Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2012, Side 2

Víkurfréttir - 14.06.2012, Side 2
2 FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR ÞJÓÐHÁTÍÐAR- DAGSKRÁ 2012 kl. 13:00 Guðþjónusta í Keflavíkurkirkju, séra Sigfús Baldvin Ingvason kl. 13:30 Skrúðganga leggur af stað frá Keflavíkurkirkju undir stjórn Skáta og Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Dansatriði frá DansKompaní áður en skrúðgangan hefst. Skrúðgarður kl. 14:00 - 17:00 Þjóðfáninn dreginn að húni: Gylfi Guðmundsson fyrrverandi skólastjóri Þjóðsöngurinn: Karlakór Keflavíkur Setning: Baldur Guðmundson bæjarfulltrúi Ávarp fjallkonu: Andrea Björg Jónsdóttir nýstúdent Ræða dagsins: Eyjólfur Eysteinsson formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum Skemmtidagskrá í umsjón Leikfélags Keflavíkur: kl. 14:30 Suðurgötu kl. 14:30 Kaffisala Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í kl. 14:30 Kaffisala Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í Njarðvíkurskóla. Söfn og sýningar kl. 11:00 - 18:00 Víkingaheimar kl. 13:00 - 17:00 Duushús, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar Listasafn: Bátasafn: Bátalíkön Gríms Karlssonar og tréskúlptúrar eftir Guðmund Garðarsson. Byggðasafn: Sýningin Á vertíð. Ný sýning. Bíósalur: Saga og myndlist. Ný sýning. kl. 13:00 - 17:00 Stekkjarkot í Innri Njarðvík Alls staðar ókeypis aðgangur í tilefni dagsins. Metaðsókn er í tæknifræði-nám Keilis, en ríflega 40% aukning var á umsóknum í námið milli ára. Aldrei fleiri umsóknir hafa borist í tæknifræðinámið en fyrir komandi haustönn og er þessi aukni áhugi nemenda í sam- ræmi við áherslur atvinnulífsins um stóreflingu tæknimenntunar á Íslandi. Í nýlegu riti Samtaka atvinnulífsins „Uppfærum Ísland“ kemur fram að fjölga þurfi útskrifuðu fólki úr verk- fræði, tækni- og raunvísindanámi á Íslandi. Mikil tækifæri felast í þeim hluta atvinnulífsins sem er kall- aður hátæknigeirinn, en nú þegar er æpandi eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar á háskólastigi. Tæknifræðinám Keilis er unnið í nánu samstarfi við fyrirtæki í tækni- og hugverkagreinum sem stuðlar að gagnvirkum samskiptum við atvinnulífið og raunverulegum nemendaverkefnum. Mikil áhersla hefur undanfarið verið lögð á að kynna tæknifræðinám Keilis fyrir nemendum sem lokið hafa iðn- námi og starfandi iðnaðarmönnum og er nálgun og uppbygging náms- ins mun verklegri en gengur og gerist í háskólanámi. Námið hentar því vel þeim sem hafa verkvit og áhuga á tæknilegum lausnum og nýsköpun. 23. júní næstkomandi útskrifast fyrsti árgangur háskólanemend- enda Keilis en 15 nemendur munu þá ljúka BS námi í tæknifræði. Þau öðlast um leið réttindi til að sækja um starfsheiti tæknifræðings til Tæknifræðingafélags Íslands. Mikil aðsókn var enn fremur í annað námsframboð Keilis fyrir haustönn 2012. Verið er að vinna úr umsóknum fyrir haustið í flug- tengdu námi, ÍAK einkaþjálfara- námi og Háskólabrú. Áhugasömum er bent á að hafa samband við for- svarsmenn Keilis um möguleika á að senda inn síðbúna umsókn. Allt tiltækt björgunarlið frá Brunavörnum Suðurnesja og lögreglunni á Suðurnesjum var kallað að Keflavíkurhöfn síðdegis á föstudag þar sem kona hafði fallið í höfnina og það tvívegis. Konan mun samkvæmt