Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.06.2012, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 28.06.2012, Blaðsíða 7
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 7 FORSETAKOSNINGAR LAUGARDAGINN 30. JÚNÍ 2012 Kosið er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs Jenný Kamilla Harðardóttir formaður ›› FRÉTTIR ‹‹ Piltar „múnuðu“ á vegfarendur Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi til- kynning um að hópur unglings- pilta væri uppi á þaki skólabygg- ingar í umdæminu og væru þeir að „múna,“ þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarend- ur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að „múna“ á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun. Aukið umferð- areftirlit á Suður- nesjum Lögreglan á Suðurnesjum verður í sumar með sérstakt umferðareftirlit í umdæminu, í samvinnu við Vegagerðina og ríkislögreglustjóra. Lögð verður áhersla á eftirlit með hraðakstri, öðrum brotum á umferðarlögum og sýnilega löggæslu. Þá verður fylgst náið með fleiri atriðum svo sem frágangi á farmi, bún- aði eftirvagna og fleiru. Hinu aukna eftirliti verður meðal ann- ars haldið úti á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi, Suðurstrand- arvegi, Garðskagavegi, Sandgerð- isvegi og Miðnesheiðarvegi. Fyrsti hópur tæknifræðinga Keilis og Háskóla Íslands útskrifaðist laugardaginn 23. júní síðastliðinn. En þá brautskráðust 15 nemendur með BS gráðu í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník hátæknifræði. Gestum gafst kostur á að kynna sér lokaverkefni nemenda fyrir athöfnina sem fram fór í Andrews Theater. Önundur Jónasson, formaður Tæknifræðingafélags Íslands, veitti Burkna Páls- syni viður kenningu fyrir loka verkefni sitt „Hreinsun á felldum kísli með rafdrætti,“ og Kristni Esmar Kristmundssyni fyrir loka verkefnið „Maður fyrir borð“. Auk þess veitti Tæknifræðingafélag Íslands, Björg Árna dóttur viður kenningu fyrir vinnu sína við rannsóknir á nýtingu hrat varma við upp hitun jarðvegs. Róbert Unnþórsson hlaut svo loks viðurkenningu frá Keili fyrir námsárangur, en hann hlaut 9,04 í meðaleinkunn. Fyrstu tæknifræðingarnir útskrifaðir frá Keili

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.