Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2012, Page 22

Víkurfréttir - 03.05.2012, Page 22
22 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR útspark Ómar JÓhannsson Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn. spákerlingar Sumarið er komið og fótboltavellirnir orðnir grænir og fallegir. Hafa sjaldan verið betri í byrjun móts ef einhvern tíma. Umfjöllun í fjölmiðlum er jafnt og þétt að aukast um íslenska boltann og spennan magnast. Á þessum tíma er einmitt mjög vinsælt hjá fjölmiðlum að heyra í hinum ýmsu spekingum og spádómskerlingum. Það er spáð og spekúlerað og menn reyna að sjá fyrir hvernig sumarið muni þróast. Okkur í Keflavík hefur verið spáð frekar neðarlega þar sem ég hef séð. Sem betur fer hafa sérfræðingarnir ekki orðið það góðir að sjá fyrir hvernig deildin muni enda að ekki hafi þurft að spila leikina. Menn væru vafalítið farnir að nota þá kristalkúlu til einhverra verri verka en að spá fyrir um fótboltaúrslit. Spekingarnir eru yfirleitt menn með mikla þekkingu á íslenska boltanum. Þeir byggja mat sitt á einhverjum staðreyndum, t.d. hvernig gekk liðinu í fyrra. Hvernig hefur liðinu gengið á undirbúningstímabilinu. Hefur liðið bætt við sig eða misst leikmenn. Allt eru þetta hlutir sem geta gefið vísbendingu um hvernig liðinu mun ganga á komandi tímabili. Við þetta bæta menn svo einhverri tilfinningu sem þeir hafa um liðið. Ekki endilega neitt áþreifanlegt. Eitthvað sem segir þeim að liðinu eigi eftir að ganga vel yfir sumarið þrátt fyrir að margt bendi til annars eða öfugt. Þannig ná menn oft að giska nokkuð nærri hvernig sumarið fari en aldrei alveg rétt. Stundum mjög langt frá því að vera rétt. Sem betur fer fyrir alla sem áhuga hafa á fótbolta er ekki hægt að spá fyrir um úrslit leikja með 100% vissu ennþá. Það getur verið nógu erfitt að giska á úrslit einstakra leikja, hvað þá heilu mótin. Fótbolti er óútreiknanleg íþrótt. Það er eitt af því sem gerir hann að skemmtilegustu íþrótt í heimi. Munurinn á besta og lélegasta liði úrvalsdeildarinnar er ekki mikill. Á góðum degi er síðra liðið alltaf líklegra til sigurs en hinir sem taldir eru betri ef þeir eru ekki á tánum. Íslenskar getraunir væru ekki lengi að fara á hausinn ef það væri eitthvað til sem héti öruggir leikir. Ég held stundum að ég hafi fundið örugga leiki til að tippa á. Ég er ekki ríkur ennþá. Sú staðreynd að spekingarnir hafa ekki alltaf rétt fyrir sér getur verið góð fyrir okkur í Keflavík. Sum lið enda ofar en þeim er spáð, önnur neðar. Við viljum vera eitt af liðunum sem endar ofar. Við í liðinu erum ekki vitlausir, flestir alla vega. Menn gera sér alveg grein fyrir því að það er einhver ástæða fyrir því að okkur er spáð neðarlega. Við gerum okkur einnig grein fyrir því að ef við náum að spila vel munum við enda ofar en okkur er spáð. Við erum alla vega spenntir fyrir sumrinu og vonandi eru fleiri en við orðnir spenntir. Fótbolti er óútreiknanleg íþrótt, þess vegna elskum við hann. Allt getur gerst. Líkt og í fyrra er allt útlit fyrir að bæði Suðurnesjaliðin í efstu deild karla í knattspyrnu muni róa lífróður í Pepsi-deildinni ár. Lið Grindvíkinga og Keflvíkinga þykja líkleg til þess að taka þátt í fallbaráttunni þetta árið en í fyrra náðu bæði lið að bjarga sér á síðustu stundu, Grindvíkingar á sérstaklega ævintýralegan hátt með góðum sigri í Eyjum í síðustu umferð. Sérfræðingar hvaðanæva að