Víkurfréttir - 14.06.2012, Page 6
6 FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Leiðari Víkurfrétta
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is.
Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem
er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram
á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á
miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um
einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is.
Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir,
hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 21. júní 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Eldheit umræða um SpKef
Fátt hefur verið meira rætt í fjölmiðlum
síðustu misseri en mál sem snerta
Sparisjóðinn í Keflavík og fall hans. Fólki
er heitt í hamsi og hafa þeir aðilar sem
héldu um stjórnartauma hjá SpKef verið
sakaðir um spillingu, óráðsíu og glæp-
samlegt athæfi svo eitthvað sé nefnt. Allt
virðist stefna í 25 milljarða tap ríkisins
vegna SpKef en virði eigna Sparisjóðsins
hafði verið stórlega ofmetin á sínum
tíma og er nú krafa fyrir hendi um að
öxluð verði ábyrgð á öllum þessum
ósköpum. Það er sjálfsagt sárt fyrir
Suðurnesjamenn að horfa upp á hvernig
komið er fyrir Sparisjóðnum í Keflavík
sem hefur verið hornsteinn í viðskipta-
lífi Suðurnesjamanna í um 100 ár.
Stjórnarandstæðan hefur vegið hart að
núverandi ríkisstjórn vegna afgreiðslu
á málinu eins og flestum er kunnugt.
Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra
svaraði spurningum Víkurfrétta
varðandi hina eldheitu umræðu sem
fara fram á Alþingi þessa dagana og er
hún ómyrk í máli í svörum sínum.
Oddný segir það skiljanlegt að stjórnar-
andstaðan láti til sín taka þegar um slíka
fjármuni er um að ræða en málflutningur
hennar sé því miður ómálefnalegur.
„Spurningar forsvarsmanna stjórnar-
andstöðunnar hafa að mestu snúist um
af hverju ríkissjóður lét ekki Sparisjóð
Keflavíkur falla þegar ljóst er að það var
og er einlægur vilji stjórnvalda að tryggja
innstæður innstæðueigenda í bönkum
og fjármálastofnunum,“ segir Oddný í
svari sínu sem birtist hér í blaðinu í dag.
Oddný segist jafnframt vonast til þess að
rannsókn á falli sparisjóðanna sem nú
stendur yfir og niðurstöðu er að vænta
í haust, muni leiða skýrt í ljós hvað
gerðist í aðdraganda hruns Sparisjóðsins
í Keflavík. „Tengsl bankans og sjálfstæðis-
manna í Reykjanesbæ munu með þeirri
rannsókn vonandi skýrast líka. Reiði
stofnfjáreigenda sem töpuðu öllu sínu
er skiljanleg og eðlilegt að þeir krefjist
skýringa,“ segir í svari fjármálaráðherra.
Vel tókst til á Keflavík Music Festival sem fram fór um
helgina í miðbæ Reykjanesbæjar.
Hátíðin var fyrsta tónlistarhá-
tíðin af slíkri stærðargráðu sem
haldin er hér á svæðinu en um
100 hljómsveitir og tónlistar-
menn komu fram á hátíðinni.
„Hátíðin fór ótrúlega vel fram og
tókst þetta allt saman mjög vel.
Við erum alveg í skýjunum yfir
þessu öllu. Hátíðin Keflavík Mu-
sic Festival er komin til að vera,
það er bara þannig. Núna höfum
við heilt ár til þess að plana næstu
hátíð. Hún verður enn flottari og
enn stærri,“ segir Ólafur Geir Jóns-
son sem skipulagði hátíðina ásamt
Pálma Þór Erlingssyni og Smára
Guðmundssyni. Ólafur segist ekki
viss á þessari stundu hve margir
hafi lagt leið sína í Reykjanesbæ en
ljóst sé að hátíðin hafi verið mjög
vel sótt.
Ólafur sagði að ekki hefði verið
mikið um atriði sem betur hefðu
mátt fara en þó séu nokkur atriði
í sambandi við hátíðina sem verða
með öðru sniði á næsta ári. Telja
skipuleggjendur að töluvert af
utanbæjarfólki hafi sótt hátíðina og
einnig hafi fjölmargir útlendingar
mætt til þess að skemmta sér.
„Allir sem við höfum heyrt í eru
mjög sáttir og hafa beðið um að vera
með á næsta ári. Nokkur af stærstu
böndunum sem komu fram sögðu
þetta vera flottustu tónlistarhátíð
sem þeir hafa spilað á hér á landi.
Það er virkilega gaman að heyra
það,“ sagði Ólafur að lokum.
Hátíðin Keflavík Music
Festival komin til að vera