Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2012, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 14.06.2012, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR Úðum gegn: Lirfum og lús í trjágróðri, roðamaur og kóngulóm, illgresi í grasflötum (fíflum) og fl. Fullgild réttindi og mikil reynsla! Garðaúðun Suðurnesja efh. 822-3577 · 699-5571 · 421-5571 netfang: bvikingur@visir.is GARÐAÚÐUN co/ Björn Víkingur og Elín KVENNAGOLF Í LEIRU Á miðvikudögum í sumar verða golfæfingar fyrir allar áhugasamar konur. Æfingarnar verða undir stjórn Erlu Þorsteinsdóttur PGA kennara og verða í 60 mínútur í senn. Eftir æfingu verða leiknar 9 holur ýmist á stóra vellinum eða á Jóelnum. Æfingatími er frá kl. 17:00 - 18:00 Verð 1.000 kr. æfingin. TIL SÖLU SUMARBÚSTAÐUR Í STAÐARHVERFI. Bústaður og gestahús ca. 54,5m² samtals, ásamt bátaskýli ca. 34,0m². Vatnabátur á kerru og 9,9ha mótor getur fylgt. Frábært útsýni, góð staðsetning við sjávarsíðu og jaðar golfvallar, í grennd við Grindavík. Áhugasamir velkomnir í opið hús 16. og 17. júní. Ásett verð 14,4 milljónir Nánari upplýsingar gefa Jóhann 897-8300 og Gunnar 868-4479 eða go@vidskiptastofan.is 17. JÚNÍ KAFFI KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR KEFLAVÍKUR Í  MYLLUBAKKASKÓLA Glæsilegt hlaðborð veitinga, s.s. ofnréttir, atkökur, kleinur og tertur ásamt rjúkandi heitu ka og gosi. Húsið opnar kl. 14:30. Leikmenn m. karla og kvenna verða á staðnum Kæru Reykjanesbæingar, lítið við og styðjið hið unga og efnilega Keavíkurlið! Kæru Suðurnesjakonur! Lykillinn að vellíðan er að hugsa á heilbrigðan hátt um sjálfan sig og aðra. Heilsa er allt í senn andleg, líkamleg og félagsleg. Konur eru því hvattar til að fagna því að þær eru eins ólíkar og þær eru margar og njóta þess fjölþætta ávinnings sem fylgir heilbrigðum lífsháttum svo sem jákvæðu hugarfari, dag- legri hreyfingu og hollum matar- venjum. Mikil ánægja og þátttaka hefur verið í Kvennahlaupinu á undan- förnum árum. Í Kvennahlaupinu eiga mæðgur, systur, mömmur, ömmur, frænkur og vinkonur á öllum aldri notalega stund saman. Hver og ein tekur þátt á sinn hátt og á sínum hraða, margar labba, aðrar skokka, sumar skokka og labba til skiptis og svo hlaupa líka einhverjar allan tím- ann. Hlaupið verður frá ýmsum stöðum á Suðurnesjum og í Reykjanesbæ verður hlaupið frá Húsinu okkar (K-húsinu við fótboltavöllinn) og er valið um 3 vegalengdir; 2, 4 eða 7 km. Vegalengdin sem hver og ein kona velur er ekki aðalmálið heldur að vera með og hafa gaman af. Gaman væri að sem flestar kon- ur verði með og ef þú sérð þér ekki fært um að labba, skokka eða hlaupa, þá væri FRÁBÆRT ef að þú myndir fara út í dyr heima hjá þér og HVETJA HRAUSTU KON- URNAR þegar þær hlaupa framhjá og jafnvel að hafa hressa tónlist í gangi. Í fyrra myndaðist mikil og góð stemming, sérstaklega á Holts- götunni. Þær sem verða út úr bænum þennan dag, geta hlaupið hvar sem er á landinu eða erlendis. Aðal- málið er að hreyfa sig og vera með. Best er að skrá sig á fimmtudag og föstudag. Skráning fyrir Reykja- nesbæ fer fram kl. 17-19 í Húsinu okkar, Hringbraut 108. Þátttöku- gjald er 1250 kr. og innifalið í því er flottur rauður bolur, verðlauna- peningur, Egils Kristall og frítt er í sund á eftir í Vatnaveröld. Á laugardaginn kl.10-10.55 geta þær skráð sig sem ekki komast í forskráninguna. Hlakka til að sjá sem flestar konur í hlaupinu á laugardaginn kl. 11 Með hlaupakveðju, Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnisstjóri SJÓVÁ Kvenna- hlaups ÍSÍ í Reykjanesbæ 2012 23. SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ Á LAUGARDAGINN KL. 11 Í REYKJANESBÆ HREYFING TIL FYRIRMYNDAR! ›› Dansgleði í Njarðvíkum: Sigurlaug Evrópumeistari í Crossfit Evrópuleikarnir í Crossfit voru haldnir í Ballerup í Danmörkiu helgina 25.-27. maí. Njarðvíkingurinn Sigurlaug Rúna Guðmunds- dóttir var þar liðsmaður Crossfit Reykjavík sem unnu Evrópuleikana með yfirburðum og unnu sér um leið þátttökurétt á Heimsmeistara- mótinu sem fram fer í Los Angeles eftir fimm vikur. Einnig var Kefl- víkingurinn Daníel Þórðarson kærasti Sigurlaugar að keppa, en hann keppti með Crossfit stöðinni Bootcamp og lentu þau í 15. sæti. Aníta Lóa Hauksdóttir, 14 ára Njarðvíkurmær gerir það gott í dansinum. Hún var nýverið valin ásamt dansfélaga sínum, Andra Fann- ari Péturssyni, í A-landslið Íslands og einnig vann hún sér rétt til að keppa, 1 af 2 pörum frá Íslandi, á heimsmeist- aramóti ungmenna í Austurríki og á heimsmeistaramóti ungmenna í Kína í haust. Hún dansar við eldri strák og keppir því upp fyrir sig í aldri. Kristófer Haukur Hauksson 16 ára úr Njarðvík er bróðir Anítu Lóu og er einnig að gera góða hluti í dansinum og var nýverið val- inn í afreksmannahóp Ís- lands ásamt dansfélaga s ínum Herb orgu Lú ð v í k s d ó t t u r. Hann keppti á s íðasta ár i á heimsmeist- a r a m ó t i ungl inga í M o l d a v í u með góðum árangri. Nán- ara viðtal við systkinin mun birtast í Víkurfréttum á næstunni. Reynismenn heimsækja Teppið Í vikunni var dregið í 16-liða úr-slitum í Borgunar-bikarnum í knattspyrnu karla. Tvö Suður- nesjalið eru eftir í keppninni en það eru Grindvíkingar og Reynir Sandgerði. Grindvíkingar heim- sækja 1. deildarlið KA á Akureyri en Sandgerðingar leika á gervi- grasinu í Garðabæ gegn sterku úrvalsdeildarliði Stjörnunnar. að keppa á heimsmeistaramóti ungmenna í samkvæmisdönsum Aníta til Kína Víkurfréttir á nýjum stað! Erum á 4. hæð í Krossmóa 4, Reykjanesbæ. vf.is Víkurfréttir eru fluttar í Krossmóa 4 í Reykjanesbæ Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.