Víkurfréttir - 14.06.2012, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
ÝMISLEGT
Gisting í miðbæ Reykjavíkur
Í júní og júlí verð 8.000 á mann.
Upplýsingar í síma 895 0482 eft-
ir kl. 12.
Tek að mér allskonar viðgerð-
ir á bílum, sláttuvélum. Er með
greiningartölvu til að bilanagreina
margar tegundir bíla. Vanur mað-
ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð!
Uppl. S: 864 3567.
ÓSKAST
Vantar leiguíbúð
33 ára reglusöm kona vantar litla
íbúð eða herbergi m/eldunar-
aðstöðu til leigu, helst í Grindavík.
Má samt ath. Reykjanesbæ eða
Voga. Kisur þurfa að vera leyfðar.
Uppl. veita Smári í 896 2345 smar-
isig@hotmail.com & Wasana 864
6093 (English)
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja
Miðlarnir Lára Halla Snæfells
og Þórhallur Guðmudsson
verða starfandi hjá
félaginu í júní.
Nánari upplýsingar og tíma-
pantanir í síma 421 3348.
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 14. - 20. júní nk.
• Bingó
• Handavinna
• Leikfimi
• Hádegismatur
Fimmtudaginn 14. júní kl. 14:00
Sumarhátíð á Nesvöllum
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar
í síma 420 3400
www.vf.iS
896 0364
Raflagnir & viðgerðir
Þvottavélaviðgerðir
SMÁAUGLÝSiNGAR – 421 0009
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
Til leigu í Garði
Til leigu góð 2-3ja herbergja íbúð
að Silfurtúni. Laus fljótlega, sér-
inngangur, langtímaleiga. Upp.í
síma 587 1188.
Skartsmiðjan
Hafnargötu 35
Skart Perlur Tölur
Lokkar Keðjur Skraut
Steinar Pinnar Lásar
Vír Öskjur Kúlur
Hraun Tangir Roð
Nælur Hringir Leður
Opið 11 – 18
Nánari upplýsingar
í síma 421 5121
TIL SÖLU
Bílskúr til sölu við Faxabraut
27 fm, ný málaður í góðu ástandi.
Verð 2,9 millj. Uppl. í síma 867
7459 og dagmar_kunakova@
yahoo.com
Til sölu Whirlpool þvottavél. Tek
að mér garðslátt. Upplýsingar í
síma 661 3570.
Bosch ísskápur m/ frysti hæð
170 cm. Verð 40 þús., Whirpool
þvottavél AWM 5140 verð 20 þús.,
Ariston ISE 610 uppþvottavél verð
20 þús., Daewoo AMI 829L hljóm-
flutningssamstæða verð 5 þús.,
Korg Concert EC 120 rafmagns-
píanó verð 40 þús., svört bókahilla
frá Ikea 150x150x40 verð 10 þús.,
svört borð m/gleri 120x65 verð
7 þús, og 68x68 verð 3 þús., grár
svefnsófi 220x120 verð 20 þús.
Upplýsingar í síma 867 7459 og
dagmar_kunakova@yahoo.com
ÞJÓNUSTA
Málningarþjónusta Suðurlands
10% afsláttur fyrir eldri borgara
og öryrkja málarar geta bætt við
sig verkefnum. Sanngjarnt verð s:
779-0900
GÆLUDÝR
Hvolpa vantar gott heimili
2 rakkar og tík leita að nýju heim-
ili, gæðablanda, sveitavanir, ekkert
verð fyrir gott heimili. S: 776 8535.
Kettingar fást gefins
Uppl. í síma 661 3570.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Tapaður kisi í Grindavík
Gulbröndóttur tapaðist frá Víkur-
braut 14, Grindavík 6/6. Uppl. 896
2345 smarisig@hotmail.com
vf.is
Víkurfréttir eru fluttar
í Krossmóa 4 í Reykjanesbæ
Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000
Mikið er fjallað um mál SpKef þessa dagana á Alþingi
og í fjölmiðlum. Hart er vegið
að stjórnvöldum vegna málsins
og öll spjót standa á Oddnýju
Harðardóttur fjármálaráðherra.
Víkurfréttir spurðu Oddnýju út í
málefni SpKef og aðför stjórnar-
andstöðunnar að ríkisstjórn í
málinu.
„Það er afar eðlilegt að málefni
SpKef séu fyrirferðarmikil í um-
ræðunni nú þegar loks er komin
niðurstaða úrskurðarnefndar
vegna sameiningar Landsbankans
á SpKef og óvissunni eytt með hver
kostnaður ríkisins er vegna hins
fallna sparisjóðs,“ segir Oddný
Harðardóttir fjármálaráðherra í
samtali við VF.
