Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2012, Side 14

Víkurfréttir - 03.05.2012, Side 14
14 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR FJÖLMENNINGAR- DAGUR Í REYKJANESBÆ INTERCULTURE DAY IN REYKJANESBÆ DZIEŃ MIĘDZYNARODOWY Laugardaginn 5. maí 2012 verður fjölmenningardagur Reykjanesbæjar haldinn í Lista- og menningarmiðstöðinni Duushús, Bíósal. Dagskráin byrjar kl. 14.00. Sjá nánar á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is Fjölmenningardagurinn er dagur fjölbreytni og mannauðs og eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt. Saturday 5th of May 2012 will be a multicultural day in Reykjanesbær in Culture and Art center Duushus. The program starts at 14.00 More information at Reykjanesbær website, reykjanesbaer.is Day for diversity and human resources! W sobotę 5 maja 2012 będzie obchodzony w Reykjanesbaer Obchodząc ten dzień w naszej gminie, chcemy wskazać na  bogactwo pochodzące z międzynarodowego społeczeństwa. Impreza odbędzie się w godzinach  14 -16,  w sali projekcyjnej  Muzeum Duushus.Szczegółowe informacje na stronie interne- towej: reykjanesbaer.is Wszystkich serdecznie zapraszamy.   AÐSTOÐAR- SKÓLASTJÓRI Í NJARÐVÍKURSKÓLA Starfssvið: Menntunar- og hæfniskröfur: innan skólans að framkvæmd framtíðarsýnar Reykjanesbæjar í skólamálum Njarðvíkurskóli er samfélag sem einkennist af virðingu, ábyrgð og vinsemd. Njarðvíkurskóli hefur innleitt PBS (stuðning við jákvæða hegðun) innan skólans. Skólinn hefur undir sinni stjórn tvær sérdeildir sem þjóna öllum grunnskólum á Suðurnesjum, önnur deildin er fyrir börn með þroskahamlanir og hin fyrir börn með alvarleg frávik í atferli og hegðun. Háaleitisskóli á Ábrú er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla. Mikil vinna er hafin við endurskipulagningu skólastarfsins með það í huga að bæta árangur nemenda skólans. www.reykjanesbaer.is undir laus störf. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum og umsóknarfrestur er til 18. maí nk. Sunddeild UMFN InnritunAÐALFUNDUR UMFN Verður haldin mmtudaginn 10. maí kl. 19:30 í íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Stjórnin. Hafið samb nd í síma 421 4100 eða netfangið gs@gs.is VEITINGASALAN Í LEIRU ER OPIN ALLA DAGA KAFFIVEITINGAR, HAMBORGARAR, SAMLOKUR OG FLEIRA GÓÐGÆTI. OPIÐ ALLA DAGA FRAM Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í GS OG AÐRA. Ra n n s ó k n a -s t o f n u n í b a r n a - o g f j ö l - s k y l du ver n d o g Sálfræðisvið Há- skólans í Reykja- vík ásamt fleirum standa fyrir nám- skeiði 7.-8. júní nk. með dr. John M. Gottman og dr. Julie Gottman fyrir fagfólk um parameðferð. Nám- skeiðið kalla þau Bridging the Couple Chasm - Gottman Coup- les Therapy: A Research-Based Approach. Dr. Julie Schwartz Gottman og dr. John M. Gottman stýra nám- skeiðinu, en þau hafa bæði áratuga reynslu í rannsóknum og fræðslu á málefninu. „Með þessu námskeiði er verið að gefa fagfólki allra bestu tólin í verk- færatöskuna“ segir Keflvíkingurinn Ólafur Grétar Gunnarsson sem vinnur að undirbúningi. „Það er mjög ánægjulegt að sjá hvað fagfólk er áhugasamt um námskeiðið” Gottman-hjónin eru líklega eitt þekktasta meðferðarpar okkar tíma. Þau eru vel kunn fyrir störf sín bæði meðal fræðimanna og fagfólks. Þau láta sig varða velferð fjölskyldna, foreldra og barna og setja það gjarnan í samhengi við samfélagsþróunina og