upplýs- ingum Víkurfrétta hafa verið við veiðar. Hún var að kíkja eftir spúni sem festist í þaragróðri þegar hún steyptist fram fyrir sig í höfnina en fallið er nokkrir metrar. Konunni tókst að komast að stiga og átti örfá þrep eftir upp á bryggj- una þegar þrekið var búið og við það féll hún aftur í höfnina. Slökkviliðsmaður í flotbúningi fór í sjóinn til að bjarga konunni en henni var síðan komið upp á bryggju með aðstoð körfubíls slökkviliðsins. Þar fékk hún teppi og var síðan flutt á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja til skoðunar. Hjá lögreglunni á Suðurnesjum fengust þær upplýsingar að kon- unni hafi ekki orðið meint af volk- inu en hún hafi þó verið orðin köld, enda búin að falla tvívegis í höfnina á stuttum tíma. Lögreglan vildi ekki staðfesta að konan hafi verið undir áhrifum áfengis. Tvö ung börn laus í bíl Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði för bifreiðar í Sand- gerði, þar sem barn var laust í aftursæti hennar. Þegar lög- reglumaður fór að ræða við öku- manninn, konu á sextugsaldri, sá hann að annað lítið barn var laust í framsæti bílsins. Var það ekki í bílstól og svo lítið að það náði ekki upp fyrir mælaborð bif- reiðarinnar. Vettvangsskýrsla var gerð um atvikið. Lögregla hvetur foreldra og forráðamenn barna til þess að tryggja öryggi þeirra í bifreið með lögboðnum hætti áður en lagt er af stað. Lamin í andlitið með háum hæl Ráðist var á 17 ára stúlku í Reykjanesbæ aðfararnótt sunnudags og hún slegin í andlit og höfuð með háum skóhæl. Að því er næst verður komist hafði hún átt orðaskipti við stúlku og mann í kringum fertugt sem hún þekkti ekki áður en hún varð fyrir árásinni. Stúlkan var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja, þar sem hún fékk aðhlynningu. Henni var leyft að fara heim að því búnu. Án ökuprófs í hraðakstri Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði fyrir og um helgina þrjá ökumenn sem allir voru réttindalausir undir stýri. Einn þeirra, karlmaður á þrítugsaldri var stöðvaður á Reykjanesbraut, þar sem hann ók á 139 kílómetra hraða, en þar er hámarkshraði 90 kílómetrar á klukkustund. Mað- urinn hafði aldrei öðlast ökurétt- indi. Annar réttindalaus öku- maður stöðvaði bíl sinn, þegar hann varð lögreglu var og tók á rás í burtu. Síðan kvaðst hann hafa misst stjórn á sér og bað lögreglu afsökunar á atferli sínu. Þriðji ökumaðurinn sem lögregla hafði afskipti af hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Tekinn með stera í annarlegu ástandi Tilkynning barst til lögregl-unnar á Suðurnesjum á dög- unum þess efnis að maður væri að reyna að komast inn í bíla í Kefla- vík. Lögreglumenn fundu mann- inn fljótlega og var hann hand- tekinn og færður á lögreglustöð. Hann reyndist vera með stera í fljótandi formi í fórum sínum, auk allmikilla peninga. Hann var í annarlegu ástandi og reyndist útilokað að ræða við hann að svo komnu máli. Hann var því látinn sofa úr sér í fangaklefa, en tekin af honum skýrsla að því loknu og hann látinn laus. ›› FRÉTTIR ‹‹ Veiðikona féll tvisvar í höfnina Metaðsókn í tækni- fræðinám Keilis ›› Ásbrú: ›› Keflavíkurhöfn: Víkurfréttir á nýjum stað! Erum á 4. hæð í Krossmóa 4, Reykjanesbæ.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.