Víkurfréttir - 03.05.2012, Side 4
4 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Leiðari Víkurfrétta
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is.
Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem
er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram
á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á
miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um
einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is.
Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir,
hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 10. maí 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Flottir Suðurnesjamenn og vinsælt Reykjanes
Sumarkveðja frá Menntavagninum
Fyrsta verkefni okkar í maí 2011 var að halda námskynningu í samstarfi við Vinnu-
málastofnun á Suðurnesjum. Kynningin var haldin í tengslum við átakið Nám
er vinnandi vegur, tókst hún með ágætum og sóttu hana um 600 manns.
Suðurnesjamenn þurfa að fylgja eftir þeirri jákvæðu
ímynd Suðurnesja sem dregin hefur verið upp á síð-
ustu dögum í kjölfar sigra Suðurnesjamanna í beinum sjón-
varpsútsendingum á síðustu dögum.
Hreysti skólafólks í Reykjanesbæ hefur vakið athygli eftir
að Holtaskóli fór með sigur af hólmi í Skólahreysti 2012 og
Heiðarskóli varð í öðru sæti. Suðurnesjamenn eiga að nýta
sér þennan árangur skólafólksins í hreystikeppninni til að
vekja jákvæða athygli á Suðurnesjum.
Lið Grindavíkur kom, sá og sigraði í Útsvari, vinsælum
spurningaþætti á RÚV í síðustu viku. Árangur Grindvík-
inga er eftirtektarverður og eins og með hreystikeppnina
þá á að nota athyglina til að halda áfram að benda á já-
kvæða hluti á Suðurnesjum og fylgja þannig eftir sigrinum
í spurningakeppninni.
Í gærkvöldi tryggðu Grindvíkingar sér Íslandsmeistara-
titilinn í körfuknattleik karla með sigri á Þór Þorlákshöfn,
72-76. Mikil gleði hjá Grindvíkingum sem fjölmenntu
í Þorlákshöfn eftir glænýjum Suðurstrandarvegi í gær-
kvöldi. Það má einnig búast við því að það hafi verið líf
og fjör í Grindavík fram eftir nóttu, enda fyrsti Íslands-
meistaratitillinn í 16 ár kominn í hús hjá Grindvíkingum.
Til hamingju Grindvíkingar!
Þá unnu Njarðvíkurstúlkur tvöfalt, urðu bæði bikar- og
Íslandsmeistarar í körfuknattleik og Keflvíkingar í karla-
flokki unnu bikarinn, næst stærsta mót ársins. Grindvík-
ingum tókst að vinna sigur í gærkvöldi þá eru allir stærstu
titlarnir á Suðurnesjum í ár. Ótaldir eru nærri tugur titla í
yngri flokkum. Árangurinn í körfuboltanum eiga Suður-
nesjamenn að nýta sér sem enn einn segulinn í umfjöllun
um jákvæða ímynd Suðurnesja.
Drögum til okkar gesti
Nú þegar sumarið gengur í garð eiga Suðurnesjamenn
einnig að vera duglegir að draga til sín gesti, enda margt
að sjá og njóta á Suðurnesjum. Möguleikar í gistingu eru
einnig miklir á Suðurnesjum og fjölbreyttir, hvort sem um
er að ræða hótel, gistihús eða tjaldstæði. Í Grindavík má
benda á flott tjaldstæði og í Sandgerði hefur einnig verið
opnað tjaldstæði með flottri aðstöðu. Þá má setja niður tjöld
á Garðskaga. Nú þegar bjart er orðið langt fram eftir kvöldi
fer fólk að safnast á Skagann til að njóta sólarlagsins.
Vert er að benda á nýjar upplýsingar úr ferðageiranum þar
sem fram kom að 27% aukning varð á seldum gistinóttum
á Suðurnesjum á síðasta ári frá árinu á undan. Þá var gerð
talning á ferðamönnum sem fóru út á ferðamannasvæðið
við Reykjanesvita og reyndust nærri 120 þús. manns hafa
sótt t.d. 100 gíga garðinn. Þar er nú verið að setja upp nýja
gönguleið sem gæti orðið vinsæl og í skoðun er að byggja
upp endurhlaða sundlaug við Reykjanesvita og leggja henni
til vatn. Það gæti orðið gríðarlega spennandi.
Síðastliðið ár hafa undirrituð unnið að þróunarverkefni
um eflingu menntunar á Suður-
nesjum á vegum Menntamála-
ráðuneytisins og Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Vinnan hefur gengið vel og við-
tökur Suðurnesjamanna við verk-
efninu og einstökum viðburðum
verið vonum framar. Við störf
okkar höfum við meðal annars
heimsótt skóla, stofnanir og fyrir-
tæki á svæðinu og hafa móttökur
verið mjög ánægjulegar í alla
staði. Ljóst er að samstarfsvilji
Suðurnesjamanna til aukinnar
menntunar er mikill.
Fyrsta verkefni okkar í maí 2011
var að halda námskynningu í
samstarfi við Vinnumálastofnun
á Suðurnesjum. Kynningin var
haldin í tengslum við átakið Nám
er vinnandi vegur, tókst hún með
ágætum og sóttu hana um 600
manns. Leikurinn var endurtek-
inn í lok mars síðastliðnum þegar
almenn námskynning, ætluð öllum
Suðurnesjamönnum, var haldin
í Stapanum. Svipaður fjöldi sótti
hana en mun fleiri skólar tóku þátt
og kynntu námsframboð sitt nú en
síðast, þar á meðal allir háskólar
landsins. Góður andi ríkti á kynn-
ingunni og var sérlega gaman að
verða vitni að þátttöku foreldra í
henni, þar sem margir þeirra mættu
með börnum sínum. Ekki verður
annað sagt en að báðar námskynn-
ingarnar hafi gengið mjög vel og
var almenn ánægja með þær meðal
þátttakenda og gesta.
