Víkurfréttir - 14.06.2012, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012
Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.isH e l l u h r a u n i 1 2 • H a f n a r fj ö r ð u r • 5 4 4 5 1 0 0 • w w w . g r a n i t h u s i d . i s
Sendum frítt
hvert á land sem er
vf.is
Víkurfréttir eru fluttar
í Krossmóa 4 í Reykjanesbæ
Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000
Alda Þorvaldsdóttir,
Ásta Elín Grétarsdóttir, Jóhann G Jónsson,
Sigurveig Eysteinsdóttir, Bjarni Sigurðsson,
Jón Þ Eysteinsson,
Sigríður Eysteinsdóttir, Guðmundur R Lúðvíksson,
Eiríkur B Eysteinsson, Hafdís Finnbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Eysteinn Jónsson,
Kirkjuvegi 11, Reykjanesbæ,
lést föstudaginn 8. júní á Landspítalanum Hringbraut.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 15. júní kl. 13:00.
Ólafur Þór Jóhannsson, Þórunn S. Jóhannsdóttir,
Ingvar Páll Jóhannsson, Þórhildur Arna Þórisdóttir,
Hulda Jóhannsdóttir, Páll Valur Björnsson,
Sigríður Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og vinur,
Jóhann Ólafsson,
múrarameistari, Austurvegi 5, Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 9. júní.
Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 15. júní kl. 14:00.
TIL SÖLU
95m2 atvinnuhúsnæði í Grófinni með 30m2 millilofti.
Góð lofthæð útilýsing, loftpressa, skrifstofurými og
salerni. Allt klárt undir iðnað eða sem hobbýrými.
Fjármögnun í boði hjá Ergo.
Upplýsingar í síma 840-1540// saevar@bus4u.is
Til sölu 3ja herbergja, 70m2 íbúð á 1. hæð
við Faxabraut 40b. Parket á gólfum í her-
bergjum ásamt fataskápum. Flísar á blaði.
Falleg beiki innrétting í eldhúsi. Hurð út á
verönd. Geymsla og þvotta aðstaða í risi.
Verð kr. 12.700.000,-
Upplýsingar í síma 867 7459 og
dagmar_kunakova@yahoo.com
TIL SÖLU
Einnig í boði yfirtaka á láni
frá íbúðalánasjóði 12.400.000,-
Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík,
héldu aðalfund þann 30. maí sl.
í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
mæting var nokkuð góð og var
fundurinn sendur út með fjar-
fundabúnaði. Upplýst var að
stjórn samtakanna sendi bréf
þann 26. maí 2011 til efnahags- og
viðskiptaráðherra, fjármálaráð-
herra og forsætis- og viðskipta-
nefndar Alþingis, með ósk um
að rannsókn hæfist þegar í stað
á falli sparisjóðanna, segir í frétt
frá samtökunum.
Í bréfi þessu var bent á mikilvægi
þess að rannsakað verði eftirfarandi
í starfsemi Sparisjóðsins í Keflavík:
1. Lánveitingar til einstaklinga og
einkahlutafélaga
2. Afskriftir skulda
3. Misnotkun stjórnenda á fjár-
munum Sparisjóðsins
4. Innherjaviðskipti
Bréf þetta var afhent á skrifstofu
Alþingis. Rannsóknarnefndin var
stofnuð, en ekki er vitað hvenær
hún lýkur störfum. Lögmaður var
ráðinn til að vinna með stjórninni,
Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl. Hún
mætti á fundinn, hélt erindi um
þau málefni, sem hún hefur unnið
að. Kynnt voru samskipti við Fjár-
málaeftirlitið (FME), farið var á
fundi þar með ósk um að fá afhent
afrit af skýrslu sem PWC endur-
skoðunarskrifstofa hafði unnið, en
slitastjórn Sparisjóðsins greitt fyrir.
Það gekk ekki eftir að öðru leyti
en því að FME afhenti efnisyfirlit
skýrslunnar, inngang og saman-
dregna niðurstöðu, allt án tölulegra
upplýsinga.
