Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Fylkið Oklahoma er með þeim yngstu í Bandaríkjunum. Á
fyrri hluta 19. aldar voru sett lög
um að indíánaættbálkar austur
við Mississippi-á skyldu færa sig
um set og var þeim komið fyrir í
Oklahoma. Í dag eru mörg aug-
ljós merki um indíánabúsetu, svo
sem bæjarnöfn, götunöfn á borð
við Tecumseh og Chautauqua, og
auðvitað öll spilavítin. „Enn er
mikið um indíána í fylkinu og er
menning þeirra þó meira áber-
andi vegna þess hve stoltir þeir
eru af uppruna sínum. Landslagið
er ótrúlega flatt og það er oftast
vindur hér, sem minnir okkur
vissulega á Keflavík. Höfuðborg
fylkisins er Oklahoma City og
þangað förum við oft. Við köllum
það bara að fara í bæinn eins og
heima, enda ekki nema 20-30
mínútna akstur. Í borginni er
m.a. að finna minningarstað og
safn um Oklahoma City Bomb-
ing, eitt versta hryðjuverk sem átt
hefur sér stað í Bandaríkjunum.
Oklahoma er í hinu svokallaða
Biblíubelti Bandaríkjanna, en
heimamenn stæra sig af því að
fylkið er kallað sylgja beltisins
og fer það ekki framhjá neinum.
Kirkjur eru nánast á hverju götu-
horni og langflestir fara í kirkju
á sunnudögum og jafnvel oftar í
viku,“ að sögn sagnfræðinemans
Gylfa.
Fólkið afar vingjarnlegt
Bærinn Norman, sem telur rúm-
lega 100 þúsund manns, hefur
uppfyllt allar þær væntingar sem
parið hafði og meira til. „Það fyrsta
sem við tókum eftir var hvað fólkið
hérna er ótrúlega vingjarnlegt og
almennilegt og vill allt fyrir mann
gera. Sem dæmi má nefna að fyrstu
vikuna okkar hérna gaf þjónustu-
stúlka okkur tvo miða á opnunar-
leik fótboltaliðs skólans, en hún
sagði að við hreinlega yrðum að fá
að fara á leik. Við eignuðumst svo
mjög fljótt vini, bæði bandaríska og
norska, og erum við mjög þakklát
fyrir það enda höfum við átt margar
góðar stundir saman á meðan við
höfum búið hér,“ segir Gylfi.
Íþóttir skipa stóran sess
University of Oklahoma eða OU
eins og hann er kallaður, er virtur
skóli í Bandaríkjunum og einkum
frægur fyrir fótboltaliðið þeirra
Oklahoma Sooners. „Kennslan er
svipuð og heima á Íslandi en náms-
mat mun þægilegra þar sem maður
-Keflvískt par segir frá ævintýrum sínum í Oklahoma í Bandaríkjunum
Gylfi Már Sigurðsson er 25 ára Keflvíkingur en
hann og kærastan hans, Sara Haynes, langaði að
fara á fremur óvenjulegan stað í Bandaríkjunum
og búa þar í stuttan tíma. „Við höfðum mikið talað
um hvað okkur langaði að búa saman í Banda-
ríkjunum um skeið svo ég sótti um skiptinám í
gegnum Háskóla Íslands,“ sagði Gylfi í samtali
við Víkurfréttir. Þau langaði til þess að búa á stað
sem ekki er endilega vinsæll meðal ferðamanna
og kannski frekar óhefðbundinn. Oklahoma-fylki
höfðaði til þeirra og varð University of Okla-
homa fyrir valinu en hann er í háskólabænum
Norman. Gylfi er að læra sagnfræði og almenna
bókmenntafræði við Háskóla Íslands, en þarna
úti er hann eingöngu í sagnfræðinámi. Námið
hefur gengið mjög vel að sögn Gylfa og hefur
hann verið að fá toppeinkunnir. Fluttust þau utan
í lok síðasta sumars og líkar lífið vel í Oklahoma.
fer í mörg minni próf í staðinn fyrir
eitt stórt eins og gert er í HÍ. Þannig
hefur maður meiri möguleika á að
bæta einkunnir sínar jafnt og þétt
yfir önnina.“
Eini FIFA dómarinn á svæðinu
Ásamt því að sinna náminu hefur
Gylfi verið að dæma knattspyrnu,
en hann er FIFA-aðstoðardómari
og vildi halda sér í æfingu á meðan
á dvölinni stóð. „Svo ég kom mér í
samband við góða menn sem tóku
mér með opnum örmum.“ Gylfi
segir knattspyrnuna sífellt að verða
vinsælli í Bandaríkjunum og gæðin
einnig að aukast og því hefur hann
öðlast góða reynslu. „Ég er eini
FIFA-dómarinn hér í fylkinu svo
ég hef líka reynt að miðla reynslu
minni áfram og gera fólk áhuga-
samara um dómgæslu og ég hélt
m.a. fyrirlestur á dómararáðstefnu
um hvernig fólk getur náð lengra.
En ég er auðvitað mjög spenntur
fyrir því að koma heim og dæma
í Pepsi-deildinni á nýjan leik,“ en
óðum styttist í það að fótboltinn
hefjist hérlendis.
NBA-veiran blossaði upp
Oklahoma á heiðurinn að því að
Gylfi enduruppgötvaði áhuga sinn
á NBA-deildinni í körfubolta.
Kannski er það vegna þess að
í 20 mínútna fjarlægð er heima-
völlur Oklahoma City Thunder
liðsins sem er eitt af betri liðum
deildarinnar. Þau skötuhjúin hafa
verið dugleg að sækja leiki liðsins.
Tré brotnuðu og umferðarskilti
og annað fuku um koll þegar
skýstrókurinn gekk yfir.
Sara og Gylfi Már í dýragarðinum.