Víkurfréttir - 14.06.2012, Qupperneq 16
Sigurbjörg skólastjóri Akurskóla
Sigurbjörg Róbertsdóttir var á þriðjudag ráðin skóla-stjóri Akurskóla í Reykjanesbæ. Jónína Ágústs-
dóttir, fráfarandi skólastjóri, hefur verið ráðin skóla-
stjóri Breiðholtsskóla.
Tveir umsækjendur voru um stöðu skólastjóra Akurskóla
en auk Sigurbjargar sótti Pétur Brynjarsson um stöðuna.
ÁSt við fyrStu Sýn
Sumarið er tími brúðkaupa. Fátt skemmtilegra en að fá að taka þátt í svoleiðis gleði endrum og eins. Sem gestur. Búinn
að nýta hina hliðina á peningnum. Það var gaman að fylgjast
með undirbúningi að stærsta degi lífsins, spennustiginu magn-
ast allan veturinn og svo er loksins komið að því. Dagurinn sér-
stakur. Allir njóta. Lífsins. Aðdragandinn litríkur. Það þurfti að
steggja. Og gæsa. Allt tekið upp á myndband. Klippt og skorið
að hætti ungdómsins, sem allt getur í dag. Skemmtiefni til
sýningar í brúðkaupinu sjálfu. Ótrúlegir tilburðir og blessunarlega við allra hæfi.
Bara gaman. Var ekki komið nægilega í tísku þegar mínir dagar dundu yfir.
Ég átti í mesta basli að samþykkja ráðahaginn. Okkar. Þurfti að tala við séra Þorvald sérstaklega. Átti bágt með að sjá kostina og þuldi upp fyrir honum
að þetta væri ekki rétti tíminn. Minn. Ég átti eftir að gera svo margt og var
stórefins um að þetta væri rétta skrefið. Það lægi svo mikið annað fyrir. Raddir
sem hvísluðu því að mér. En saman fylktu þau liði og sögðu mér að missa ekki
svefn yfir þessu. Róuðu mig. Ég væri að fá gott kvonfang. Hún ætlaði ekki að búa
ein með börnunum tveimur. Svona, svona, ég ætti örugglega líka eftir að endur-
nýja bílinn og þvottavélina!
Þau hittust á Hafnargötunni. Hún var í magabol. Hann var í hettubol. Hún vildi ekki sjá hann. Hann gafst ekki upp. Neitaði. Sumarið var tíminn.
Sællegur níundi júní. Þau áttu sameiginlegt áhugamál. Súkkulaði. Svo sætt.
Ekki aftur snúið. Það var ást við fyrstu sýn. Hans. Staðfesti það í kirkjunni. Og
Valdimar söng: „Við eigum svo undurvel saman við tvö, skiljum hvort annað og
heiminn svo vel.“ Mígandi hamingja.
Við hittumst á Hafnargötunni. Ég ákvað að geyma bílinn og fá mér göngu. Aldrei þessu vant. Raddirnar. Settist á grindverk kastalahússins við hliðina á
Lindinni. Þarna kom hún gangandi. Ein. Nýkomin úr ljósatíma. Rjóð í kinnum.
Á tréklossum. Ætlaði að kaupa sér Sinalco og sígarettur hjá Jóa. Kannski líka
rjómatoffí. Við tókum tal saman. Tvö. Í hauströkkrinu fjórða september. Hún
bauð mér í kaffi. Ég þáði. Sopinn var ljúfur. Lífið tók á sig nýja mynd. „Sálir sem
hittast og heilsast á ný.“ Við ætluðum að eignast tíu börn. Stærðfræðin ekki í
uppáhaldi. Lögðum saman tvo og tvo og fengum út fimm. Í fjölskyldu.
vf.is
Fimmtudagurinn 14. júní 2012 • 24. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
VEITINGASALAN Í LEIRU
ER OPIN ALLA DAGA
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Í HÁDEGINU
ALLA DAGA
SÚPA DAGSINS OG
FERSKUR FISKUR
KAFFIVEITINGAR,
HAMBORGARAR,
SAMLOKUR OG FLEIRA
GÓÐGÆTI.
OPIÐ ALLA DAGA FRAM
Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í
GS OG AÐRA.
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
HLUTI AF BYGMA
Á GARÐADÖGUM
BRJÁLAÐ
VERÐ
husa.is
HENGILOBELIA
Verð áður: 1.190 kr.
Nú: 799 kr.
MARGARITA
Verð áður: 1.190 kr.
Nú: 690 kr.
JARÐABERJAPLÖNTUR
3 stk.Verð áður: 2.499 kr.
Nú 1.199 kr.
RAFMAGNSSLÁTTUVÉL
15.995 kr.
Texas - 1000W.
Sláttubreidd
32 cm
5085124
LÆGSTALÁGA VERÐ HÚSASMIÐJUNNAR
LÆGSTALÁGA VERÐ HÚSASMIÐJUNNAR
6 stólar, borð og sólhlíf
34.490 kr. FÁNAVEIFA Á BÍL 199 kr.
ALLT FYRIR
17. JÚNÍ
FÁNAV
EIFA
99 kr.
Komd
u og
fáðu þ
ér pyl
su!
Lauga
rdagi
nn 16
. júní
eru al
lir vel
komn
ir
í pylsu
partý,
í öllu
m
verslu
num
Húsas
miðju
nnar
um la
nd all
t.
Tasman Sunset 100
2 brennarar.
3000391
Gott grill
á frábæru
verði!
12.900
kr.
Skarphéðinn Jónsson verður ráðinn nýr skólastjóri Gerða-
skóla. Það varð niðurstaða bæjar-
fulltrúa á fundi bæjarstjórnar
Sveitarfélagsins Garðs. Ráðning
Skarphéðins í starfið var sam-
þykkt samhljóða.
Jónína Holm vék sæti undir þessum
lið vegna vanhæfis en Agnes Ásta
Woodhead, varabæjarfulltrúi N-
listans tók sæti hennar undir
þessum lið.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs
þakkar öllum þeim sem sóttu um
starf skólastjóra við Gerðaskóla.
Einnig vill bæjarstjórn þakka Gylfa
Jóni Gylfasyni fræðslustjóra sem
hélt utan um og stjórnaði ráðn-
ingarferlinu ásamt Ingvari Sigur-
geirssyni prófessor við Háskóla Ís-
lands og Helgu Jónsdóttur fulltrúa
frá Capasent.
Bókun D-lista:
„D-listinn mun standa á bak við
nýráðinn skólastjóra Gerðaskóla og
óskar eftir því að eiga gott samstarf
við hann eins og aðra starfsmenn
sveitarfélagsins. Það er mikilvægt að
skólastjórinn fái stuðning og svigrúm
til að koma sem fyrst í framkvæmd
þeim mikilvægu ábendingum sem
fram komu í skýrslu Attendus í
úttekt á starfsemi skólans. Það er
grundvöllur að bættu skólastarfi í
Gerðaskóla sem var kosningaloforð
D-lista við síðustu kosningar.
D-listinn treystir því að nú þegar
verði auglýstar þær stöður sem
úttektaraðilar skýrslunnar bentu
á í úttekt sinni, þ.e. tvær stöður
deildarstjóra og staða sérkennara
og fagstjóra sérkennslu við Gerða-
skóla. Allur dráttur á framkvæmd
ábendinga sem fram komu í skýrsl-
unni verður til þess að seinka því
að treysta og bæta starf skólans með
hagsmuni nemenda að leiðarljósi“.
n
Skarphéðinn Jónsson
nýr skólastjóri í Garði