Kynntur var eftirfarandi útdráttur
úr ársreikningum Sparisjóðsins í
Keflavík, fyrir árin 2006-2010 er
sýnir breytingu (lækkun) á eigin
fé Sparisjóðsins um 49,5 milljarða
króna eins og sjá má hér:
sem hlýtur að teljast skelfileg niður-
staða, sbr. svar Árna Páls Árna-
sonar, fyrrv. viðskiptaráðherra á
Alþingi þann 22. mars 2011. Þar
sagði hann jafnframt:
„Fyrst um fortíðina, vegna þess
að hv.þm. Árni Johnsen nefndi
áðan það stórslys að Sparisjóður
Keflavíkur hefði ekki verið endur-
reistur og vildi meina að í því fælist
metnaðarleysi af hálfu ríkisins,
það var einfaldlega ekki í mann-
legu valdi að endurreisa hann enda
hefði þurft að eyða til þess meiru en
tveimur þriðju af því sem líklegt er
að við hefðum þurft að borga vegna
Icesave. Slíkt var það stórslys sem
þeir óvönduðu menn skildu eftir
sig sem ránshendi höfðu farið um
þann sparisjóð og deilt út lánum án
trygginga til vildarvina og félaga.
Það er með ólíkindum en það gjald-
þrot virðist vera á góðri leið með að
eignast sess í heimssögunni vegna
þess að svo lítið fæst upp í kröfur
við gjaldþrot Sparisjóðs Keflavíkur
að hann sker sig algerlega úr, þegar
horft er á fjármálastofnanir sem
lent hafa í þrotameðferð”.
Almenn samstaða var á fundinum
um það að samtökin létu skoða
málsókn á hendur, stjórn, spari-
sjóðsstjóra, yfirmönnum og endur-
skoðendum, svo og að kanna kröfu
í starfsábyrgðartryggingar sem
hljóta að hafa verið til staðar.
Ákveðið var að félagsgjald til sam-
takanna verði kr. 4.000. Nokkur
umræða var um greiðslu gjaldsins
en fáir hafa greitt fyrir árið 2012.
Formaður samtakanna sagði það
forsendur að halda áfram málinu
með lögfræðingi að gjaldið yrði
greitt. Öðruvísi væri ekki hægt að
halda áfram að vinna í málefnum
stofnfjáreigenda.
Bankaupplýsingar: 0146-05-1110 /
kt. 661110-0740.
Samkvæmt skýrslu Price- WaterhouseCoopers sem
RÚV vitnar í afskrifaði Spari-
sjóðurinn í Keflavík ríflega sjö
milljarða króna síðustu tvö árin
fyrir fall hans og færði niður út-
lán fyrir ríflega átján milljarða.
Eigið fé sjóðsins lækkaði um
fimmtíu milljarða króna síðustu
fjögur árin, en kröfur í þrotabúið
nema þrjátíu og sex milljörðum
króna. Áætlaður kostnaður ríkis-
sjóðs vegna samruna SpKef, sem
reistur var á rústum sjóðsins, og
Landsbankans nemur tuttugu og
og sex milljörðum króna.
Þetta má m.a. lesa úr f imm
hundruð blaðsíðna skýrslu Pri-
ceWaterhouseCoopers um starfs-
hætti sparisjóðsins, sem unnin
var að beiðni Fjármálaeftirlitsins.
Skýrslan var send embætti sér-
staks saksóknara, en henni hefur
verið haldið frá stofnfjáreigendum
og kröfuhöfum sjóðsins. Skýrslan
fjallar um síðustu tvö ár sjóðsins,
eða þar til Fjármálaeftirlitið tók
hann yfir í apríl 2010. Um fimm
mánuði tók að vinna skýrsluna, en
henni var skilað til FME í fyrravor.
Samtök stofnfjáreigenda
Spkef ætla að skoða málsókn
Afskrifaði sjö milljarða og færði niður lán
Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík, héldu aðalfund þann 30. maí sl.
í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja. VF-mynd: Hilmar Bragi