margvísleg öfl sem nú ógna fjölskyldugildum og uppeldisáhrifum foreldra. John M. Gottman hefur stundað víðtækar rannsóknir á hjónabands- stofnuninni og samskiptum í vel starfhæfum hjónaböndum, for- e ldrah lutverkum og skilnaðarferlum. Rannsóknir hans eru svo aftur grundvöllur að afar læsilegum ritum fyrir fagfólk og almenning, m.a. hinni vel þekktu bók The Seven Principles for Making Marriage Work (1999). Sum fræðilegu verkanna eru notuð í háskólakennslu og mörg rita hans gegna mikilvægu hlutverki í meðferðarþjálfun. Gottman–hjónin reka saman fræðslu- og meðferðarstofnunina The Gottman Insititute í Seattle í Bandaríkjunum. John M. Gott- man er prófessor emeritus, við Washington University og var ný- lega valinn einn af 10 áhrifamestu sálfræðingum heimsins, á síðast- liðnum 25 árum. Julie er í forsvari fyrir The Couples Together Against Violence Study. Hún var kosin sálfræðingur ársins í Washington fylki, árið 2005. Hún er alþjóð- legur ráðgjafi varðandi hjónabönd, kynferðislega áreitni og nauðganir, heimilisofbeldi, ættleiðingar sam- kynhneigðra, hjónabönd samkyn- hneigðra og málefni foreldra. John Gottman verður einnig með námskeið fyrir almenning í Hörpu 6. Júní frá kl. 17:00 -19:00, www. harpa.is Námskeiðið fyrir fagfólk verður haldið 7. og 8. júní í Háskólanum í Reykjavík. Nánari upplýsingar á vef Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd, www.rbf.is. Leiguverð Íbúðalánasjóðs hærra en í boði er á Ásbrú Bæjarstjóri Garðs átti á dög-unum fund með fulltrúum Íbúðalánasjóðs þar sem farið var yfir eignastöðu sjóðsins í Garð- inum. Íbúðalánasjóður átti í lok mars 28 eignir, auðar voru 16, í útleigu voru 7 og óíbúðahæfar 4 og eina eign sem flokkast undir annað. Rætt var mikilvægi þess að Íbú- ðalánasjóður léti meta eignir sínar og kæmi þeim í söluferli sem fyrst, en alls á sjóðurinn um 500 eignir á Suðurnesjum. Einnig að mikilvægt væri að fólki sem væri að missa eignir sínar yrði gert kleift með öllum ráðum að leigja þær áfram eins og gert er ráð fyrir samkvæmt starfsreglum sjóðsins. Leiguverð Íbúðalánasjóðs á eignum í Garði eru samkvæmt upplýsingum hærra en það leigu- verði sem er í boði á Ásbrú en það skekkir stöðuna á leigumarkaði. Heimsþekktir sál- fræðingar til Íslands Undanfarna tvo mánuði hefur hópur af áhugaleikurum og söngvurum verið á stífum æf- ingum í Frumleikhúsinu í Reykja- nesbæ. Unnið var útfrá spuna og persónusköpun og handrit skrifað út frá hugmyndum sem komu fram. Leikritið sem er í sjö stuttum þáttum hefur fengið nafnið Brúðkaupsdraumur, fjallar um misheppnuð stefnumót, vináttu og drauma. Nokkur vel þekkt sönglög koma fyrir í verk- inu enda mjög gott söngfólk hér á ferð. Óhætt er líka að segja að leikararnir fara á kostum í gamni og alvöru. Sýningarnar eru tvær, sú fyrri á laugardaginn 5. maí kl. 16.00 og seinni á sunnudaginn kl. 20.00 og er frítt inn. Fram koma; Amanda Auður Þórarinsdóttir, Bjarni Valur Agnarsson, Davíð Már Guðmundsson, Ívar Egils- son, Lára Ingimundardóttir, Mar- geir Karlsson, Sóley Valsdóttir, Unnur Hafstein Ævarsdóttir ásamt Bylgju Dís Gunnarsdóttur, Emil Freyssyni og Henning Emil Magnússyni sem jafnframt stýra verkefninu í ár. Einnig mun leynigestur stíga á stokk en ekki hægt að hafa fleirri orð um það hér. Þetta er sýning sem engin má missa af! Brúðkaups- draumur - List án landamæra

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.