er 275 kr. á nemanda. Samkvæmt
samanburðartölum sem kynntar
voru, er þetta með því allra lægsta
sem máltíð kostar í skólum lands-
ins.
Reykjanesbær greiðir um 224
kr. niður með hverri skólamáltíð
barna.
75% barna með
skólamat í áskrift
Hafsteinn Guðmundsson látinn