„Málið allt er afar erfitt. Reikn-
ingurinn sem ríkissjóður situr
uppi með er þungbær og það er
átakanlegt að horfa upp á ítrekaðar
skoðanir endurskoðenda hversu
bagaleg staða sparisjóðsins var í
raun og veru. Það er ekki síður
átakanlegt fyrir okkur Suðurnesja-
menn að horfa upp á það hvernig
komið var fyrir Sparisjóðnum í
Keflavík, banka sem stofnaður var
að Útskálum í Garði árið 1907 og
var í 100 ár eitt helsta stolt Suður-
nesjamanna. Virði eignasafns
hans hafði verið stórlega ofmetið,
innviðir sparisjóðsins mun veikari
en mönnum grunaði, staða fyrir-
tækja og atvinnuástand á starfs-
svæði sjóðsins slæmt og orðspor
sjóðsins mjög laskað. Það má líka
taka það fram að gengislánadómar
höfðu áhrif á stöðu sparisjóðsins.
En núverandi ríkisstjórn víkur sér
ekki undan ábyrgðinni á reikn-
ingnum, heldur axlar þá ábyrgð,
enda er það einlægur ásetningur
hennar að standa við fyrri yfir-
lýsingar stjórnvalda um tryggingu
innstæðna innstæðueigenda. Þar
geta innstæður viðskiptavina SpKef
ekki verið undanþegnar.
Hvað varðar aðför stjórnarandstöð-
unnar í þessu máli þá er skiljanlegt
að hún láti til sín taka þegar um
viðlíka fjármuni er um að ræða en
málflutningur hennar er því miður
ómálefnalegur. Spurningar for-
svarsmanna stjórnarandstöðunnar
hafa að mestu snúist um af hverju
ríkissjóður lét ekki Sparisjóð Kefla-
víkur falla þegar ljóst er að það var
og er einlægur vilji stjórnvalda að
tryggja innstæður innstæðueigenda
í bönkum og fjármálastofnunum.
Þeir láta því ósvarað hvernig átti
þá að tryggja innistæður viðskipta-
vina sparisjóðsins með sama hætti
og annarra landsmanna.
Rökin fyrir ákvörðuninni um að
færa innstæður Sparisjóðsins í
Keflavík yfir í nýtt félag koma fram
í minnisblaði nefndar um fjár-
málakerfið sem skrifað var 21. apríl
2010, en í nefndinni voru fulltrúar
frá forsætis-, fjármála-, og efna-
hags- og viðskiptaráðneyti, FME
og Seðlabanka Íslands. Það var mat
nefndarinnar að staða Sparisjóðs-
ins í Keflavík hafi verið þannig,
að nauðsynlegt hafi verið að Fjár-
málaeftirlitið tæki yfir stjórn spari-
sjóðsins og færi með innstæður og
eignir til nýs fjármálafyrirtækis.
Þetta var talið nauðsynlegt til að
tryggja fjármálastöðugleika og við-
halda eins og kostur væri óskertan
og truflunarlausan aðgang að inn-
stæðum og bankaþjónustu fyrir
viðskiptamenn sparisjóðsins eins
og stjórnvöld höfðu heitið öllum
innlendum innstæðueigendum,
líka Suðurnesjamönnum og öðrum
viðskiptavinum Sparisjóðsins í
Keflavík. Að auki var það mat yfir-
valda að miðað við stærð og um-
fang Sparisjóðsins í Keflavík, með
sínar 16 starfsstöðvar vítt og breitt
um landið, að hann væri ómissandi
hlekkur í endurreisn sparisjóða-
kerfisins í landinu. Þær væntingar
reyndust því miður ekki reistar á
traustum grunni líkt og síðar kom
í ljós við nánari skoðun á eignum
og skuldum sparisjóðsins og mis-
muninum þar á.
Það er von mín og eflaust fleiri,
þar á meðal margra Suðurnesja-
manna, að rannsókn á falli spari-
sjóðanna sem nú stendur yfir og
niðurstöðu er að vænta í haust,
muni leiða skýrt í ljós hvað gerðist
í aðdraganda hruns Sparisjóðsins í
Keflavík. Tengsl bankans og sjálf-
stæðismanna í Reykjanesbæ munu
með þeirri rannsókn vonandi skýr-
ast líka. Reiði stofnfjáreigenda sem
töpuðu öllu sínu er skiljanleg og
eðlilegt að þeir krefjist skýringa.
Það er hins vegar umhugsunarefni
að þingmenn sjálfstæðisflokks vilji
kasta ryki í augu almennings með
því að draga athyglina frá raun-
verulegum ástæðum þess að ríkis-
sjóður þarf að reiða út rúma 19
milljarða til að tryggja innstæður
vegna falls Sparisjóðsins í Keflavík
og beina sjónum frá ábyrgð og
hegðun stjórnenda Sparisjóðsins og
þeim sem auðvelduðu þeim hátt-
ernið,“ segir Oddný Harðardóttir,
fjármálaráðherra.
Tengsl bankans og sjálf-
stæðismanna í Reykjanesbæ
munu vonandi skýrast
„Það er von mín og eflaust
fleiri, þar á meðal margra
Suðurnesjamanna, að rann-
sókn á falli sparisjóðanna
sem nú stendur yfir og niður-
stöðu er að vænta í haust,
muni leiða skýrt í ljós hvað
gerðist í aðdraganda hruns
Sparisjóðsins í Keflavík“.
MÁLEFNI SPKEF
›› Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra: