Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2012, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 03.05.2012, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR Fylkið Oklahoma er með þeim yngstu í Bandaríkjunum. Á fyrri hluta 19. aldar voru sett lög um að indíánaættbálkar austur við Mississippi-á skyldu færa sig um set og var þeim komið fyrir í Oklahoma. Í dag eru mörg aug- ljós merki um indíánabúsetu, svo sem bæjarnöfn, götunöfn á borð við Tecumseh og Chautauqua, og auðvitað öll spilavítin. „Enn er mikið um indíána í fylkinu og er menning þeirra þó meira áber- andi vegna þess hve stoltir þeir eru af uppruna sínum. Landslagið er ótrúlega flatt og það er oftast vindur hér, sem minnir okkur vissulega á Keflavík. Höfuðborg fylkisins er Oklahoma City og þangað förum við oft. Við köllum það bara að fara í bæinn eins og heima, enda ekki nema 20-30 mínútna akstur. Í borginni er m.a. að finna minningarstað og safn um Oklahoma City Bomb- ing, eitt versta hryðjuverk sem átt hefur sér stað í Bandaríkjunum. Oklahoma er í hinu svokallaða Biblíubelti Bandaríkjanna, en heimamenn stæra sig af því að fylkið er kallað sylgja beltisins og fer það ekki framhjá neinum. Kirkjur eru nánast á hverju götu- horni og langflestir fara í kirkju á sunnudögum og jafnvel oftar í viku,“ að sögn sagnfræðinemans Gylfa. Fólkið afar vingjarnlegt Bærinn Norman, sem telur rúm- lega 100 þúsund manns, hefur uppfyllt allar þær væntingar sem parið hafði og meira til. „Það fyrsta sem við tókum eftir var hvað fólkið hérna er ótrúlega vingjarnlegt og almennilegt og vill allt fyrir mann gera. Sem dæmi má nefna að fyrstu vikuna okkar hérna gaf þjónustu- stúlka okkur tvo miða á opnunar- leik fótboltaliðs skólans, en hún sagði að við hreinlega yrðum að fá að fara á leik. Við eignuðumst svo mjög fljótt vini, bæði bandaríska og norska, og erum við mjög þakklát fyrir það enda höfum við átt margar góðar stundir saman á meðan við höfum búið hér,“ segir Gylfi. Íþóttir skipa stóran sess University of Oklahoma eða OU eins og hann er kallaður, er virtur skóli í Bandaríkjunum og einkum frægur fyrir fótboltaliðið þeirra Oklahoma Sooners. „Kennslan er svipuð og heima á Íslandi en náms- mat mun þægilegra þar sem maður -Keflvískt par segir frá ævintýrum sínum í Oklahoma í Bandaríkjunum Gylfi Már Sigurðsson er 25 ára Keflvíkingur en hann og kærastan hans, Sara Haynes, langaði að fara á fremur óvenjulegan stað í Bandaríkjunum og búa þar í stuttan tíma. „Við höfðum mikið talað um hvað okkur langaði að búa saman í Banda- ríkjunum um skeið svo ég sótti um skiptinám í gegnum Háskóla Íslands,“ sagði Gylfi í samtali við Víkurfréttir. Þau langaði til þess að búa á stað sem ekki er endilega vinsæll meðal ferðamanna og kannski frekar óhefðbundinn. Oklahoma-fylki höfðaði til þeirra og varð University of Okla- homa fyrir valinu en hann er í háskólabænum Norman. Gylfi er að læra sagnfræði og almenna bókmenntafræði við Háskóla Íslands, en þarna úti er hann eingöngu í sagnfræðinámi. Námið hefur gengið mjög vel að sögn Gylfa og hefur hann verið að fá toppeinkunnir. Fluttust þau utan í lok síðasta sumars og líkar lífið vel í Oklahoma. fer í mörg minni próf í staðinn fyrir eitt stórt eins og gert er í HÍ. Þannig hefur maður meiri möguleika á að bæta einkunnir sínar jafnt og þétt yfir önnina.“ Eini FIFA dómarinn á svæðinu Ásamt því að sinna náminu hefur Gylfi verið að dæma knattspyrnu, en hann er FIFA-aðstoðardómari og vildi halda sér í æfingu á meðan á dvölinni stóð. „Svo ég kom mér í samband við góða menn sem tóku mér með opnum örmum.“ Gylfi segir knattspyrnuna sífellt að verða vinsælli í Bandaríkjunum og gæðin einnig að aukast og því hefur hann öðlast góða reynslu. „Ég er eini FIFA-dómarinn hér í fylkinu svo ég hef líka reynt að miðla reynslu minni áfram og gera fólk áhuga- samara um dómgæslu og ég hélt m.a. fyrirlestur á dómararáðstefnu um hvernig fólk getur náð lengra. En ég er auðvitað mjög spenntur fyrir því að koma heim og dæma í Pepsi-deildinni á nýjan leik,“ en óðum styttist í það að fótboltinn hefjist hérlendis. NBA-veiran blossaði upp Oklahoma á heiðurinn að því að Gylfi enduruppgötvaði áhuga sinn á NBA-deildinni í körfubolta. Kannski er það vegna þess að í 20 mínútna fjarlægð er heima- völlur Oklahoma City Thunder liðsins sem er eitt af betri liðum deildarinnar. Þau skötuhjúin hafa verið dugleg að sækja leiki liðsins. Tré brotnuðu og umferðarskilti og annað fuku um koll þegar skýstrókurinn gekk yfir. Sara og Gylfi Már í dýragarðinum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.