hafa verið að henda fram spám sínum fyrir komandi fótboltasumar og þar koma Suðurnesjaliðin ekkert sérstaklega vel út. Einhverjar breytingar hafa orðið á liðunum og munum við útlista þær hér að neðan ásamt því sem rætt er við þá Harald Guðmundsson fyrirliða Keflvíkinga og Óskar Pétursson markvörð Grindvíkinga. Mikið mun mæða á reynslumeiri m ö n n u m l i ð s i n s e i n s o g Guðmundi Steinarssyni, Jóhanni B. Guðmundssyni og Haraldi Guðmundssyni. Ómar Jóhannsson er einn af sterkari markmönnum deildarinnar og þessir leikmenn verða að vera stöðugir í sumar. Gengi liðsins gæti svo oltið á því hvernig ungu leikmenn liðsins standast pressuna þetta árið. Flestir þeirra fengu nasaþefinn af fótboltanum í efstu deild í fyrra og nú reynir heldur betur á guttana. Breytingar hafa orðið í brúnni en Zoran Ljubicic er tekinn við búi Willums Þórs Þórssonar sem hætti síðasta haust. Zoran hefur gamla reynsluboltann Gunnar Odsson sér til aðstoðar en Zoran hefur aðeins reynslu af þjáfun yngri flokka þar sem hann hefur náð góðum árangri með Keflvíkinga. „Þetta leggst vel í mig þetta sumar, eins og alltaf á þessum tíma árs,“ sagði Haraldur Guðmundsson, fyrirliði Keflvíkinga en hann er sáttur við veturinn og segir mikinn stíganda vera í liðinu. „Við erum bjartsýnir á sumarið og teljum okkur geta gert gott mót,“ en eins og áður segir en nýr þjálfari tekinn við og aðrar áherslur um leið. „Ég held að Zoran sé meiri talsmaður þess að reyna að spila fótbolta, þó svo að við höfum verið að gera það í fyrra. Hann vill halda boltanum á jörðinni og spila honum og leggur kannski ekki það mikið upp varnarlega séð. Þó er kannski ekki komið hans handbragð á þetta.“ Haraldur segir að leikmenn og þeir sem komi að liðinu geri sér fulla grein fyrir því að liðið sé ekki að fara að berjast um titla í ár en markmiðin séu þó skýr. „Við viljum gera betur en í fyrra, þó svo að það séu ekki háleit markmið þá stefnum við á að gera betur. Svo munum við endurskoða það eftir því hvernig gengur. Við erum nokkuð raunsæir á þetta,“ segir fyrirliðinn sem sjálfur lék ekki með Keflvíkingum seinni hluta tímabils í fyrra. Eru einhverjir af þessu ungu leikmönnum sem fengu tækifæri í fyrra að fara að springa út í sumar? „Það er klárlega tækifæri fyrir unga menn að stíga upp núna þar sem við erum ekki að kaupa menn í liðið. Það eru margir hæfileikaríkir strákar sem verða spennandi í sumar,“ en hann segir styrkleika liðsins fyrst og fremst felast í samheldni þar sem nánast eingöngu heimamenn af Suðurnesjum séu í liðinu. „Við viljum meina að við séum með vel spilandi leikmenn í öllum stöðum og eigum að geta spilað flottan fótbolta í sumar.“ Zoran er tals- maður fótbolta -segir Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur ›› Keflavík og Grindavík spáð í neðri helmingi Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu: Komnir: Gregor Mohar frá NK Radomlje Grétar A.Grétarsson frá Stjörnunni Haraldur F. Guðmundsson frá Start Jóhann R. Benediktsson frá Fjarðabyggð Farnir: Adam Larsson Andri Steinn Birgisson í Leikni R. Guðjón Á. Antoníusson í FH Goran Jovanovski Grétar Hjartarson í Reyni Sandgerði Magnús Þórir Matthíasson í Fylki „Það er klárlega tækifæri fyrir unga menn að stíga upp núna þar sem við erum ekki að kaupa menn í liðið. Það eru margir hæfileikaríkir strákar sem verða spennandi í sumar,“

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.