Könnun á viðhorfum Suðurnesja-
manna til menntunar var fram-
kvæmd í tengslum við verkefnið af
Capacent Gallup í október á síðasta
ári og kom margt jákvætt fram í
niðurstöðum hennar. Viðhorf
Suðurnesjamanna til menntunar
er almennt mjög jákvætt og nánast
allir sem tóku þátt í könnuninni telja
menntun af hinu góða. Yfir helm-
ingur þátttakenda hefur áhuga á að
auka við menntun sína enda auki
viðbótarmenntun atvinnutækifæri
og tekjur talsvert eða nokkuð.
Flestir þeirra sem tóku þátt hvetja
börn og ungmenni í kringum sig
til að mennta sig og telja að börn
þeirra muni afla sér meiri eða
svipaðrar menntunar en þeir sjálfir.
Jákvætt viðhorf til verkefna, hver
sem þau eru, er oftast fyrsta skrefið
til að vel takist til. Framtíðin ætti
því að vera björt fyrir framgang
aukinnar menntunar á svæðinu
sem þarf svo að fylgja eftir með
auknum atvinnutækifærum fyrir
okkur sem hér búa.
Í febrúar 2012 héldum við starfs-
kynningu fyrir grunnskólanem-
endur á Suðurnesjum, sem líklega
var sú fyrsta sinnar tegundar hér á
landi. Þar kynntu 80 einstaklingar
störf sín, sem voru af mjög fjöl-
breyttu tagi, og um 700 nemendur
mættu á kynninguna. Starfskynn-
ingin er afsprengi greiningarvinnu
verkefnisstjóra á skólastarfi og þátt-
töku atvinnulífs í því og hugmyndar
Kristjönu E. Guðlaugsdóttur, for-
eldris úr Akurskóla í Njarðvík, en
Kristjana setti sig í samband við
verkefnisstjóra síðastliðið haust
og kynnti hugmyndir sínar um
aukna starfsfræðslu í skólastarfi.
Hún á þakkir skilið fyrir að hafa
komið að máli við okkur með sínar
hugmyndir. Starfskynningin gekk
vonum framar og var einstaklega
skemmtilegur viðburður sem von-
andi verður árlegur héðan í frá.
Mjög vel gekk að fá einstaklinga
og fyrirtæki á Suðurnesjum til að
taka þátt og kynna ólík störf sín
á kynningunni og voru skólarnir
á svæðinu mjög áhugasamir um
uppákomuna og tóku virkan þátt
í henni. Þá var ánægjulegt að sjá
hversu mikla fjölmiðlaumfjöllun
kynningin fékk hjá Morgun-
blaðinu, Fréttastofu Stöðvar 2 og
Víkurfréttum.
Víkurfréttir hafa tekið virkan þátt
í þróunarverkefninu með birtingu
á Menntavagninum og eiga þakkir
skilið fyrir það. Alls hafa nú þrjátíu
greinar birst frá upphafi, sú fyrsta í
lok september 2011, og fleiri bætast
vonandi í hópinn eftir sumarfrí. Á
vef Víkurfrétta http://vf.is/mennta-
vagninn/ eru greinarnar aðgengi-
legar og þegar þær eru skoðaðar
sést vel hversu metnaðarfullt og
fjölbreytt skólastarf á Suðurnesjum
er.
Við viljum þakka þeim kærlega
fyrir sem hafa unnið með okkur
og tekið þátt í verkefnum og upp-
ákomum í tengslum við verkefnið
um eflingu menntunar á Suður-
nesjum. Viðtökur atvinnulífsins,
menntastofnana og almennings á
Suðurnesjum hafa verið frábærar.
Þróunarverkefni líkt og það sem
við vinnum að skilar ekki miklum
árangri nema að allir leggist á eitt.
Það hefur svo sannarlega verið
raunin síðastliðið ár og verður von-
andi áfram.
Gleðilegt sumar!
Hanna María Kristjáns-
dóttir og Rúnar Árnason
Verkefnisstjórar um eflingu
menntunar á Suðurnesjum
Handverk
og hönnun í
Ráðhúsinu
Fj ó l a g u l l -s m i ð u r í
K e f l a v í k m u n
sýna handunnið
skart á sýning-
unni Handverk
og Hönnun í Ráð-
húsi Reykjavíkur
dagana 3.-7. maí næstkomandi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Handverk
og Hönnun stendur fyrir vorsýn-
ingu en heldur hana jafnframt á
haustin. Enginn aðgangseyrir. Allir
velkomnir. Nánari uppl. á www.
handverkoghonnun.is
Sigurvegari
Raunveru-
leiksins 2012
Undanfarnar vikur hafa nem-endur 9. bekkjar spilað
Raunveruleikinn sem er verkefni
á vegum Landsbankans sem snýst
um fjármála- og neytendafræðslu.
Krakkarnir hafa staðið sig með
sóma og í lok leiks voru 4 af nem-
endum Myllubakkaskóla meðal
15 efstu á landinu.
Kormákur Andri Þórsson stóð sig
best allra og vann leikinn, auk þess
sem hann fékk verðlaun fyrir að
vera hæstur bæði í 3. og 4. spilunar-
viku.
Landsbankinn veitir gjafabréf að
upphæð 5.000 kr. fyrir bestan ár-
angur í hverri viku og sigurlaunin
fyrir að sigra samanlagt var Play-
station Vita leikjatölva.
Einar Hannesson
hjá Lands-
bankanum.
afhenti Kormáki
verðlaunin.